Fálkinn


Fálkinn - 16.08.1965, Page 20

Fálkinn - 16.08.1965, Page 20
Allir í hverfinu eru hræddir við mig. Hann heitir Gústi, og býr á Grettisgötunni. Hann er ekki nema þriggja ára, en er tals- verður grallari og hörkusterkur, þrátt fyrir lágan aldur sinn. Hann er ekki viss um, hvað hann ætlar að verða, þegar hann verð- ur stór, en það er nógur tími... Það var venjulegan dag í júlí, að við vor- um á gangi á Grettisgötunni. Tilveran virtist vera ósköp venjuleg, og ekkert vakti athygli okkar, fyrr en Gústi birtist. Gústi var lágur í loftinu, í gallabuxum með smekk og hend- urnar á kafi í vösunum. Þarna gekk hann út Grettisgötuna og leit hvorki til hægri né vinstri. — Gústi var einn í heiminum.— En allt í einu kom stelpa á hjóli, og stelpan vildi raska heimspekilegri ró Gústa svo um mun- aði. Hún hjólaði aftan að Gústa, og þegar hún var komin nógu nærri honum, hrópaði hún: — Gústi, ég sá vel að þú stalst inn í bíl- inn. En hinn rólyndi Gústi sneri sér þá bara við og rak tunguna framan í vinkonu sína. Og þannig lauk þeirra viðskiptum í það skipt- ið með yfirburðasigri Gústa. Eftir þetta vaknaði áhugi minn á Gústa, svo ég lagði upp í leit að honum daginn eftir. Vissulega bar leit mín fyrst að barna- leikvellinum við Grettisgötu, og þar spurði Bræðurnir sættust að lokum, og bróðirinn reis á fætur og klifraði aftur ofan í kassann til þess að sýna Gústa að hann væri ekki hræddur. En Gústi stendur hjá kassanum og er sakleysið sjálft. í ____________________i « MYIMDIR OG TEXTIs i VILMUIMDGR GYLFASOIM / ◄ Gústi gengur að kassanum sem geymir bróður hans, og hugsar nú gott til glóðarinnar.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.