Fálkinn


Fálkinn - 10.01.1966, Page 26

Fálkinn - 10.01.1966, Page 26
IÖÐRUM enda stofunnar stendur maður og skemmtir hóp af fólki með kímilegum og vel sögðum sögum úr starfi sinu. í hinum enda stofunnar situr kona hans og lítur út eins og hún sé að sálast úr gremju. — Geturðu skilið þetta! segir hún. — Heima er hann gjörólíkur maður. segir aldrei frá neinu. Ef ég spyr, hvernig honum hafi gengið á skrifstof- unni, svarar hann mér með einsatkvæðisorðum. Spyrji ég, um hvað hann sé að hugsa, svarar hann „ekki neitt“ En þegar hann er með öðrum. þá kjaftar á honum hver tuska! Hún hefur líklega sjálf heyrt beiskjuna í málrómi sínum, því hún bætti við hálf afsakandi:. — Ég skil vitanlega, að hann er þreyttur, þegar hann kemur úr vinnunni og finnur enga hvöt hjá sér til að keppa við krakk- ana, sem blaðra hvert upp í annað við kvöldverðarborðið. En fyrr eða seinna kemur að því, að börnin sofna og við setjumst inn í stofu og þá væri ef til vill ekki úr vegi að skiptast á nokkrum orðum um eitthvað annað en húshaldið og þessa alvarlegu hluti En það er eins og við kom- umst aldrei lengra en að tala um það, sem við erum að hafast að þá -stundina: Hvað viltu fá með kaffinu hvað hefurðu gert af blaðinu, og hvað er í sjónvarpinu í kvöld? Áður reyndi ég alltaf að segja honum frá, hvern ég hefði talað við og hvað ég hafði verið að hugsa um yfir daginn, en þegar hann' sýnir aldrei neinn áhuga, þá hættir maður því auðvitað smám saman. Ég spyr heldur ekki af eins mikilli eftirvæntingu, um hvað hafi komið fyrir hann, því ég veit að ég fæ ekkert svar... „ . . . Heima er hann gjör- ólíkur maður. Segir aldrei frá neinu — en þegar hann er með öðrum þá kjaftar á honum hver tuska ... . ” HVERSVEGNA TALAR HANN EKKI VID MIG? FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.