Fálkinn - 31.08.1964, Page 5
menn og er það rétt hjá hon-
um. Síðan ruglar hann eitthvað
saman um það hver hafi lamið
hvern og hverjum sé hvað að
kenna. Þarna verður Bjax illa
á í messunni. Þótt leikmenn
séu eitthvað að kljást inn á
vellinum þá er engin ástæða til
þess að áhorfendur séu að því
líka. Það sem leikmenn gera í
hita leiksins er annað en það
sem áhorfendur eiga að gera
á pöllunum. Þá víkur hann að
atvikinu á Akureyri og segir
að þar hafi heimamenn aðeins
verið að hvetja sína menn. Það
er allt í lagi þótt heimamenn
séu hvattir með möl og sandi
ef það lendir ekki á gestkom-
andi sem flestir hverjir munu
hafa lítinn áhuga á að blanda
sér í málefni dreifbýlinga.
Þá ræðir hann um að þeir
eigi að „knékrjúpa“ fyrir
„Stórborgurunum" eins og
hann orðar það og segir að ég
og mínirlíkar eigi að ganga
auðkenndir en heldur síðan
áfram og segir að það muni
vera óþarfi. Þetta er rétt.
Alltaf má kenna hvar höfðingj-
ar fara. Annars er það þetta
orð, sem mér finnst sérlega at-
hyglisvert. Stórborgari er
sennilega eitthvað meira en
venjulegur borgari en ef ég á
að vera hreinskilinn þá held
ég að þessi orðmerking hafi
ekki vakað fyrir Bjax. Þarna
er aðeins á ferðinni venjuleg
minnimáttarkennd fáeinna
sálna gegn fjölmenninu.
Að lokum gerir bréfritari
þá stórmerkilega uppgötvun að
þeir þarna á landsbyggðinni
kunni að sparka knetti og það
í sumum tilfellum ekki öllu
verr en við í Reykjavík. Enn
sóttur samanjöfnuður hingað
og reynt að sanna að þeir
standi okkur ekki langt að
baki. En hér er á ferðinni sams
konar minnimáttarkennd og í
fyrra sinnið og sams konar
kennd og við íslendingar upp-
götvum — sem ekki er oft —
að við getum eitthvað í íþrótt-
um á erlendri grund. Og nú
hef ég aldrei haldið því fram
að þeir á landsbyggðinni gætu
ekki sparkað knetti skamm-
laust heldur haldið því fram
og held enn að það geti allir
sem einhverja rækt leggja við
það að hafa tíma til að sinna
slíku. Og fyrst ég er kominn
út í þessa sálma þá langar mig
til að geta þess að það eru ekki
fyrst og fremst einstaklingarn-
ir sem ráða þessu heldur að-
staðan sem þeir hafa til að ná
árangri.
Þá talar bréfritai’i um það
bð nú verði að grípa til örþrifa-
ráða vegna þess að utanbæjar-
menn — því ekki borgarar —
séu að verða Reykvíkingum
fremri í sparkinu. Þessi ótti,
sem mér fannst vera yon hjá
Bjax er ástæðulaus. Ég veit
ekki betur en lið úr Reykjavík
hafi sigrað í íslandsmótinu
1963 og sé á góðri leið með að
halda þeim titli nú í ár. Og að
þetta lið sé fyrst íslenzkra liða
þátttakandi í Evrópubikar-
keppninni. Þetta er gamla
góða KR.
Svo læt ég útrætt um þessi
mál.
Með þökk fyrir birtinguna.
Einn úr Vesturbænum.
Ps. Var það ekki „utan-
borgarlið“ sem féll niður úr 1.
deild í fyrra og Reykjavíkur-
lið sem komst upp.
Svar:
Og nú ætti aö vera hœgt aö
lialda þessum skrifum áfram.
Til hvers er
leikurinn gerður?
Vikublaðið Fálkinn.
Ég sé að stundum hafa
íþróttir verið teknar til um-
ræðu í Pósthólfinu og vegna
þess að mér liggur hér svolítið
á hjarta þá datt mér í hug að
skrifa þér nokkrar línur.
Tíu þúsund manns sáu Liv-
erpool leika sér að K.R. Það
var leikur kattarins að mús-
inni. Yfirburðarsigur Bret-
anna. Liverpool lék sér að K.R.
Eitthvað á þessa leið voru fyr-
irsagnir dagblaðanna eftir leik
K.R. við Liverpool. Og nú lang-
ar mig til að spyrja: Til hvers
er leikurinn gerður? Því fá ís-
lenzku liðin sér ekki þá and-
stæðinga sem eru þeim sam-
boðnir að getu? Það get ég ekki
skilið. Það getur að vísu verið
skemmtilegt að sjá góð lið spila
tvö og svö saman, en að sjá eitt
gott lið og lið sem kann ekki
neitt er ekki skemmtilegt. Og
ef satt skal segja þá er það oft
á tíðum hundleiðinlegt.
Áhorfandi.
Svar:
Þaö eru sjálfsagt til mörg svör
viö þessari spurningu. Og þaö eru
til mörk rök meö og á móti. Þetta
er Evrópúbikarskeppni og því
ekki aö vera meö. K.R. fer ekki
út % þessa keppni meö neina sigur-
von. Þeir fara aöeins til þess aö
vera meö. Og hvers vegna ekki?
Er þaö eklci sagöur sannur
íþróttaandi aö fara l keppni meö
þaö ekki eitt fyrir augum aö
sigra. Og svo eitt enn. Þessi leik-
ur mun hafa fært K.R. talsveröa
peninga upp l hendurna og ís-
lenzk Iþróttafélög hafa ekki úr
of miklu aö spila.
FÁLKINN
5