Fálkinn - 07.02.1966, Side 22
18 KONUR 06
MAREAR MILJÓWIR
MEÐAL hinna blásnauðu, þeldökku milljóna í Suður-
Afríku er draga fram lífið að kalla má við vatn og bi auð
lifir dularfullur maður, margmilljónari sem sjálfur veit
ekki aura sinna tal þó að allir aðrir virðist vita það.
Hann er sjálfsagt meðal hinna meiri auðjöfra í heim-
inum.
Khotson Sethuntsa er töfralæknir. Hann stundar störf
sín úti um allt og á alls staðar ítök.
Faðir hans var ekill hjá Paul Kruger forseta fyrir
Búastríðið. Og þar af rís ein ráðgátan sem stendur í
sambandi við þennan undarlega mann. Hefur honum
tekist að krækja í verulegan hluta af Krugermilljónun-
um svokölluðu, fjársjóði, afskaplega vermætum. sem
talið er að hinn aldni Búaforseti hafi fcrlgið einhvers
staðar? Þetta er álit sumra, því að fyrir utan stórt safn
af demöntum sem Khotso hefur til sýnis í innganginum
að höll sinni er oft talað um undarlega atburði í sam-
bandi við flóð í Austur-Pondolandi fyrir nokkrum árum.
Tíu innsiglaðir mjólkurbrúsar skoluðust á brott með
flóðinu, og Khotso bauð 1000 sterlingspund í fundar-
laun fyrir hvern þeirra er til hans yrði fluttur með
órofið innsigli. Engum var skilað, og mikið var talað
um innihald þeirra sem varla hefur verið mjólk.
1911 byrjaði Khotso að selja töfragripi, samtímis því
sem hann hóf að festa nokkuð af fé sínu í bönkum,
tryggingarfélögum, byggingarfyrirtækjum o. fl. Hann
hefur engan ráðunaut. „Khotso veit allt,“ segir hann.
1920 var hann kominn í röð hæstu skattgreiðenda.
Hann hefur um 200 sölumenn á ferðum til að selja
töfragripi. Er bæði selt beint til neytenda og í verzlanir
blökkumannanna. Slönguskinn, duft búið til úr ostru-
eggjum, og töfrajurtir fást með afborgunum ef þarf, og
verðið er alltaf frá 5 shillingum upp í 200 pund. Hann
hefur einnig meðal til að vekja menn upp frá dauðum.
Það kvað hafa bjargað honum sjálfum 1924. En enginn
hefur keypt það. „Verðið er of hátt,“ segir hann
í dag rekur Khotso 41 búgarð og græðir vel á þeim.