Fálkinn


Fálkinn - 31.01.1966, Síða 22

Fálkinn - 31.01.1966, Síða 22
ISLENZK UPPFINNING: Fáum þjóðum eru flugsamgöngur eins mikilvægar og íslendingum. Vegna legu landsins í Atlantshafi eru tíðar og öruggar flugferðir til meginlands Evrópu og Bandaríkjanna nauðsynleg- ar á þessum tímum framfara og auk- inna samskipta þjóða í milli. Þá er flugvélin ekki síður mikilvægt sam- göngutæki hér innanlands, þar sem hún getur flutt björg í bú, er fjallvegir lok- ast vegna snjóa á vetrum, komið mönn- um á áfangastað á skemmri tíma en nokkurt annað farartæki og flutt sjúka og særða er mikið liggur við. Flug- mál hafa jafnan verið mönnum á ís- landi hugleikið umræðuefni og ekki sízt vegna þess hve íslenzku flugfélögin hafa náð eftirtektarverðum árangri í áætlunarflugi á alþjóðlegum flugleið- um. Þegar flugvél þeirra Wright-bræðra lyftist frá jörðu fyrir eigin vélarorku 17. desember 1903 var brotið blað í sögu mannkyns. Áður höfðu ýmsir full- hugar gert tilraunir með margvíslegar gerðir flugvéla, en þó aðallega svif- flugur. Nokkrir þeirra luku þannig lífi sínu En fyrir tíma flugvélanna höfðu menn reynt að lyfta sér frá móður jörð með loftbelgjum, og 21. nóvember 1783 urðu tveir Frakkar fyrstir til þess að fljúga á þann hátt. Þeir flugu yfir París. Og enn fyrr höfðu menn látið sig dreyma um að svífa um loftin blá. Til er teikning eftir Leonardo da Vinci, sem talið er að hann hafi gert um árið 1500, og sýnir eins konar þyrilvængju „Ornithopter“ sem stýra átti með hönd- um og fótum. Þá eru til teikningar af loftbelgjum með seglum og menn voru óþreytandi við að teikna og reyna hin margvíslegustu og furðulegustu flug- tæki. Árið 1851 smíðaði franskur mað- ur, Henri Giffard, fyrsta hreyfilinn til að knýja áfram mannað flugtæki. Það var 3ja hestafla gufuvél, og í septem- ber 1852 tókst Giffard að fljúga vél- knúnu loftskipi frá París til Trappes, _ en flughraðinn var aðeins um 10 km á klukkustund. Eftir það komu full- komnari gerðir hreyfla og fyrstir urðu Wright-bræður til að smíða vélflugu, sem hafði nægan kfaft til að lyfta sjálfri sér og flugmanninum frá jörðu. Til að þetta mætti takast, hafði mikl- um svita, blóði og tárum verið úthellt. — Upp frá þessu urðu framfarirnar örar og þegar í heimstyrjöldinni fyrri gegndu flugvélar mikilvægu hlutverki. í maí 1927 fór Lindberg yfir Atlants- hafið, frá New York til Parísar á eins hreyfiis flugvél „Spirit of St. Louis“ og síðan rak hvert flugafrekið annað. Fyr- ir og í síðari heimstyrjöldinni urðu framfarir í smíði flugvéla stórstígar og upp úr því hófst þotuöldin. Nú hillir undir flugvélar, sem flutt geta hundruð farþega með allt að þreföldum hraða hljóðsins. í dag beinist athygli vísindamanna og flugvélaverkfræðinga einkum að gerð stærri og hraðfleygari farþegavéla, öflugri og langfleygari orrustu- og sprengjuflugvéla og síðast en ekki sizt flugvéla, sem geta hafið sig lóðrétt til flugs. (Það er flugvélar, sem ekki þurfa flugbraut til flugtaks eða lendinga.) Hafa margar hugmyndir komið fram í þeim efnum og nokkrar slíkar flug- vélar smíðaðar, en flestar þeirra hafa brugðist vonum höfundanna. Fyrir nokkrum árum fæddist í huga ungs íslendings hugmynd að flugvél, eða flugtæki, sem hafið gæti sig lóðrétt til flugs, en glataði þó í engu eiginleik- um venjulegrar flugvélar. Flestir Is- lendingar munu kunna nokkur deili á þessum manni og tilraunum hans, enda hafa dagblöðin af og til birt frásagnir af honum og erlendum flugvélaverk- smiðjum. sem hafa óskað eftir sam- vinnu við hann. Um þessar mundir er verulegur skriður að komast á fram- kvæmdir hugmynda hans, og fyrir nokkrum dögum ræddi Fálkinn við þennan uppfinningamann. Heitir hann Einar Einarsson og er Vestmannaeying- ur að uppruna. Áður en við snerum okkur að umræðuefninu, sýndi Einar FALKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.