Fálkinn - 20.06.1966, Síða 8
f sumt
Hann heitir Albertó Fedele og er ítalskur
eins og nafnið bendir til. Um tíma tókst
honum að lifa kóngalífi á samúð alls heims-
ins, en svo var hann dæmdur í sex ára
fangelsi fyrir svindlbrask. Hann hóf feril
sinn fyrir 12 árum í litlum bæ í nágrenni
Napólíborgar, þar sem hann varð gjald-
þrota og flýði undan skuldheimtumönnun-
um til afskekkts staðar annars staðar á
Ítalíu. Hann komst fljótlega að því að íbú-
arnir þar voru mjög trúaðir og nú brá
svo við að stytta ein af heilagri Maríu
tók upp á því að gráta blóði, en aðeíns
þegar Alberto var viðstaddur með tómat-
sósuna sina. Ekki tókst honum að leika
á fólkið nema nokkurn tíma og varð að
flýja aftur, í þetta sinn til Napólí. Þar
datt honum snjallræði í hug. Hann lét
leggja sig inn á spítala og tókst að sann
færa Iæknana um að hann væri alvarlega
veikur. Síðan falsaði hann skjal með undir-
skriftum tveggja valinkunnra vísinda;
manna, þar sem þeir staðfestu að maður-i
inn þjáðist af ólæknandi krabbameini og!
ætti ekki nema nokkra mánuði eftir. Þessu
kom hann á framfæri við blöðin og bar
sig um leið mjög mannalega, þrátt fyrir
„sjúkdóminn“. Ekki leið á löngu áður, en
peningar og alls konar gjafir fóru að ber-;
ast í stríðum straumum, til að létta hon-
um stutta hérvist. Synir hans tveir nutu!
líka góðs af, því að þeir komust að við
góða háskóla á ríflegum styrkjum. Þær
gjafir, sem ekki voru í peninguin seldi
faðirinn jafnóðum. En auðvitað gat þetta
ekki gengið til lengdar og þessi heims-
frægi krabbameinssjúklingur var afhjúp-
aður sem stórsvikari. Þegar hann hafði;
afplánað refsingu sína, gerðist hann píanó-
leikari á krá einni í Napólí og þar er
hann enn. Myndirnar sýna Alberto við
píanóið, á leiðinni í réttarsalinn umkringd-
an glottandi lögregluþjónum og á þriðju
myndinni er umferðasirkus að stytta hon-;
um stundir með sýningu fyrir utan glugg-,
ann á íbúðinni hans. Því má og bæta við
að meðan hann hékk í hlutverkinu, voru
sjúkrabílar á þönum með hann á alls kon-;
ar sýningar og kappleiki og hann aflaði
sér mikillar samúðar með þvi að kunn-
gera að hann arfleiddi einhvern blindan
mann að augum sínum þegar hann dæi úr
„krabbanum“.
8 FALKINN