Fálkinn - 10.01.1966, Síða 35
r
1 . ,
Aika gerði hlé á sogu sinnl.
^lún faldi andlitið í höndum sér
og fór að gráta. Chiang beið.
Hann sagði ekki neitt, horfði
aðeins á skjálfandi axlir hennar
og beið. Eftir nokkrar mínútur
rénaði ekkinn og Aika þerraði
af sér tárin með vasaklút Chi-
angs. „Þetta er búið,“ sagði hún.
„Þetta er um garð gengið. Viltu
gefa mér eitt glas enn?“
Chiang hellti I glasið hennar.
Áika dreypti á þvi og sagði:
Mér líður betur núna. Ég ekki
sorgmædd lengur.“
„Þú þarft ekki að segja mér
niðurlagið, nema þú óskir þess
sjálf,“ sagði Chiang. „Það var
gott að vinkona þín skyldi koma
i tíma til að bjarga þér.“
„Nei, hún kom ekki réttum
tirna," sagði Aika. „Hún var hálf-
tíma of sein. Þegar hún kom inn
hún fann mig á gólfinu. Snag-
inn hafði brotnað. Höfuð mitt
rakst á hornið á handlauginni.
Þegar ég raknaði við, ég lá á
rúminu, japanska vinkonan min
hjá mér. Hún bar mig i rúmið og
batt um sárið. Sérðu þetta ör?
Hér rakst ég á handlaugina.1'
Hún benti með fingri á enni sér
og Chiang sá hvítt ör, sem var
hálf hulið af hári hennar. Hann
hafði tekið eftir því áður, en
aldrei grunað, að það ætti sér
harmsögu. „Japanska vinkona
min vissi hvað ég hafði gert,“
hélt Aika áfram. „Hún gaf mér
rækilegt tiltal. Hún sagði guð-
irnir ekki leyfa mér að deyja.
Guðirnir væru reiðir og refsuðu
mér með þessu sári á ennið. Hún
var mjög einlæg, japanska vin-
kona. Svo ég trúði henni. Við
héldum þessu leyndu milli okk-
ar. Ég fékk skilnað frá manni
mínum. Ég var með barni. Mað-
urinn minn vissi það. Hann vilja
ekki skilnað en ég fékk hann.
Níu mánuði seinna ég átti
Johnny. Ég vissi hvers vegna
guðirnir voru reiðir við mig; af
því ef ég drepa sjálfa mig, ég
drepa Johnny lika.“
„Er ekki fyrrverandi manni
þínum kunnugt um allt þetta?
Ég á við sjálfsmorðstilraunina?"
„Nei, hann veit ekki. Aðeins
tvær manneskjur vita — vin-
kona mín og ég. Nú veizt þú
það. Ég sagði engum nema þér.“
„Þú getur treyst mér,“ sagði
Chiang. „Ég mun ekki segja
þetta neinum."
„Mér svo sem sama núna,“
sagði Aika og lauk við vinið í
glasi sínu og bað um meira.
Chiang fyllti enn glasið fyrir
hana. Hann fann til reiði vegna
einhvers, en gat ekki gert sér
grein fyrir hvað það myndi vera.
Ef til vill heimskulegt atferli
Aiku. „Hvers vegna léztu ekki
manninn þinn sjá fyrir ykkur?"
spurði hann.
„Michael vildi sjá fyrir okkur,"
sagði Aika. „Ég lét hann gera
það. En peningar hans minntu
mig á hann. Hverjum mánuði ég
fékk peninga hans, fór ég að
gráta. Það er of sárt. Ég vildi
gleyma honum. Ég vildi láta
börnin mín ,vaxa af mat, sem
ég kaupi fyrir mina eigin pen-
inga, ekki hans, svo börnin mín
minna mig ekki á hann. Ég
fékk vinnu á veitingastað í San
José. Eftir hálft ár ég endur-
sendi allar ávísanir hans. Svo
fór ég að vinna hjá herra Tan-
aka. En kaupið ekki nóg til að
framfleyta þremur börnum. Ég
vinna mér inn aukapeninga á
nóttunni svo ég hef nóg til að
sjá fyrir börnunum." Skyndi-
lega reis hún á fætur og tók að
dansa um herbergið með tómt
glasið í hendinni. „Ég búin að
kveðja ástiiia að eilifu. Verið þið
sælir herra Huggins og herra
Larson. Ég gef þér sólarhring
frest að koma aftur til mín. Þú
komst ekki. Það er mjög gott.
Svo ég þurfi ekki að þjást
meira. Svo ég get gleymt; þetta
er miklu betra og ég er glöð ...“
„Þú ert drukkin, Aika,“ sagði
Chiang.
Aika hló, kom til hans og
settist í fang honum. „Er ég
það? Nei, það held ég ekki. Ég
bara hamingjusöm. Ég er frjáls
kona núna, skilurðu það? Óháð
— er ekki það rétta orðið? Ég
búin að kveðja ástina. Héðan af
hef ég ekkert með hana að gera.
