Fálkinn


Fálkinn - 08.06.1964, Page 25

Fálkinn - 08.06.1964, Page 25
er seiglan sem þeim er í blóð borin. Þeir eru slyngustu veiðimenn sem ég þekki, þolin- móðir og jafnlyndir, enginn kann betur þá íþrótt að læðast að brá. Og þarna er gósen- land fyrir veiðimenn, auk dýra sem ég hef talið upp, má nefna refinn. í Grænlandi er urmull refa. Að lokum kvaðst Jóhannes Snorrason vilja nota tækifærið og koma á framfæri þökkum til Hjúkrunarkvennafélagsins en félagið gekkst fyrir því að safna jólagjöfum ti.l grænlenzkra barna og Jóhannes tók að sér að leika jólasveininn og flytja börnunum gjafirnar, leikföng af öllu tægi. — Yfirleitt eru grænlenzkar fjölskyldur barnmargar og ómegð mikil, segir Jóhannes, fátækt fólk og á ekki völ á mörgu. Þess vegna þóttust grænlenzku börnin himinn hafa höndum tekið þegar þeim bárust gjafirnar, þarna voru leikföng, sem þau hafði ekki einu sinni dreymt um að til væru. Að vísu var komið fram í marz þegar gjöfunum var út- hlutað en það skipti engu máli, stúlkan sem sá um að dreifa gjöfunum gat varla lýst því hvað fögnuður barnanna varð mikill. Eins og nærri má geta hefur Jóhannes Snorrason á að skipa úrvalsmönnum í áhöfn sinni á skíðaflugvélinn. Lengst af hefur hann haft sömu menn með sér, Jón Ragnar Stein- dórsson flugmann og Odd Pálsson vélamann. Vélamaðurinn þarf að vera nokkurs konar Framh. á bls. 27. Jóhannes R. Snorrason flugstjóri við vélina í Meistaravík. Þar hefur tæknin haldið innreið sína og vörubílar eru notaðir við fermingu og affermingu í stað hundasleða. Grænlenzku sleðahundamir eru óneitanlega fallegir. Hér sjáum við tvo þeirra hvíla sín lúin bein, eftir sleðaferð.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.