Fálkinn


Fálkinn - 16.08.1965, Síða 32

Fálkinn - 16.08.1965, Síða 32
Iferr. Ges^ SH>B'tjssnta \V/SPAIR i stjörnurnar 1, Kæri Astró. Mig langar til ad vita margt um framtíðina. Ég er fæddur 1948 kl. 7.00 að morgni. Hvers konar vinna mundi henta mér bezt? Hvernig er með giftingu? Giftist ég seint eða snemma eða kannski aldrei? Á ég eftir að ferðast til útlanda? Hingað til hef ég kunnað lítil skil á peningum og þeir hafa eyðst jafn- óðum og ég veit ekkert hvað orðið hefur af þeim. Hvernig verður fiárhagur minn á komandi árum? Með fyrirfram þakklæti. Kiddi. Svar til Kidda: Þú þarft áreiðanlega ekki að kvíða peningaleysi í framtíð- inni því þú ert reglulegur pen- ingapóll. Það er aðeins óstöð- ugleiki unglingsáranna sem gerir það að verkum að þú eyð- ir jafnóðum því sem þú hefur. Þetta á eftir að breytast óður en langt um líður. f eðlinu ertu framkvæmdamaður og ættir að vera í starfi fjármála- og fram- kvæmdamanns Þér lætur ekki vel að vfrmo imdir stjórn ann- arra og þú nærð aldrei góðum árangri svo lengi, sem þú lætur aðra segja þér fyrir verkum. Þú ættir samt að vara þig á að taka of skyndilegar ákvarðanir því þér hættir til að vera nokk- uð fljótfær og gæti það spillt fyrir þér. Þú munt eiga eítir að ferðast mikið bæði utanlands og innan í sambandi við starf þitt, en það er hæpið að þú gefir þér tíma til að fara raunverulegar skemmtiferðir, þegar þú ert einu sinni kominn r.f stað í at- hafnalífinu. Þú munt skipta nokkuð oft um dvalarstað og heimilislíf þitt mun verða líf- legt og fjörugt. Merki Steingeit- arinnar er rísandi og gerir það þig metnaðargjarnan, hagsýn- an og að nokkru leyti feng- sælan. Þér er eðlilegt að skipta einhverja ábyrgðarstöðu, sem tilheyrir starfsgrein þinni. Þetta merki bendir einnig til þess að þú getir starfað lengi og ötul- lega þannig að þú gefur öðrum gott fordæmi, en hins vegar mun mörgum reynast örðugt að fylgja þér eftir. Aðal metnaður þinn er í sambandi við starf þitt peninga og félagslífið og yfirleitt hvað aðrir hugsa um þig. Þegar Mars er rísandi bendir hann til mikillar starfs- og at- hafnasemi, hugrekkis og lífs- orku. Hann getur einnig valdið talsverðum skapsmunum og fólki sem þér er ekki að skapi mun þykja erfitt að umgang- ast þig. Þú ert mjög örlátur við þá, sem þér þykir vænt um, svo lengi sem þeir setja sig ekki upp ámóti vilja þínum. Þú hef- ur tilhneigingu til að taka á- hættur og framkvæma það, sem af flestum væri talið óskvnsam- legt. Ástamálin munu nú ganga heldur skrykkjótt hjá þér. Það er ávallt hætta á að þau ásta- sambönd, sem þú stofnar til leysist skyndilega og óvænt upp. Þú gerir þér háar hug- myndir um hvernig þú vilt að hið fullkomna hjónaband sé, en þegar þú giftist sem verður líklega fremur seint, verður það kona sem er eldri en þú en er líkleg til að verða þér til framdráttar bæði fjárhagslega og félagslega. Þetta hjónaband verður mikið fremur grund- vallað á hagsýni heldur en ást, en þó á gagnkvæmri virðingu. -hTTv/ 32 F'ALK.INN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.