Fálkinn - 07.02.1966, Síða 7
Þær eru tvö hundruS tuttugu
og fimm stúlkurnar sem stunda
nám í Kvennaskólanum í Reykja-
vík, þeirri virSuIegu stofnun. Því
miSur komst ekki allur hinn fríSi
hópur fyrir á myndunum, en hér
sjáið þið nokkra aSlaðandi full-
trúa ungu kynslóðarinnar við
nám, störf og skemmtanir. Á
stóru myndinni til vinstri sést um-
sjónarstúlka skólans Guðrún Er-
lendsdóttir, sem jafnframt er
hringjari í vetur. Hún er í IV.
bekk Z. Á myndinni hér fyrir
ofan gægjumst við inn í tíma hjá
IV. C í verklegri hjúkrun. Kenn-
arinn, frú Guðrún Briem, aðstoð-
ar Onnu Indriðadóttur við að
baða dúkkuna, en hinar fylgjast
með af áliuga. I frernri röð frá
vinstri: Valgerður Ingimarsdóttir,
Sigríður Ólafsdóttir og Rut Árna-
dóttir. í aftari röð: Hjördís Jafets-
dóttir. Bjarney Valdimarsdóttir
(bak við Önnu), Kolbrún Hilmars-
dóttir, Kristín Ólafsdóttir og Sig-
ríður Ingvarsdóttir. Myndin hér
til hliðar er tekin í stærðfræði-
tíma IV. C hjá Þorvarði Örnólfs-
syni. Við töfluna stendur Asta
Bára Jónsdóttir, og vonandi verð-
ur dæmið rétt reiknað þrátt fyrir
allar truflanir.
FÁLKINN
1