Fálkinn - 10.01.1966, Qupperneq 20
HVAD GERIST ÞESSA VIKU
Hrúturinn, 21. marz—20. avríl:
Þessi vika kann að fœra þér óvænta
viðurkenningu einnig getur verið um að
ræða breytta vinnu eða þjóðfélaKsstöðu.
Leggðu áherzlu á að vinna sem bezt úr
verkefnum þínum OK komdu á framfæri
nýjum hugmyndum.
Nautiö, 21. apríl—21. maí:
Þú verður í rómantískum hugleiðineum
þessa viku oe sækir að líkindum töluvert
mikið skemmtanir. ÝmisleKt óvænt gæti
skeð í ástamálunum. Sumir hitta kannski
sinn eina rétta. Fréttir langt að koma þér
mikið á óvart.
Tviburarnir, 22. maí—21. júní:
Ekki er ólíklegt að óvæntir peningar ber-
ist inn á heimili þitt í vikunni. Þú ættir
þó að nota tímann tii að dytta að heimiíi
þínu oe gera áætlanir um heimilismálin í
framtíðinni.
Krabbinn, 22. júní—23. júlí:
Það er einna hentugast fyrir þig að nota
tímann tii að lesa bækur og svara bréfum
vina þinna sem þér hefur ekki gefizt tími
til að sinna að undanförnu. Maki þinn mun
kunna að meta að þú sért sem mest heima
fyrir.
LjóniO, 2U. júlí—23. ánúst:
Nú er heppilegur tími fyrir þig að hefja
endurskipulagningu á störfum þínum, svo
þér vinnist allt léttar og þú hafir meiri
hagnað. Þeir sem hafa Eleymt sér um of
yfir jólakræsingunum geta hæglega bætt
.úr því nú.
Meyjan, 21. áaúst—23. sevt.:
Þrátt fyrir að þú hefur komið miklu í
verk að undanförnu muntu sjá að enn er
mikið ógert. Reyndu að koma því sem
fýrst af og siðan er ekkert því til fyrir-
stöðu að þú farir oe skemmtir þér ræki-
lega.
Vonin. 21. sevt.—23. okt.:
Éinhver í fjölskyldu þinni á við erfið-
leika að striða og finnur þú þörf hjá þér
til að koma honum til hjálpar og er mikið
undir því komið að sú hjálp sé veitt með
ánægju.
Drekinn, 21. okt.—22. nóv.:
Þú ættir að leggja áherzlu á gott sam-
band við vini þína og kunningja með þvi
að heimsækja þá eða bjóða þeim heim.
Símahringing eða sendibréf verður til þess
að einhverjar óskir þínar og vonir rætast.
Bonmaöurinn, 23. nóv.—21. des.:
Þessi vika verður þér á margan hátt
minnisstæð og að líkindum koma fjármálin
þar einna mest við sögu. Övæntir atburð-
ir varðandi vinsældir þínar og heiður verða
þér miög í hag.
Steinneitin, 22. des.—20. janúar:
Þú færð góðar hugmyndir um hvernig
bezt megi skipuleggja dagleg störf þín. Þú
ættir að nota tímann þessa viku til að út-
færa þessar hugmyndir þínar. Fólk sem
býr fjarri heimili þínu sýnir þér óvæntan
áhuga.
Vatnsberinn, 21. janúar—19. febrúar:
Þú ættir að láta aðra vita sem minnst
um áætlanir þínar og varast að tala um
fjármálin við aðra jafnvel þá, sem þú álítur
góða vini þína. Þú vérður að ráða fram úr
vandamálunum sjálfur.
Fiskarnir, 20. febrúar—20. marz:
Þessi vika býður þér upp á mörg góð
tækifæri til að skemmta þér og þú ættir
að vera sem mest innan um annað fólk.
Taktu góðum ráðleggingum vina þinna,
sem eru allir af vilja gerðir til að vera
þér til gagns og ánægju.
Lancaster juvcnil skin crem er notað sem tlag-
krem fyrir viðkvæma húð og húð, sem hætt er
við ofnæmi. Það styrkir húðina og gerir hana heil-
brigða. Tilhneiging til ofnæmis minnkar eða hverf-
ur og brátt fær húðin á sig blæ æsku og heil-
brigðis.
Biðjið um prufu á útsölustöðum.
Útsölustaðir í Reykjavík:
Tíbrá, Gjafa- og snyrtivörubúðin,
Mirra, Orion, Skemmuglugginn,
Holts Apotek, Tjarnarhárgreiðslustofan.
Verzl. Snyrtiáhöld — Grensásvegi.
Akureyri:
Drífa.
Keflavík:
Verzl. Ása.
Patreksfjörður:
Verzl. Ó. Jóhannesson.
UMBOÐ:
Ö. Valdimarsson h.f.
Skúlagötu 26, Reykjavík. Sími 21670.
20
FÁLKINN