Fálkinn - 08.06.1964, Síða 31
Svaraðu mér
Framhald af bls. 29.
ur verið dásamlegt frí. Ég hef
notið þess reglulega og mér leið-
ist að þurfa að fara. En ef til
viil kem ég aftur næsta ár.
Tíu mínútum síðar stóð ég
ringluð á miðju eldhúsgólfinu
og kveðja hans hljómaði enn í
eyrum mér.
Við Emma frænka litum hvor
á aðra.
— Ef til vill kemur hann aft-
ur næsta ár, sagði ég eftirvænt-
ingarfull.
—Bull, hrópaði hún. Faðir
hann sagði nákvæmlega það
sama. Og hann kom aldrei aft-
ur. Sérðu ekki, að Paul Grant
hugsar um þýðingarmeiri hluti
en þig?
— Ég skal skrifa þín góðu
ráð bak við eyrað og fara heim
í dag, sagði ég við Emmu
frænku.
Þegar ég fór út úr bílnum við
endann á götunni minni var
Tom Maxwell sá fyrsti sem ég
sá, og ég varð hrifin af að sjá
hann.
— Tom . . . hefurðu saknað
mín? hrópaði ég.
mín? hrópaði ég. Hann stanzaði
og leit við. — Já, sagði hann
svo glaðlega, að ég hrópaði
aftur upp.
— Biddu aðeins Tom, það er
dálitið, sem mig langar að
spyrja þig um.
Kæri Astró!
Mig iangar til að vita eitt-
hvað um framtíðina og leita
þvi til þin og vonast eftir svari
íijótlega.
Hvernig verður framtíðin?
Hvernig verður heilsufarið?
Eignast ég mörg börn?
Eignast ég heimili í Reykja-
vík eða úti á landi?
pvernig verður efnahagur-
inn?
Kvað um makaval. Hann er
fæddur .... verðum við ekki
hamingjusöm. Hvað um aldur
okkar. Vinsamlegast birtið ekki
það sem er innan sviga.
Með fyrirfram þakklæti.
Ein forvitin XZ.
Svar til Einnar forvitinnar XZ:
Afstöðurnar benda til þess að
þetta ár og það næsta verði
mjög örlagaríkt i sambandi við
ástamálin og að þú munir gift-
ast þessum pilti, sem þú gefur
ípér upp fæðingardag og ár á.
Það er full ástæða til að ætla
að næstu ár verði mjög gæfu-
söm hjá þér og allt í lagi með
heiisufarið. Samband stjörnu-
Ég var lafmóð, þegar ég nóði
honum.
— Tom, sagðí ég, þegar ég
náði andanum. — Viltu kvæn-
ast mér?
Hann stanzaði undrandi.
— Þú getur ekki spurt
svona, sagði hann hneykslað-
ur. — Ég á að segja svonalagað!
— Auðvitað get ég spurt
hvort þú viljir kvænast mér,
hélt ég áfram. Það eru engin
lög, sem banna það.
— Ó! í fyrsta skipti vissi
hann ekkert hvað hann átti að
segja.
— Segðu nú eitthvað, hélt
ég áfram. — Viltu kvænast
mér?
Hann horfði lengi og athug-
andi á mig, og svo kom svarið,
sem ég hafði svo oft gefið
honum.
— Ég skal hugsa um það,
sagði hann og hélt síðan áfram
göngu sinni niður eftir götunni.
Hann flautaði lag, lítið fjörugt
lag ...
Ef inni er þröngt . . .
Framhald af bls. 15.
hann vissulega á skilið, þá var
hann búinn að segja okkur
þetta fyrir — að þeir riðu þarna
smáhring til þess að ná skipu-
lagi á hópinn.
Von bráðar birtist fánaberinn
i gilinu neðan Blesugrófarinnar
og á hæla hans kom svo skar-
inn. Endalaus röð hesta, rauðra
og grárra, jarpra og brúnna og
skjóttra — já og hvað þeir nú
heita allir litirnir og blæbrigða-
nöfnin, sem notuð eru yfir hest-
ana. Þarna áttu víst flestir hest-
alitir sinn fulltrúa — dálítið
mismunandi fallega að vísu —
og svo mismunandi sem hest-
arnir voru, voru knaparnir
það ekki síður. Þar gat að líta
þrekvaxna fyrirmenn úr þjóð-
félaginu, sem bersýnilega
stunduðu ekki mikið annað
sport en hestamennsku, veður-
bitna bændur, nýflutta á möl-
ina, börn langt innan við ferm-
ingu, fullorðnar konur og
blómarósir.
Áfram hlykkjaðist röðin að
hlið vallarins. Graðhestatónlist
glumdi úr hátölurnum við dóm-
pallinn á vellinum, nýjustu
dægurlögin, kennd við bítla
hina brezku, en von bráðar
tóku við virðulegir fulltrúar
tónmenntarinnar, gott ef ekki
heyrðust marsar undir lokin.
