Fálkinn


Fálkinn - 10.01.1966, Qupperneq 14

Fálkinn - 10.01.1966, Qupperneq 14
Efnisslcráin að fyrstu tón- leikum sem íslenzkur kvenpíanóleikari hefur haldið. „MtSIKÐí ER MITT EÐLIsfi Sunttal við Onntt Pýeturss ptann- Utikara» fyrstu isienzku konttna sent héit opinbera pianótónleiku hér á iantii nrirm pjcturss HLJÓMLEIKHR f MÝjn BlÓ HMTUDnQ 2 JÚlil 1927 W-7'/i I. BEETHOVnrt: 32 Variulionen, G-moll. II. SCUUMmSN: Carneval, op 9 Príombule — Pierrot — nrlequin — Valse noble — Euscbius — riorestan — Coquctte — Rtpliqoe — Papillons - Leltres dansantes -• Chiarina - Chopin — Estrclla — Reconnaissance - Pantolon et Colombine — Volse ollemande — Paganini — Tlveu — Promenade — Pausc — Marchc Des .Davidsböndler* conlrc les Philistins. III. CHOPIN: 5. Prcíudicn. - Ðarcarolle. —»» Etöde, E-dur. — C-moll. TEXTI: STEINUNN S. BRIEM Það var árið 1927. Fimmtudagskvöldið 2. júní voru haldnir tónleikar í Nýja Bíói sem teljast máttu til merkisviðburða í íslenzkri tónlistarsögu, því að þetta var í fyrsta sinn sem íslenzk kona hélt opinbera píanótón- leika. Anna Pjeturss hét hún, ung stúlka um tvítugt, dóttir hins nafntogaða vísinda- manns, dr. Helga Pjeturss, brautskráð með glœsilegum vitnisburði og verðlaunum úr konunglega tónlistarháskólanum í Kaup- mannahöfn. Þá var ekkert tónlistarfélag á fslandi, enginn tónlistar- skóli, engin sinfóníuhljómsveit, jafnvel ekki útvarp. Tón- listarlífið var ekki fjölbreytilegt, og hvert nýtt nafn á músík- sviðinu hlaut að vekja töluverða athygli. Önnu var fagnað og klappað lof í lófa, og kunnáttumenn spáðu henni frama á listabrautinni. Sjálf hugsaði hún hátt og tók köllun sína al- varlega. En margra ára vanheilsa og ýmsir aðrir erfiðleikar komu í veg fyrir, að hún fengi að njóta sín sem píanóleikari, og þegar hún rifjar upp liðna daga er hún ekki laus við beiskju. Elektróníska músíkin móðgun við mannsandann ,,Þú hefðir átt að tala við mig meðan ég var og hét,“ segir hún, og gamli eldmóðurinn blossar aftur úr augum hennar sem snöggvast. Þá hefði ég getað sagt sitt af hverju En nú er ég búin að vera ræfill í mörg herrans ár, og þrekið er farið út í veður og vind, svo að það er lægra á mér risið en áður fyrr.“ „Ertu nokkuð að spila núna?“ Það eru opnar nótnabækur á f/yelinum, Mendelssohn og Schumann. ..Já. já. en ég er að ná mér eftir mjög alvarlegan uppskurð, og það er óvíst hvort ég get spilað nokkuð sem að kveður framar. Og þó — kannski á ég eitthvað eftir þrátt fyrir allt! Ég spila mest af smærri verkum meðan ég er að jafna mig, Lierler ohne Worte eftb Mendelssohn og fleira af svip- uðu tagi Slíkt fannst mér fyrir neðan mína virðingu 1 gamla daga. Þá voru allir að flotta sig með stærstu konsertstykkin, og það þekktist ekki, að lítil lög væru spiluð á tónleikum eins og jafnvel mestu virtúósarnir hika ekki við núorðið. En það er mikið hægt að marka hæfileika og dýpt listamannsins einmitt á því hvernig hann túlkar hin einfaldari verk.“ „Hvaða tónskáld þykir þér vænst um?“ „Gömlu meistarana. Ég hef spilað þá alla meira og minna, en aftur á móti er ég minna gefin fyrir nútímamúsík, og þetta elektróníska nágaul sem kallað er tónlist finnst mér móðgun við mannsandann." Túlkandi þarf jafnframt að vera skapandi „Semurðu aldrei lög sjálf?“ „Nei, nei. Einu sinni gerði ég það þó af rælni að búa til lag við Eldgamla ísafold, af því að Bjarni Thorarensen var frændi minn, en ég hef fáa látið heyra það. Annars eru allir eða allflestir sem skrifa nótur kallaðir tónskáld hér á landi og þar með settir í flokk ’skapandi1 listamanna. Það er eins og fólk geri sér ekki ljóst, að fleira er sköpun en að skrifa nótur — ef túlkandi er ekki jafnframt skapandi þá er hann enginn listamaður. Hvar væru tónskáldin stödd ef túlkendur þeirra væru ekki skapandi? Sá sem flytur tónverk þarf að endur- skapa það með anda sínum og mikill listamaður getur lyft jafnvel lítilfjörlegu verki á hærra svið í krafti snilldar sinnar." „Hvenær byrjaðirðu að læra að spila?“ „Ég var alin upp til þrettán ára aldurs hjá ömmu minni, frú Önnu Pjetursson sem kenndi hálfu landinu að spila í fimmtíu ár eða meira, og auðvitað heyrði ég nemendur henn- ar spila allan liðlangan daginn og lærði lögin fljótt. Ég fór snemma að spila eftir eyranu og var víst álitin undrabarn, en þegar ég var fimm ára byrjaði amma að kenna mér.“ „Varstu voða dugleg að æfa þig?“ „Nei, ég var löt við það, enda var amma oftast að kenna, svo að ég komst ekki að píanóinu þegar mig langaði til, held- ur var ég sótt ef'hlé varð á kennslunni. Þá var ég kannski í miðju kafi að leika mér úti og slettist inn hálffúl og nennti þessu alls ekki.“ „Hjá hverjum lærði amma þín á píanó?“ „Frú Finsen, konu landshöfðingjans, o-g fóstru sinni, frú Ástríði Melsteð að ég held, og síðar lærði hún meira í Kaup- mannahöfn. Hún leiddi marga fyrstu sporin sín í músíkinni, hún amma mín, og til dauðadags tók hún aldrei meira en fimmtíu aura um tímann. Þegar dýrtíðin óx í fyrra stríðinu 14 FÁLKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.