Fálkinn - 07.02.1966, Side 14
«
Margt er sameiginlegt með
Japúnum og íslendingum
Samtal við frú Ernu Ounnarsdóttur
Myndir frá Japan:
ERNA GUNNARSDÓTTIR.
Texti:
STEINUNN S. BRIEM.
Heimilið er skemmtilegt
sambland af austri og
vestri, japanskir húsmun-
ir og ýmsir fagrir gripir
frá austurlöndum fjœr
fara mœtavel við vest-
rœna tilhögun að öðru
leyti. Börnin tala jap-
önsku betur en íslenzku
og ensku bezt af öllu,
en það er ekki dropi af
japönsku blóði í œðum
þeirra, heldur eru þau
íslenzk í móðurœtt og
vestur-íslenzk í föðurœtt.
Fjölskyldan kom heim
til íslands sl. ágúst eftir
nœstum þriggja og hálfs
árs dvöl í Tókíó, en til
allrar hamingju er hús-
freyjan samt ekki orðin
svo japönsk í sér, að hún
láti gestina krjúpa á
hnjánum á þunnum gólf-
púðum í stað þess að
sitja í stólum á vestrœna
vísu.
FRÚ Erna Gunnarsdóttir er
hávaxin kona og björt yfir-
litum, hressileg í viðmóti og
óþviriguð. Hún er dóttir frú
Jónínu Jónsdóttur og Gunn-
ars Einarssonar forstjóra bóka-
útgáfunnar Leifturs, og það er
eitthvað í ákveðnum svip henn-
ar og glaðlegri framkomunni
sem minnir ótvírætt á pabbann.
Eiginmaður hennar, Franklin
John Ásmundsson, er frá Lang-
don í Norður-Dakota, Banda-
ríkjunum, fæddur í Kanada,
en alíslenzkur í báðar ættir.
Þau hafa verið erlendis um tíu
ára skeið og eru nú komin
heim aftur ásamt fjórum börn-
um, sennilega alkomin.
Kynntust
í síma
„Hvernig kynntuzt þið upp-
haflega?“
„Ja, ég kynntist honum þegar
ég var tæp tvö ár í Bandaríkj-
unum og bjó hjá íslenzkum
hjónum skammt fyrir utan
Chicago, þ. e. a. s. ég hitti hann
aldrei, en við töluðumst stund-
um við í síma. Svo kom hann
hingað árið 1950, og ég var í
boði hjá bandaríska sendiráð-
inu þegar mér var sagt, að hér
væri maður sem langaði að
heilsa upp á mig. Það var þá
Franklin, en við þekktumst
ekki í sjón, þó að við værum
beztu kunningjar eftir síma-
samtölin okkar. Við giftum
okkur árið 1951, og hann hef-
ur verið á íslandi i fjögur og
hálft ár og kann vel við sig
hérna.“
„Hefur hann farið víða um
landið?"
14 FÁLKINN
Hér er Erna að sýna stöngina sem hún studdi sig við
þegar hún gekk upp á fjallið Fuji. Flaggið er hin rís-
andi sól.