Fálkinn - 10.01.1966, Síða 37
• Sviðsljósið
Framh. af bls. 18.
Glaumbær), en þar annaðist
Sigrún Jónsdóttir sönginn. Þá
hefur hann m. a. leikið með
hljómsveitum Gunnars Orms-
levs og Björns R. Einarssonar.
Einnig hefur hann eins og
kunnugt er starfað í mörg ár
með hljómsveit Svavars Gests.
Aðspurður um lagavalið,
sagði hann að reynt yrði að
hafa það sem fjölbreytilegast
og við sem flestra hæfi.
Anna Vilhjálms kvaðst
hlakka til að starfa með þess-
ari nýju hljómsveit og hún
sagðist ekki vera í neinum
vafa um, að þetta myndi ganga
mjög vel. „Það er mjög líklegt,
að aldursflokkur gestanna
breytist eitthvað og vona ég
það. Ekki svo að skilja, að mér
líki ekki þeir, sem ég syng
fyrir núna. Nei, það er af og
frá. Hins yegar hefur mér
alltaf fundizt skemmtilegra að
syngja fyrir fólk á öllum
aldri. Þó má ekki skilja orð
mín svo, að það sé eingöngu
æskufólk, sem sækir Röðul
núna, en það virðist vera út-
breiddur misskilningur."
„Hvernig leggst það í þig að
fara að syngja fyrir Reykvík-
inga?“ spurði ég Vilhjálm.
„Mjög vel, enda hef ég góða
reynslu af því, þegar ég söng
með Ingimar í Glaumbæ, en
það var 19. september. Ég
söng í eina viku fyrir norðan
eftir það. Síðan hef ég ekki
komið fram í sviðsljósið, en ég
brenn í skinninu eftir því að
fá að syngja hér á Röðli með
þessum ágætu mönnum."
„Eruð þið systkinin Ellý
og þú kannski frá Akureyri?11
„Nei. Við erum sunnan úr
Höfnum bæði tvö.“
„Hvernig er sú tilfinning, að
vita af sínu lagi í efsta sæti
vinsældalistans?"
„Ég vil taka það fram, að
ég er ekki alls kostar ánægð-
ur með plötuna. Hins vegar er
þetta þægileg tilfinning, en ég
verð þess ósköp lítið var, nema
þá helzt, þegar ég opna fyrir
útvarpið."
Þegar ég kem út frá Röðli,
gengur þar framhjá ung stúlka
með háttstiilt transistorútvarp
og frá því berst lagið, sem
margur raular fyrir munni sér
þessa dagana:
„Litla sæta ljúfan góða
með ljósa hárið ...
• Fréttir
Framh. af bls. 5.
maðurinn þeim eiginleikum,
sem þarf til þess starfs. En
úr hinu gat hann ekki leyst,
voru það íslendingar sem
keyptu bókina? Það var ein-
hver fornbókasali Mr. Hannas
sem var kaupandi, Björn hafði
auðvitað talað við hann, en
hann neitaði að gefa nokkrar
upplýsingar.
Á skömmum tíma voru
menn settir í að hringja í ýms-
ar áttir. Menntamálaráðherra
neitaði að gefa nokkrar upp-
lýsingar, próf. Einar Ól. Sveins-
son var erlendis. Þó tókst á
MAHK II
SJÁLFVIKKA
i»v«it\ví:u\
MFÐ SI IHJ
★ FLJÓTVIRK: Þar sem
Mark II þvottavélin notar
ekki aðeins kalt vatn held-
ur einnig heitt, flýtir það
mjög fyrir upphitun á
vatninu í suðu.
★ ÓDÝR 1 REKSTRI: Raf-
magnshitun á köldu vatni
I suðu er dýr — Mark II
þvottavélin notar vatnið úr
hitakerfi hússins — það
er ódýrt.
★ FJÖLBREYTTAR
ÞVOTTASTILLING AR:
★ Stillanlegt hitastig á
vatni 10(T—60°—40°—
★ Stillanlegur þvottatími
upp á 15 mínútur.
★ Sérstakt þvottakerfi fyr
ir ull og annan við-
kvæman þvott.
★ Stillanlegt vatnsmagn,
eftir magni þvottarins.
Sparar upphitun á
óþarfa vatnsmagni.
O. Joliiisou &
Kaaber li.f.
Sætúni 8 — Sínii 24000.
lleimllisfæki s.f.
Hafnarstræti 1 — Sími 20455.
endanum að fá ýmis upp-
lýsingabrot um þennan Mr.
Hannas. Það kom i ljós að hann
hafði áður boðið í fyrir íslend-
inga og eftir að þessum brot-
um hafði verið raðað saman,
varð manni rórra, að sinni
mátti þó ekkert segja beint um
þetta, annað en að við geng-
um frá svolitlum ramma um
Framh á bls. 41.
37
FALKINN