Fálkinn - 10.01.1966, Síða 41
8oo krðnur í verðl.
AF
f 9. umferð voru margir felldir, þar sem höfuðsynd flestra
var sú að ganga of langt í orðmyndunum. Oft eru orðin
rétt mynduð, en finnast ekki í orðabókum og verðum við
að hafa þær takmarkanir að orðin finnist í orðabókum.
Þannig tókum við ekki til greina orðið LAMAKJÖT, sem
margir höfðu sem fyrsta orð
Verðlaunin:
1. verðlaun, kr. 500,00, fær Sigurður Magnússon, Hverfis-
götu 14, Hafnarfirði. Hann hlaut 252 stig.
Lausnin: Lamb — Ambla — Mjalta — Blakta — Ambla
— Kjalta — Jamla — Ökla — Tambak.
2. verðlaun, kr. 200,00, fær Ari Hermannsson, Blönduósi
A-Hún. Hann hlaut 251 stig.
Lausnin: Lamba — Ambla — Mjalta — Baktal — Ambla
— Kjamta — Jamla — Ökla — Tambak.
3. verðlaun, kr. 100,00 fær Árni Árnason, Grænumýri 16,
Akureyri. Hann hlaut 239 stig. Ennfremur fengu Hilda
Torfadóttir, Kleppsvegi 42, R' og Inga Benediktsdóttir,
Svarfaðarbraut 1 Dalvík sama stigafjölda en Árni vann á
hlutkesti.
Lausnin: Lamba — Amla — Mjalta — Baktal — Amla —
Kjalta — Jamla — Ökla — Tala.
SAMT.
X X X x
vis X X X X x X
V' X x Xj x X X
X X X X X
V X X 'x \ Vx X X
X X \ x X
V X X
V X X X X \j
V X k X X X
s X X X X X
Samtals:
Nafn: .........................................
Heimilisfang: ......-í......................
Næsta þraut
Næsta lykilorð er LEITARMANN. Nýjum þátttakendum
skal bent á að aðalreglan er sú að aðeins má nota þá stafi
sem koma fyrir í lykilorðinu og ekki oftar í hverju orði en
þá er að finna í lykilorðinu.
Bannað er að nota persónuheiti eða staðaheiti, ennfremur
heimatilbúin orð eða orðskrípi. Rita skal orð eftir ríkjandi
réttritunarreglum.
Verðlaun:
Fálkinn veitir vikulega þrenn verðlaun, kr. 500.00,
200,00 og 100,00 Ef margir ná sama stigafjölda verðui
dregið um verðlaunin Frestur til að skila lausnum ei
þrjár vikur. Merkið umslagið ORÐ AF ORÐI 1.
Utanáskriftin er- Vikublaðið Fálkinn. lósthólf 1411
• Fréttir
Framh. af bls. 37.
Hannas. Og Jónas Kristjánsson
félagi minn fann upp fyrir-
sögn klausunnar aðeins eitt
upphrópunarmerki. Það skildu
lesendurnir áður en skylli í
tönnum.
Svo kom hinn venjulegi eftir-
leikur fyrir næsta blað. Hann
varð auðveldari en við héldum,
Því að svo vel vill til, að einn
af blaðamönnum Vísis Þor-
steinn Jósefsson er mikill bóka-
safnari og á eitt stærsta og
glæsilegasta safnið í einstakl-
ingseigu í dag a. m. k. síðan
Sýslumannssafn fór austur i
Skálholt og safn þjóðskáldsins
er orðið byggðasafn.
Og auðvitað átti hann í sín-
um hillum allt sem til þurfti
til upplýsinga, bæði ljósprent-
un af bókinni sem nú var
geymd í peningahólfi Hambros
og aðgengilega textaútgáfu,
sem norski prófessorinn Unger
gaf út á sínum tíma, svo ekki
leið á löngu áður en við gát-
um borið á borð fyrir lesendur
blaðsins bæði sögu þessa merka
handrits og gefið þeim hug-
mynd um, hvað efni hennar
væri. Þannig varð sala Skarðs-
bókar ekki einungis mikil frétt,
heldur líka skemmtilegt við-
fangsefni fyrir íslenzka blaða-
mennsku.
X
• Hvers vegna talar hann Framh. af bls 27
dálitla stund, til þess að vera viss um, að ég sé ekki að gera
neitt rangt, þótt ég kaupi hann.
— En hvernig geturðu ætlast til að karlmaður, með marg-
ar kynslóðir karlmanna að baki sér, sem öllum fannst sjálf-
sagt, að þeir fengju kjöt til miðdegisverðar, þegar aðrir fjöl-
skyldumeðlimir borðuðu graut, geti skilið slíka óvissu? Sem
karlmaður finnst honum hann vera í sínum fulla rétti, þegar
hann kaupir eitthvað og mjög eftirlátur, þegar hann neitar
sér um það. Honum veitist ekki auðvelt að skilja. að konu í
samsvarandi valdaaðstöðu geti fundizt hún aðgangsfrek ef
hún kaupir sér eitthvað, sem hugurinn girnist-og píslarvottur,
ef hún ekki gerir það. Mikill hluti þeirra vandamála. sem
konan vill gjarnan ræða við hann, eru engin vandamál frá
hans sjónarhóli. Þess vegna virðist honum, sem hún sé að
skapa sér vandamálin þegar hún talar um þau — og hann
geti skotið sér undan þeim með því að þegja.
Síðustu mínúturnar hefur hún gleymt að horfa á mann
sinn, en talað hratt og fjörlega — alveg eins og hann, hinum
megin í stofunni. Við og við hefur hann skotrað til hennar
augunum og nú kemur hann og sezt í sófann við hlið hennar.
— Um hvað eruð þið að tala? spyr hann. Hún þegir.
FALKINN
41