Fálkinn - 08.06.1964, Síða 19
LAGI ÍSLANDS
OLD ENGLAND
!S
bragð að, enda er húsið byggt á 14. öld. Og enn er búið í því og senni-
lega hefur það aldrei verið vistlegra en nú. Við hittum húsráðanda
að máli og hún tekur ljúfmannlega átroðningi þessara íslenzku gesta
’ sem þykir það undur og stórmerki í sínu landi að húsi hefur verið
klambrað saman fyrir kreppu. Hún heitir frú McLaughlin og festi kaup
á þessu húsi fyrir allmörgum árum, býr þar ásamt syni sínum sem
skipar hátt embætti í utanríkisþjónustunni. Milbourne House heitir
húsið eftir þeirri ætt er byggði það upphaflega og bjó í því fyrstu
öldina. Fram á 18. öld gaf að líta legstein nálægt altarinu í sóknar-
kirkjunni í Barnes, á honum var koparstunga og sýndi riddara í full-
um klæðum og nafn hans höggvið á hann: sir William de Milbourne,
dáinn 1415. Sir William þessi var ekki af verri endanum, hann var
einn af riddurum konungs í Surrey-sýslu og alþingismaður að auki,
kjörinn til þings árið 1376.
En merkastur þeirra merku manna sem búið hafa í þessu merka
húsi er tvímælalaust skáldsagnahöfundurinn Henry Fielding, sem bjó
þar um miðja 18. öld. Fielding var einn af helztu skáldsögusmiðum
Breta af þeim sem uppi voru á undan Dickens og enn eru gáskafullar
Framhald á næstu síðu.
London er annað og meira en Oxford Street
og London er annað og meira en áfangi á
leiðinni til Kanarí-eyja og Miðjarðarhafs.
Islendingar hafa ekki nema að litlu leyti
„uppgötvað“ England sem ferðamanna-
land, þar eru flestar lystisemdir á boð-
stólum og Islendingum kann að koma það
undarlega fyrir sjónir að þar er jafnvel
hgæt að fá 50 tegundir af neftóbaki.
Flugfélag íslands hélt íslenzku blaðamönnunum
boð á Cheshire Cheese, elzta veitingahúsi í London
þar gengu um sali Boswell og Johnson og fleir*
fuglar sem hafa getið sér ódauðlegan orðstír.
Heiðursgestir voru íslenzku sendiherrahjónin fi
London, frú Áslaug og Hendrik Sv. Björnsson.
Snæddur var hádegisverður í vínkjallaranum á
þessum forna stað (frá 14. öld). Jóhann Sigurðssor*
situr fyrir miðju, sendiherrahjónin sitt til hvorrar
handar og lengst til hægri sést í ungfrú Shapley,
enska blaðakonu, sem fræddi okkur margt um
lífið í Fleet Street.