Margt manna hafði safnast
fyrir á skeiðvellinum og ekki
mun meðalaldurinn hafa verið
hár. Furðanlega fátt fullorðins
fólks var þarna saman komið,
og manni gat helzt dottið í hug,
að fáir borgarbúar, sem ekki
ættu hest á annað borð, hefðu
mikinn áhuga fyrir reisn ís-
lenzka fáksins. En kannski er
einmitt rangt að vera að minn-
ast á þetta í umkvörtunartóni
og vera heldur feginn því, hve
unga kynslóðin fjölmennti —
hennar er landið.
Sem fyrstu reiðmennirnir
riðu inn á völlinn var skrúfað
niður í graðhestatónlistinni og
sköruleg rödd heyrðist. Sú til-
kynning að hér væri að hefjast
firmakeppni Hestamannafélags-
ins Fáks og yrði það góðhesta-
keppni. Myndu þátttakendur
nú riða norður völlinn. eftir
hlaupabrautunum og siðan til
baka og enn norður. Siðan
myndu þeir ríða fimm og fimm
í hóp eftir brautunum, svo dóm-
nefnd og áhorfendur gælu
betur virt þá fyrir sér. Það var
óneitanlega fríð fylking, sem
fór eftir brautunum. Sumir
hestanna kunnu bersýnilega
ekki við þetta hægarölt, en alit
gekk þó vel og slysalaust.
Svo kom að því, að fyrsti
riðillinn hélt af stað. Þátttak-
endur áttu að ríða hægt og
rólega, svo dómnefnd gæti sem
bezt skoðað reisn og gang gæð-
anna og fellt sem réttastan
dóm. En í fyrsta riðlinum var
auðséð, að sumir gæðinganna
kunnu því illa að silast áfram.
Grár fákur sást taka forystuna
og ráðin af knapanum og geyst-
ist mikinn eftir vellinum. Og
það fór ekki á milli mála, hver
þar fór. Það var hin aldna
Framh. á bls. 34.
korta ykkar er yfirleitt mjög
gott og hans stjörnur benda
til þess að hann nái mjög langt
í þjóðfélagsstiganum og verði
stöndugur maður.
Þú hefur sjálf Venus í öðru
húsi fjármálanna en það bendir
til að peningarnir muni koma
ört til þín, hins vegar er hann
í óhagstæðri afstöðu við Úra-
nus, sem er í ellefta húsi, vina,
ósk og von, en það þýðir á
venjulegu máli að þú munir oft
verða fyrir fjárhagslegu tjóni
af vinum þínum og kunningj-
um eða að óskir þínar og vonir
geti reynst þér dýrari heldur
en þú hafðir reiknað með og
oft mundi þetta vera á óvæntan
hátt. Áhrif kvenna mun oft
gæta í þessu sambandi. Yfir-
leitt bendir staða Úranusar i
ellefta húsi til þess að vinur
manns sé fremur óvenjuiegur
og að maður verði oft fyrir
óvæntum hagnaði eða skakka-
föllum af þeirra hálfu.
Saturn i eilefta húsi er
einnig bending til þin um það
að þú þurfir að fara með gát
við vini þína og ekki ættirðu
að lána þeim fé í þeirri von
að fá það til baka. Hin óhag-
stæða afstaða milli Venusar og
Úranusar gæti einnig bent til
þess að stundum geti dregið
til óvæntra deilna eða ágrein-
ings í ástamálunum og er þá
nauðsynlegt að leysa slíkt í
rólegheitum og ganga ekki út
í öfgar.
Þú hafðir flestar pláneturn-
ar nálægt illínu á fæðingar-
stundinni og ættir því að beina
aðgerðum þínum sem mest inn
á heimilið, fremur en út á við.
Það eru allar líkur til þess að
hjónabandið verði fremur frjó-
samt og mannnjargt í ykkar
heimili. Ég gæti trúað að þið
eignuðust ein fimm, sex börn.
Árið 1967 verður samstaða
milli Sólarinnar og Merkúr í
stjörnusjá þinni, en það bendir
oft til smá ferðalaga. Þú ættir
einnig að gera sem mest af því
að kynna þér bókmenntir undir
þessum áhrifum eða afla þér
nýrra hugmynda með samræð-
um við aðra.
Árið 1969 verðux s!æm af-
staða milli Júpíters og Sólar-
innar en það bendir til ein-
hverra heimilisörðugleika, sem
gætu stafað af aðgerðum öfund-
armanna þinna.
Árið 1984 veiður mjög hag-
stæð afstaða milli Sólarinnar og
Venusar en það bendir til þess
að ástamálin og fjármálin gangi
mjög vel! Áhrifin frá þessari
afstöðu eru margþætt og virka
að nokkru leyti einnig næsta
ár á undan og eftir. Þú ættir
að taka sem mest þátt í félags-
lífinu undir þessum afstöðum.
Júpíter verður fram til maí
næsta árs í tíunda húsi en undir
þeim áhrifum hefurðu góða
möguleika á að skapa þér betra
álit út á við og afla þér virð-
ingar fyrir vel unnin störf. Það
er einnig mjög hagstætt að leita
til hins opinbera með fyrir-
greiðslu undir þessum áhrif-
um ef þörf krefur.
FÁLKINN
31