Aldrei! “
Chiang tók af henni glasið og
lagði það á skrifborðið. Siðan
þreif hann um handlegg henni
og sagði: „Hlustaðu á mig,
Aika, í síðasta Skipti bið ég þig
um að giftast mér. Viltu giftast
mér?“
Aika horfði á hann um stund,
viðkvæmnislega. Svo lagði hún
hendina um hnakka hans og
kyssti hann létt á ennið. „Nei,
Chiang. Gerðu það fyrir mig að
spyrja ekki aftur.“
„Hvers vegna er ég þér svona
ógeðfelldur?"
Aika hló. „Nei hvernig get-
urðu sagt annað eins? Þú ert
anzi laglegur og þú voða góður
maður. Áður en ég kynntist
Michael, ég hefði kannski getað
elskað þig. Þegar ég búin að
kynnast Michael ég get aðeins
elskað einhvern, sem er líkur
honum. — En nú get ég elskað
engan."
„John Larson hlýtur að hafa
líkst Michael töluvert," sagði
Chiang eftir stutta stund.
„Ekki mjög mikið. Báðir háir,
grannir, hafa ljóst hár. Ég gat
orðið ástfangin af honum. Hann
mjög aðlaðandi fyrir mig. En
hann er eins og Michael. Hann
elska mig ekki raun og veru.
Ég er fegin að ég slapp frá
honum. Þú ert ekki reiður við
mig, er það?“
„Nei,“ svaraði Chiang, „því
skyldi ég vera það?“
„En mér sýnast þú óhamingju-
sarnur."
„Já, ég er það.“
Aika kyssti hann aftur á enn-
ið, og kossinn var lengri og ást-
úðlegri en áður. „Þú ert bezti
maðurinn, sem ég hef kynnzt.
Hvernig get ég nokkurn tima
launað þér allt þetta góða, sem
þú hefur gert fyrir mig?“ Chi-
ang tók hana i faðm sér, grúfði
andlitið við brjóst hennar ög
tókst með herkjubrögðum að
bæla niður grátinn.
Morguninn eftir, þegar Chiang
vaknaði, var Aika farin. Á kodd-
anum við hlið sér fann hann
miða; nokkur orð vandlega
skrifuð á bréfsefni gistihússins:
„Ég er farin aftur til vinnu
minnar. Þakka þér fyrir, Chiang.
Reyndu að gleyma mér. Vertu
sæll.“
X.
Allan morguninn var Chiang
að reyna að finna ráð til þess
að bægja frá sér hugsuninni um
Aiku. Þetta var hin sorglegri
hlið tilverunnar, hugsaði hann
með sér, að þvi heitara, sem
maðurinn þráir eitthvað óhöndl-
anlegt, þeim mun fastar læsir
það sig um hugann. Það voru
vissulega grimmdarlegar ráð-
stafanir örlaganornanna; líkast
þvi að gefa hungruðu fólki
myndir af mat.
Á leið sinni til skrifstofunnar
velti hann því fyrir sér, hvort
margar konur myndu vera eins
og Aika og skilja eftir sig
óhamingju og ólæknandi sár,
hvar sem þær færu. En þegar
hann hugleiddi hina raunveru-
legu sögu hennar, snerist reiði
hans öll að kynbræðrum hans.
Aika hafði verið fórnardýr karl-
manna, ónærgætinna og tilfinn-
ingasljórra karlmanna, sem
gerðu konur að miskunnarlaus-
um kvölurum. Hann var kominn
á þá skoðun, að grimmd kvenna,
sem sumum karlmönnum varð
æði tiðrætt um, ætti langoftast
rót sína að rekja til samskipta
þeirra við svikula og tilfinninga-
lausa karlmenn.
Honum varð hugsað til Lar-
sons og hvoi’t hann hefði elskað
Aiku í raun og veru. Ef hann
elskaði hana, þá hefði hann án
efa farið aftur til hennar innan
sólarhrings. Falslaus ást setti
engin skilyrði. Hann mundi eftir
taugaóstyrk Johns. Maðurinn
hafði að öllum líkindúm ætt
fram og aftur um göturnar mest
allan sólarhringinn. Á síðustu
stundu hafði hann svo ákveðið,
að fara ekki aftur til Aiku. I
stað þess hafði hann komið til
Chiangs til þess að kveðja hann
og síðan hraðað sér til brautar-
stöðvarinnar til þess að komast
burt úr borginni áður en hann
gæti komizt á aðra skoðun. En
á meðan beið Aika í einhverju
hótelherbergi, eins og hún hafði
áður beðið eftir Michael, og leið
vitiskvalir angistar og kvíða...
Framh. í næsta blaði.
I\IKI\\
IIVKUIE
ÖT
HVERFISGÖTIJ 16
SÍMI 2-1355
TRÚIOFUNAR
ULRICH FALKNER GULLSM
LÆKJARGÖTU 2 2. HÆÐ
7n Pl |
u m 'd'
ifijre
D u
0 n □ n
u 0 U d :
Einangrunargler
Framleitt einungis úr úrvals
gleri. — 5 ára ábyrgð.
Pantið tímanlega.
KORKIÐJAIM H.F.
Skúlagötu 57 — Símar 23200
FALKINN
35