Fálkinn - 20.06.1966, Side 12
ANDLIT ARSINS 1966
Kvenleg fegurð hefur fengið nýjan
fulltrúa, 18 ára enska stúlku, Belindu
Willis.
Skyndiframi hennar sem Ijósmynda-
fyrirsætu sýnir að hinn ögrandi kyn-
þokki hefur vikið fyrir ástleitni.
Athygli tizkuljósmyndara, umboðs-
fólks fyrirsæta og auglýsingaskrifstofa
beinist nú alls staðar að sama atriðinu:
Kvenlegum yndisþokka. Líta ekki við
yfirdrifnum kynþokkamerkjum eins og
barmi sem virðist vera að vella upp
úr hálsmálinu, fussa að kvenpersónum
se!m minna á grimma ketti og safaiaus-
um baunastöngum til þess að hengja
föt á. Þeir hafa snúið sér að hinni
„sönnu konu“.
Hin sanna kona, sem sameinar allt
það sem hinir sérfróðu menn í tízku-
heiminum sækjast eftir, er nýorðin 18
ára. Hún heitir Belinda Willis, og það
er ekki lengra en ár síðan hún sat enn
á skólabekk í enskum heimavistarskóla.
Eina metnaðarmál hennar þá var að fá
sem mest af sem beztum einkunnum í
einkunnabókina sína — til þess að gera
pabba ánægðan. Hann er hluthafi í
hinu gamaltrausta tryggingafyrirtæki
„Lloyds“ og metur traustleika og heiðar-
leika mest allra dyggða.
Belinda Willis olli föður sínum ekki
vonbrigðum, þegar hún kom heim með
prófskírteinið sitt, síður en svo. Að
prófi loknu sveittist hún við að æfa sig
á ritvél og læra hraðritun á einkaritara-
námskeiði. Þangað til að því kom sið-
astliðið haust, að hún hafði fengið sig
fullsadda á þessu skrifstofustússi —
yfir sig sadda.
Þá ákvað Belinda Willis að verða
fyrirsæta. Forsíðustjarna, tízkuhúsa- og
tízkublaðast j arna.
Slíka hluti er auðvelt að ákveða, en
ekki að sama skapi auðvelt að fram-
kvæma. Eða svo er sagt. Stúlkubarnið
Belinda settist einfaldlega upp í járn-
brautarlest og lagði af stað til Parísar.
Þegar þangað kom, marséraði hún beint
inn á skrifstofu Eileen Ford, hinnar
þekktu umboðskonu ljósmyndafyrir-
sæta, án meðmælabréfa eða nokkurs
viðbúnaðár. Nei, ekki án alls viðbún-
aðar, því að áður en hún fór til Eileen
12
FALKINN