Fálkinn - 16.08.1965, Side 39
\y\XT\K\K\
V\ kg hveiti
1 tsk. lyftiduft
V-2. tsk. salt
125 g smjörlíki
125 g sykur
2 egg
2 msk. mjólk
Vz tsk. blandað
krydd
125 g rúsínur
125 g kúrenur
50 g súkkat.
Hveiti. lyftidufti og kryddi blandað
saman í skál, smjörlíkið mulið saman við,
sykri hrært í.
Ávöxtunum hrært út í. Búin til hola í
miðjuna og þar í eru eggin látin eitt og
eitt í senn, hrært rösklega, með það mikilli
mjólk að deigið sé vel meðfærilegt. Deigið
sett í vel smurt hveitistráð mót. kakan
bökuð við 175—200° í 1—1 y4 klst.
AÐ LOKIJIVI EITTHVAÐ SÆTT
2 ÁBÆTISRÉTTIR
FLJÓTTILBÚMR
BERJATERTA MEÐ
VAIMILLURJÓMA
Búið til mördeig úr: 200 g hveiti, 150 g smjör, ögn af salti,
1 msk. sykur, 1 eggjarauða og 1—2 msk. af köldu vatni.
Geymið deigið dálitla stund, áður en það er flatt út nál. 3 mm
að þykkt. Þekið smurt tertumót að innan, þrýstið deiginu vel
meðfram kantinum á mótir.u, leggið smurðan smjörpappír, sem
er nokkru stærri en mótið, ofan á deigið, látið þurrar baunir á
pappírinn og bakið tertuna í 5—6 mínútur við 200° eða þar
til pappírinn verður brúnn á röndunum. Þá er pappírinn og
baunirnar teknar úr og tertan fuilbökuð nál. 10—12 mín.
þar til hún er ljósbrún.
Sjóðið ber eða rabarbara í dálitlum sykurlegi. Takið ávext-
ina upp með gataskeið, mælið saftina og látið 4 blöð af matar-
lími í 3 dl af saft. Látið dálítið af saftinni stífna í botninum á
hinni köldu tertu, breiðið köldu berin eða ávextina yfir og
hellið afganginum af saftinni yfir. Látið stífna.
Þeytið rjóma, skafið kornin úr vanillustöng og blandið
saman við þau 2 msk af sykri. Blandað saman við rjómann
eftir smekk. Borið fram ískalt með tertunni.
MANDARÍNUÁBÆTIR.
50 g smáar makkarónur
1 dós niðursoðnar manda-
rinur eða
4 litlar appelsínur
3-4 msk. madeira eða
Sherry.
Þeyttur rjómi
Valhnetur.
Setjið lag af litlum makkarónum í nokkrar litlar skálar,
setjið madeira eða sherry yfir, setjið lag af mandarínubátum
yfir, svo makkarónur, aftur madeira og efst 1 msk. af þeytt-
um rjóma. Stráið Valhnetum yfir.
M AREN GSÁBÆTIR.
Smyrjið nokkrar stórar heitar marengskökur. Bræðið suðu-
súkkulaði yfir gufu og hrærið saman við það dálitlu af duftkaffi
og nokkrum msk. af rjóma, svo það líkist kremi. sem síðan er
hellt yfir marengsinn. Söxuðum möndlum stráð yfir.
BERJATERTA MEÐ VANILLURJÓMA.
39
FALKINN