Fálkinn


Fálkinn - 31.08.1964, Qupperneq 14

Fálkinn - 31.08.1964, Qupperneq 14
BRUÐUR Hún þjáist af heimþrá enda er hún langt að rekin, runnin upp á suður- hveli jarðar þar sem aldinið glóir við sólu og ljónin smjúga um dimmgrænan frumskóginn. Hún syngur í Glaumbæ þessa dagana fyrir Reykvíkinga og það er frumstæður seiður í röddinni og raunar öllum kroppnum og þetta á vel við kaupsýslumenn og iðnaðarmenn er sitja yfir rólegu glasi og láta sig dreyma. Og gæjarnir á dansgólfinu taka ögn þéttar um mjótt mittið á skvísun- um sínum og láta sig líka dreyma. Hún er heldur á varðbergi gagnvart blaðamanninum unz talið berst að æsku hennar í Jóhannesarborg, þá lifnar hún við og verður hýr á brá og fer að tala 1 trúnaði. Þau voru sjö systkinin og pabbi hennar kjötkaupmaður í úthverfi borgarinnar, það var svart hverfi og „apartheid“ hvíldi yfir öllu þeirra lífi. Nú eru aðeins tvö systkyni á lífi, hún og bróðir hennar. Þau dóu úr berklum og ýmsum sóttum hin; einn bróðir hennar var myrtur af því hann vildi ekki vera með bófaflokki. Hann var fáskiptinn og hljóðlátur drengur og vildi ekki vera glæpon, þess vegna varð hann að deyja. Þau tilheyrðu einni af sjö ættkvísl- um Suður-Afríku, hún heitir Xhosa og er bezt mennt og dugmest þessara ætt- kvísla. Hver þessara sjö ættkvísla tal- ar eigið tungumál og hefur eigin siði og háttu, margir munu kannast við Zulu-negrana„ það eru stríðsmenn og hetjur. Áður fyrr áttu þessar ættkvíslir í innbyrðis deilum og erjum, nú standa þær saman gegn bleika manninum, hvítt og svart. Verwoerd heldur öllu í járngreipum, ástamálum þegna sinna líka. Sjáist saman blandað par á götu, getur karlmaðurinn átt á hættu að verða hýddur ellegar dæmdur í sex mánaða fangelsi. Stúlkunni eru svipuð örlög búin. Komi í Ijós að hvítur maður hafi þegið gistingu í negrahverfi, er voðinn vís, jafnvel þótt ekkert hafi gerst. En fari svo að negrastúlka sé farin að þykkna undir belti og geti átt von á því að barnið verði hvítt, þá fer hún einfaldlega á lögreglustöðina og segir allt af létta og þá gera þeir ekki neitt. Þeir viðurkenna að nú hafi verið

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.