Fálkinn


Fálkinn - 10.01.1966, Blaðsíða 36

Fálkinn - 10.01.1966, Blaðsíða 36
KÓLIBRÍ IV Q trúlega lágt verð étt og þægilegt \ ndi hvers eiganda Q ýður upp á mikil þægindi H eynið gæðin j slenzk framleiðsla HINIOTAN Húsgagnaverzlun Þórsgötu 1. — Sími 20820. • Úrslitastund Framh. af bls. 13. aftur á bróður sinn og vonaði að hann sæi Mamie núna, og álit hans á henni breyttist. Skyndilega spurði Mamie, hvort þau ættu ekki að fara að kveðja. Karl stóð upp. — Berðu móður þinni kveðju frá mér, sagði hún við John. Þau tókust í hendur frammi í forstofunni. Kveðjurnar voru stuttar. Helen flýtti sér aftur inn í stofuna og byrjaði að 36 FÁLKINN leggja á borð, en John stóð kyrr í dyrunum og veifaði til bróður síns. Þau gengu þegjandi eftir göt- unni, hlið við hlið og ósjálfrátt samstiga. Karl hugsaði: hvers vegna horfðu þau ekki á Mamie undir lokin, þegar hún sat þarna í sófanum? Þá hefðu þau skilið, hvernig hún er í raun og veru. Hann fann til gremju gagnvart þeim. Hann heyrði Mamie spyrja lágróma: — Hvað heldurðu að þeim hafi fundizt um mig? — Það veit ég ekki ennþá, sagði hann hljómlausri röddu. En orð bróður hans voru hon- um í óþægilega fersku minni. Hann reyndi að vinna bug á reiðinni, sem fór eins og bruni um hann allan, út í hverja taug. — Hvernig leizt þér á Helen? -spurði hann. — Mér geðjaðist ekki að henni, sagði Mamie. — Hún er hrokafull. — Hún var reglulega vin- gjarnleg við þig. — Hún var vingjarnleg við mig, eins og það væri fórn, sem hún yrði að færa. En ég held að hún hafi reglulega haft ímugust á mér. Og ég hefði get- að snúið hana úr hálsliðnum. Hún var allt í einu orðin bál- reið. — Henni geðjaðist ef til vill ekki að þér heldur, en hún sýndi það ekki í neinu, sagði Karl ásakandi. — Ég kæri mig líka kollótta um hennar álit. — Helen er mjög vönduð manneskja, sagði hann æstur. Það var eins og reiðin, sem hafði skyndilega gosið upp 1 þeim, létti af þeim fargi. Þa^ kom upp í þeim ósjálfráð hvöt til þess að særa hvort annað, þar til þau væru búin að rífá allt burtu, nema þau bönd milli þeirra, sem ekki yrðu slitin. Þau helltu sér hvort yfir annað með bitrum ásökunum, þar til hún að lokum sagðii — Ég vil ekki ganga lengur við hliðina á þér, bara til þes að finna að þú hatar mig. Við skulum skilja hérna, og ég held áfram ein heim. Hún flýtti sér yfir götuna án þess að líta við. — Látum hana bara rjúka burt, ef hún vill, hugsaði Karl þrjóskur. Hann stóð kyrr og horfði á hana ganga burt, reið- um, ákveðnum skrefum, þó um leið mjúklega og örlítið vagg- andi í mjöðmum. Hann gat næstum fundið hlýjuna og styrkinn í þroskuðum, gjaf- mildum líkama hennar, þegar hann sá hana yfirgefa sig, og söknuðurinn yfirþyrmdi hann, eins og nístandi ótti. Hann þaut af stað á eftir henni og hrópaði: — Mamie! Bíddu ... — Farðu, sagði hún og sneri sér við. Andlitssvipur hennar sýndi allt, sem brauzt um innra með henni. Það var upp- gjöf og sorg í svip hennar, sem sýndi greinilega, að henni var Ijóst, að þau höfðu útskúfað henni. Hann fann hvernig þessi út- skúfun lagði á hann hömlur. Hann var bundinn fjölskyldu sinni sterkum böndum. Álit þeirra gat eyðilagt mikið fyrir honum, eða orðið honum lyfti- stöng. En ef hann hikaði augna- blik lengur, yrði það of seint fyrir hann að fara eigin leiðir, — erfiðar leiðir, en sjálfvaldar. Mamie... hann hljóp síð- ustu skrefin yfir götuna. Hún var horfin fyrir hornið. Hann hljóp áfram, löngum skrefum, braut niður mótþróa sjálfs sín með hverju skrefi, sem hann tók og hann vissi að hann yrði að ná henni og hafa hana hjá sér, alltaf. Hún var ný mann- vera í lífi hans, sem hann vildi ekki að hyrfi úr því framar.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.