Fálkinn - 20.06.1966, Síða 13
^ Belinda á heimili sínu. Faðir henn-
ar er auðugur hluthafi í trygg-
ingafyrirtæki.
^ Rómantísk augu, heitar varir.
Ástargyðjan og hefðarkonan í
einni persónu. — Belinda Willis.
Eina hindrunin á framabrautinni —
mamma Belindu. — Ef hún hefði sagt
nei, væri ég ekki ljósmyndafyrir-
T sæta núna.
Ford, hafði hún fengið móður sína til
að leggja blessun sína yfir fyrirætlanir
hennar. Vegna þess að, —eins og Be-
linda segir: — án samþykkis hennar
hefði ég aldrei lagt út í þetta. Fjöl-
skylda mín er mér mjög mikils virði.
Eileen Ford sú sem uppgötvaði m. a.
rauðhærðu fegurðar- og kvikmyndadís-
ina Suzy Parker þurfti ekki að hugsa
sig um nema augnablik í bókstaflegum
skilningi. Svo gerði hún samning við
Belindu um Ameríkuferð.
Eileen Ford segir: — Belinda er æs-
andi. Hún hreinlega iðar öll af lífi, og
það geislar af henni einhver dulin ögr-
un. Hún er persónugervingur þeirra
kvenlegu eiginleika, sem eftirsóttastir
eru í Ameríku um þessar mundir, en
þeir felast í orðunum „ung, ensk hefð-
arkona“. Ef Belinda settist að í Ame-
ríku, gæti hún náð miklum frama.
En Belinda Willis vildi aðeins selja
útlit sitt, en ekki allt sitt líf — ekki
sál sína. Þess er heldur engin þörf af
fjárhagsástæðum. Það gefur nokkra
hugmynd um efni föður henhar, að
þegar hann gerðist aðili að Lloyds fyrir-
tækinu, voru það meira en 10 milljónir
sem hann varð að greiða í ábyrgðarfé.
Hin fagra dóttir hans segir okkur, að
hún hafi sinn eigin framkvæmdastjóra
í Englandi, sem stjórnar umboðsmönn-
um og ljósmyndurum í hennar þjón-
ustu. — Myndir af mér eru ekki ein-
ungis á auglýsingasíðum, heldur einnig
með lesefni blaðanna, segir Belinda.
Hún situr andspænis okkur á litlu kaffi-
húsi í London. Hún ber með sér rólegt
sjálfsöryggi, gott uppeldi og geislar af
kvenlegum yndisþokka. Vöxturinn er
grannur og svo nettur að okkur finnst
hún hálf brothætt. Andlitið hefur þá
töfra, sem karlmannsaugu eiga erfitt
með að slíta sig frá, hvort sem athyglin
Hún hefur ckkert á móti fót-
leggjum.
beinist að stórum leyndardómsfullum
augum eða boglínunni á neðri vörinni.
Kynþokkinn með hinni beinu skíi>
skotun til kynlífsins er búinn að vera.
Kvenlegur þokki samfara ástleitni er
það sem koma skal — segja þeir sem
fróðastir eru, og það má líka sjá á hinní
skjótu frægð Belindu Willis.
Hún telur frægð sína ekki eingöngu
fegurð sinni að þakka. Margar stúlkur
eru fallegar. En Belinda hefur rétta út-
litsfegurð á réttum tíma. Hennar kven-
gerð hefur lengi ekki átt upp á pall-
borðið hjá tízkuheiminum, en í dag er
hún það sem allir vilja sjá. „Baby Doll“,
hvíthærðar kynbombur og renglulegar
krakkastelpur hafa gengið eins og heii>-
ar lummur. Nú verður konan að hafa
„stíl“.
Framh. á bls. 38.
FÁLKINN 13