Fálkinn - 16.08.1965, Síða 23
Við Búlandshöfða. Jökullinn í baksýn.
Frá Rifi, Ólafsvík og „Ennið“ í baksýn.
Frá Hellnum. Nýja bryggjan í baksýn.
Að lokinni veizlunni, var blaðamönnum vísað til sængur í
hinum nýju húsakynnum og veit ég ekki betur en þeir hafi sofið
sætt, það sem eftir lifði nætur.
Morguninn eftir gekk Gísli stofugang, og ræsti mannskapinn
til morgunverðar. Að honum loknum var farið í stutta kynnis-
ferð út á nesið og var fyrsti viðkomustaðurinn Hellnar. Ekið
var niður að bryggjunni, þar sem nokkrir menn unnu við að
lengja hafnargarðinn. Við skoðuðum Baðstofuklettinn, sérkenni-
legan gataklett og flögruðu þar sjávarfuglar fram og aftur, inn
og út um gatið. í berginu býr fuglinn og gátum við glöggt
greint ugluna, litla og loðna í hreiðrunum.
Þegar við höfðum skoðað um stund, var Kristinn Kristjánsson
sóttur heim, en hann rekur verzlun og fiskverkun á staðnum og
nefnir íbúðarhúsið sitt hinu snæfellska nafni „Bárðarbúð".
Kristinn bauð okkur öl að drekka í verzluninni, sem hefur á
boðstólum margar vörutegundir. Einhver sá átekinn sígarettu-
pakka í hillu sem bar það sögufræga nafn „Ben Hur“ og þótti
skrítið, og kom jafnvel tii hugar að pakkinn sá arna væri eftir-
legukind frá fyrri heimsstyrjaldar, en Kristinn fræðir okkur á
því, að nokkrir grikkir hafi komið til sín í verzlunina nokkrum
dögum áður og gefið sér pakkann, og var sá uppsláttur þar með
úr sögunni.
Kristinn fylgdi okkur síðan að Bárðarlaug, aldagömlum eld-
gíg, eldri ísöldunum, sagði Gísli og er vatn í hringlaga skálinni
eins og Kerinu í Grímsnesi. Það hefur ekki verið smábeinóttur
karl hann Bárður, að honum skyldi ekki nægja minni laug en
þetta.
Svo fer Kristinn með okkur í kirkjuna og sýnir altaristöflu-
rammann, sem er haglega skorinn í rauðvið. Hann segir okkur
að verkið hafi ungur maður frá Hellissandi unnið, og hafi sá
heitið Jóhann og dáið fyrir aldur fram; orðið úti á leiðinni til
Hellissands. Jóhann hafi numið list sína hjá Stefáni Eiríkssyni
myndskera.
Skírnarfonturinn er eftir Ásmund, og í loftinu hangir afgömul
Gömul hús og bátar í Grafarnesi.
ÍSflS
I
—
zr
—;
—
Bátshró í Arnarstapafjöru.
ljósakróna, með austurlenzkum
svip, og hefur lifað margar
kirkjur, segir Kristinn.
Við kveðjum Kristinn og
höldum sömu leið til baka, en
komum við á Arnarstapa og
þar er ekki síður sérkennilegt
en á Hellnum. Einn bátur ligg-
ur við bryggjuna og neðan úr
lúkarnum syngur Ellý Vil-
hjáls Ave Maria í óskalaga-
þætti sjúklinga.
Undirritaður gerir heiðarlega
Alexander Mc Arthur og Gísii
leiðsögumaður.