Fálkinn - 31.01.1966, Side 25
vitleysu og svo kann að vera um fleira.“
Þetta var frásögn Einars Einarsson-
ar. Hér á þessum síðum eru teikningar
af flugvélum, sem Einar hefur gert,
svo og myndir af flugvélarlíkani eftir
hann. Nú er það vafamál hvort les-
endur Fálkans geta nokkra ályktun af
því dregið á hvaða hátt flugeiginleikar
þessara véla eru frábrugðnir flugeigin-
leikum annarra véla. Hins vegar má
það ljóst vera, að útlit þessara flug-
véla er öðruvísi en útlit þeirra véla,
sem við sjáum daglega á lofti. Kostir
þeirra eru þó auðsæir. ef útreikningar
Einars komast klakklaust gegnum hin
erfiðu próf, sem nú standa yfir og
framundan eru. Verði niðurstaðan hag-
stæð er ekkert líklegra en að einn
góðan veðurdag setjist þú, lesandi góð-
ur, upp í flugvél, sem hefur sig lóð-
rétt til flugs af litlu torgi, og þú getir
með nokkru stolti sagt við sjálfan þig:
Hugmyndina að þessari vél átti íslend-
ingur. — Það er margt skrýtið í kýr-
hausnum, eins og kerlingin sagði, og
ævintýri gerast enn í dag. En ljúkum
Einar við flugbílinn sem hann smíðaði
til að sanna kenningu sína. Hér sést
bíllinn takast á loft.
þessu með orðum annars mannsins frá
Hawker Siddeley-verksviðjunum, sem
sá teikningar Einars, og sagði: „Þetta
er það sem koma skal.“
FALKINN
25