Fálkinn - 07.02.1966, Page 29
að sakast nema forlögin, og þau
höfðu verið Aiku jafn miskunn-
arlaus og karlmönnunum, sem
orðið höfðu óhamingjusamir
hennar vegna; ef til vill hafði
hún þjáðst enn meir.
Chiang færði sig til dyra; það
væri að líkindum bezt að skilja
herra Yee eftir einan. „Herra
Yee,“ sagði hann,“ ég er á för-
um aftur til Monterey. Ég vil að
þú vitir að ég innleysti ekki
ekki ávísunina frá þér.“ Herra
Yee sat kyrr sem áður, með
hendurnar fyrir andlitinu og
mælti ekki orð af vörum, en
hann var hættur að kjökra. Chi-
ang flýtti sér út úr skrifstof-
unni.
Hann ákvað að yfirgefa borg-
ina eins fljótt og mögulegt væri;
hann gat varla hugsað til þess
að dvelja í San Francisco jafn-
vel eina nótt í viðbót. Þegar
hann kom til gistihússins,
hringdi hann til frú Wang og
sagði henni, að hann þyrfti að
fara úr borginni umsvifalaust.
Til þess að forðast spurningar
sagði hann, að sér hefðu borist
fyrirmæli um að mæta til vinnu
á mánudag í stað miðvikudags
og bað hana um að senda sér
öll bréf i skólann. Síðan sótti
hann bílinn sinn, fór inn og lét
niður í töskurnar og borgaði
reikninginn. „Ertu að fara svona
allt í einu?“ spurði ítalski ráðs-
maðurinn undrandi.
„Já,“ svaraði Chiang, og reyndi
að vera glaðlegur. „En ég kem
ef til vill aftur um helgar.“
„Það skaltu gera,“ sagði Burt.
„Monterey er leiðinlegur bær á
vetrum. Ég veit það. Ég hef
verið þar. Komdu aftur, ég skal
hafa laust gott herbergi handa
þér.“ Chiang þakkaði honum
fyrir og Burt hjálpaði honum að
bera farangurinn út í bílinn.
Hann vonaði að eiga aldrei eftir
að stíga fæti í þetta litla gisti-
hús; hann mundi reyna að forð-
ast hvern þann stað, sem gæti
minnt hann á fundi sína með
Aiku. Hann yrði að reyna að
gleyma henni algjörlega og
byrja nýtt líf.
Hann ók út á Van Ness breið-
götuna og nam staðar við Shell-
stöð. Meðan afgreiðslumaðurinn
fyllti benzingeymi hans, reyndi
hann að leggja niður fyrir sér
hvert halda skyldi. Hann ætlaði
að fara fyrst til Santa Cruz og
vera þar um nóttina, liggja á
ströndinni allan sunnudaginn og
^eggja af stað til Salinas á mánu-
dag. Hann ætlaði að vera þriðju-
daginn í Salinas en þaðan var
aðeins klukkustundar akstur til
Monterey. Hann gæti haft tím-
ann fyrir sér á miðvikudag og
mætt til vinnu fyrir klukkan
tíu um morguninn.
Hann valdi leið 101. Umferðin
Var mikil á hinum breiða þjóð-
vegi, en hann var sléttur og
beinn. Umferðaljósin og bifreiða-
ljósin voru eins og endalaus
skrúðfylking. Hann hafði ekki
ekið þjóðveginn langalengi og
það greip hann einkennileg til-
finning þegar hann steig á benz-
ínið og ók með miklum hraða
eftir innri akreininni. Það var
eins og hraðinn vekti honum
frelsiskennd og jafnframt spenn-
ing vegna hættunnar. Hvers
vegna þennan hraðakstur? Það
hafði verið ætlun hans að fara
hægt yfir. Var hann að flýja
eitthvað án þess að vita af því?
Var hann að flýja Aiku?
Þegar hann var kominn fram-
hjá hliðarveginum, sem lá til
San José, sveigði hann út á ytri
akreinina og hægði ferðina.
fann til eins konar léttis, eins
og flóttamaður, sem er kominn
út af hættusvæði. Hann hafði
farið hundrað kílómetra á einni
klukkustund og var nærri upp-
gefinn eftir taugaþensluna. Nú
kveikti hann á útvarpinu, hall-
aði sér aftur í sætinu og reyndi
að slaka á. Hann yrði að njóta
þessarar ferðar, hugsaði hann
með sér. Hann mátti ekki láta
neitt valda sér gremju. Djöfull-
inn taki allar gamlar minningar.
Fari fortíðin norður og niður ...
Næstu fjóra daga fór allt sam-
kvæmt áætlun, en minningarn-
ar slepptu ekki af honum taki,
hvort sem hann fór hratt yfir
eða reyndi að slappa af. Á huga
hans hvíldi þung byrði, sem hann
gat ekki losnað við. Á miðviku-
dag lagði hann snemma af stað
til Monterey. Hann þráði að
taka til starfa sem fýrst. Ef til
vill gæti mikil vinna svæft til-
finningar hans. -
Aðalgatan í Monterey var
skreytt mislitum ljósum og silf-
urbjöllum. Það voru komin jól.
Skreytingarnar voru þær sömu
°g árið áður. Þegar hann ók
niður götuna, fannst honum að
árið hefði verið afar fljótt að
líða og þó svo langt. Eins og
ekki hefði liðið nema ein nótt,
en sú nótt hefði verið ein löng
martröð.
1 Monterey var allt óbreytt.
Skólinn var sá sami; þar voru
sömu andlitin, sömu bílunum var
lagt fyrir framan sömu veðruðu
byggingarnar. Sömu hljóðin og
sami ilmurinn af grenitrjánum,
sem blandaðist lykt af sardín-
um og barst til hans með hægri
sjávargolunni. Hann gekk fyrir
hina ýmsu liðsforingja i skólan-
um og fékk undirskriftir þeirra
á skilríki sín. Sömu foringjarnir
buðu hann velkominn; kunnug-
leg andlit blöstu við honum hvar-
vetna eins og hann hefði aldrei
farið burt. Hann lagði leið sína
í Mandarin deildina á hæðinni og
þar biðu hans hlýjustu kveðj-
urnar — handabönd, klapp á
herðarnar, spurningar, trúnaðar-
mál, kvöldverðarboð, skrítlur og
hneykslissögur... Samkennarar
hans töluðu við hann um heima
og geima allt þar til bjallan
hringdi. Mock liðþjálfi kom með
einhverja fyndni á hermanna-
máli sínu, sem Chiang skildi
ekki alveg, og fékk honum nokk-
ur bréf, sem frú Wang hafði
dásamleg rm.öm v
VELJID LENGD AUGNAHÁRANN/
EFTIR EIGIN GEÐÞÓTTA
Ultra* Lash er fyrsti augnaháramassinn sem undra-
mjúkt lengir augnahárin og gerir þau þykkari án þess
a3 þau stífni. Þér eruð laus við öll óþœgindi — þurfið
ekki að gera annað en smyrja Ultra* Lash á augna-
hárin með hinum undraverða DUO-TAPER bursta, sem
silkimjúkt lengir sérhvert augnahár og litar það óað-
finnanlega um leið. Það er þœgilegt, vatnsekta og
smitar ekki. Þér hreinsið hárin á augabragði með
Maybelline Mascara Remover. Þér getið valið um þrjá
töfrandi liti: VELVET BLACK (flauelssvart), SABLE
BROWN (safalabrúnt) og MIDNIGHT BLUE (mið-
nœturblátt). "
FÁLKINN 29