Fálkinn - 10.01.1966, Side 11
EINKUM FYRIR
KVENFOLKIÐ I
LEGGIÐ AHERZLU Á AUGUN
MEÐ RÉTTRI MÁLNINGU
Hér virðast augun dauf og Iíflaus. Enginn
augnskuggi enginn augnháralitur.
Augun verða skærari að sjá þegar þér ber-
ið lit á augnhárin.
Nú er kominn á markaðinn augnháralitur
sem lengir hárin og fær þau til að sýnast
þykkari þegar hann er borinn á oftar en
einu smni.
4, Og við hátíðleg tækifæri geta gerviaugn-
hár verið skemmtileg.
BUXNADRAGT
Dragt er ávallt hentugur og
viðfelldinn klœðnaður sem
á vel við flest tœkifœri.
En þegar þið viljið vera
sportlegri, er ágœtt að
klœðast jakka og
buxum í staðinn
fyrir jakka og pils.
Hér sjáið þið dragt
ungu stúlkunnar
1965. Hún er
saumuð úr skozku
ullartaui, en krag-
inn og uppslögin
eru úr flaueli.
EINLÆGT er fólk að velta
fyrir sér ástæðunni fyrir
sjálfsmorði Marylinar Monroe.
Ágizkanirnar eru margar og
mismunandi, en margir lækn-
ar eru á þeirri skoðun að hún
hafi lagt svo hart að sér við
að „halda Iínunum“ að taugar
hennar hafi beðið alvarlegt
tjón af og hún ekki þolað álag-
ið. Á myndinni er hún með
síðasta manni sínum, leikrita-
skáldinu Arthur Miller, en
leikrit hans „Eftir syndafallið"
er talið fjalla um sambúð hans
við Marylin. Það var sýnt hér
í Þjóðleikhúsinu fyrir skömmu.
CALLAS.
TEBALDl.
MARÍA CALLAS og Renata Tebaldi eru báðar heims-
frægar prímadonnur á óperusviðum veraldarinnar.
Lengi vel áttu þær við sameiginlegt vandamál að stríða,
þó þær væru harðir keppinautar um hylli óperuunnandi
almennings. Þær voru báðar of feitar. Callas, sem he.f-
ur orð á sér fyrir að vera viljasterkur kvenmaður, gott
ef ekki skass, tók sig til og fór í megrunarkúr með
glæsilegum árangri, eins og sjá má af myndinni. Hún
lagði svo hart að scr að úr henni dró allan mátt til
söngs í heilt ár. Tebaldi er hins vegar fallin fyrir fit-
unni og mun að öllum líkindum ekki eiga lengri söng-
feril frantundan.
FÁLKINN 11