Fálkinn - 10.01.1966, Síða 18
Magiiús,
Anna og
Vílhjálinui*
á Röðli
1. janúar sl. tók ný hljómsveit við
af Elfari Berg á Röðli og sá sem stýrir
henni er ekki neinn viðvaningur, en það
er Magnús Ingimarsson, hinn snjalli út-
setjari og píanóleikari. Ekki hefur hann
kastað til höndunum með val á söngv-
urum, en það eru þau Anna Vilhjálms
og Vilhjálmur Vilhjálmsson. Anna hef-
ur m. a. sungið á Röðli og átt þar vin-
sældum að fagna. Vilhjálmur hefur
ekki fyrr sungið með reykvískri hljóm-
sveit, en síðast var hann með Ingimar
Eydal og félögum á Akureyri, en hljóm-
platan þeirra með lögunum ,,Á sjó“ og
„Litla sæta ljúfan. ..“ er að slá öll met
í sölu hér, en það er einmitt Vilhjálm-
ur, sem syngur síðara lagið. Jafnframt
söngnum leikur hann á bassagítar.
Aðrir meðlimir hljómsveitarinnar
eru: Garðar Karlsson, hinn kunni gítarleikari,
Alfreð Alfreðsson, sem ekki ætti að vera óstyrk-
ur með kjuðana, og svo er það auðvitað Magnús
sjálfur á píanóið.
Ég leit inn á æfingu hjá þeim dag nokkurn í
desember, í því skyni, að rabba lítillega við
hljómsveitarstjórann og söngvarana.
Magnús kvaðst vera mjög ánægður með,
hvernig valið í hljómsveitina hefði tekizt. Á
betri mannskap hefði varla verið völ. Þá kvaðst
hann hafa heyrt að aðstaða öll á Röðli væri
með ágætum og betri húsbændur væri tæplega
hægt að hugsa sér.
Ekki er þetta í fyrsta sinn, sem hann tekur
að sér hljómsveitarstjórn. 1959—1960 gegndi
hann því hlutverki í Framsóknarhúsinu (nú
Framh á bls. 42
• TOM JONES SYNGUR UM JAMES BOND •
Þið kannist flest við hið
fræga gítarlag, Walk don’t run,
en það var mjög vinsælt í
Bandaríkjunum og víðar fyrir
um það bil fjórum árum. 1964
var það gefið út á plötu á ný
í örlítið breyttri útsendingu og
hét nú Walk don’t run ’64 og
aftur gerði þetta gamalkunna
lag mikla lukku í flutningi
Ventures, þó það næði skiljan-
lega ekki fyrri vinsældum.
Höfundur umrædds lags er
John Barry og það sem meira
er, hann hefur samið alla tón-
list við James Bond myndirn-
ar, en mörg laganna hafa náð
miklum vinsældum eins og t. d.
Goldfinger flutt af Shirley
Bassey og 007 úr DR. NO. Þá
er lag úr nýjustu myndinni
THUNDERBALL þegar farið
að fikra sig upp bandariska
listann, en það er sungið af
Tom Jones, og nú er að vita
hvort TOMMI JÓNS kemst
eins hátt á vinsældalistanh
með James Bond og hún
Shirley Bassey. Honum ætti
ekki að verða skotaskuld úr
því miðað við það, hvað What’s
new Pussycat? úr samnefndri
kvikmynd náði langt. Þar var
Sean Connery að vísu ekki í
aðalhlutverkinu, heldur hinn
góðkunni Peter Sellers, en
lagið, sungið af Tom Jones
nýtur mikilla vinsælda.
Það er orðin hefðbundin
venja, að ef minnzt er á er-
lenda kvikmynd, sem vakið
hefur athygli, að klykkt er út
með því að segja að umrædd
mynd verði sýnd hér bráðlega.
Þetta er álíka leiðigjarnt og
endirinn á ævintýrunum . .
18
FALKINN