Fálkinn - 20.06.1966, Blaðsíða 17
ég gæti ekki lagt annað eins
á mig aftur. Ég hreint og
beint þyldi það ekki heilsu
minnar vegna.
Var það afi yðar seni sendi
yður til Harvard?
Já. Ég hafði sjálfur valið
MIT (Massachusetts Insti-
tute of Technology).
Vissuð þér þá, að þér átt
uð að taka við tign afa yðar?
Nei. Enginn veit hver
Verður næsti Aga Khan
þangað til lesin er upp erfða-
skrá Imamsins. Afi minn
hafði búið okkur alla undir
að taka við, föður minn,
föðurbróður, bróður og mig.
Enginn okkar vissi hver
yrði fyrir valinu.
Er það rétt, að trúarbrögð
Ismailíta séu eins konar dul-
speki að því leyti, að ein-
ungis lærisveinar og hinir
útvöldu fræðarar lesi helgi-
ritin sem hafa að geymá
kjarna trúarinnár og lykil
að launungunum?
Já, það stendur heima.
Og teljið þér yður sér-
fræðing á þessu sviði?
Vissulega. Afi minn sá til
þess, að við fengjum full-
komna fræðslu varðandi
innsta kjarna trúarinnar.
Ef þér hefðuð ekki orðið
Aga Khan, haldið þér þá,
að þér hefðuð orðið góður
kaupsýslumaður eða verk-
fræðingur?
Ég get ómögulega sagt um
það. Þetta er starf mitt, og
ég hugsa ekki um annað á
rheðan. Allavega er ég ekki
nema tuttugu og átta ára
gamall, og ég get átt eftir
að breytast mikið í smekk
og tilhneigingum.
Hvort kunnið þér betur
við yður í Austurlöndum eða
V.esturlöndum?
Austurlöndum. En ég verð
að dveljast hér til að læra
það sem Vesturlandabúar
géta kennt okkur Austur-
landabúum. Auk þess er
náuðsynlegt, að ég haldi
mig í vissri fjarlægð frá
Ismailítum.
Finnst yður vestræn
nienntun nokkurn tíma
stríða gegn kenningum trú-
ar yðar?
! Já.
Hvernig leysið þér það
vandamál? Ef þetta tvennt
er í andstöðu hvort við ann-
að, hvort verður þá yfir-
sferkara í huga yðar?
Eg er ekki gefinn fyrir
alhæfingar. Það er ýmist.
Hvað finnst yður erfiðast
að sainræma þegar tr.ú. yðar
, er annars .vegar og vestrænn
hugsunarháttur hins végar?
Trú okkar, Islam, er
lífsleið, ekki trúarjátning.
Þetta er kannski gatslitið
orðatiltæki, en það er satt
engu að síður. En ef við
viljum færa lífshætti okkar
í nútímalegra horf verðum
við að aðlaga okkur gerólík-
,um siðum og venjum. Ismai-
lítar geta valið á milli hins
austræna kommúnisma —
en það myndi þýða afneitun
trúarinnar — og hins vest-
ræna hugsunarháttar sem
byggist á allt öðrum sjón-
armiðum, jafnt veraldleg-
um sem trúarlegum, en
okkar menning. Þér getið
ímyndað yður, að við hik-
um við að líkja of nákvæm-
lega eftir siðmenningu sem
myndi hafa neikvæð áhrif
á trúarlíf okkar ef við tækj-
um upp siði henhar, jáfn-
vel þótt lífsskilyrði vest-
rænna þjóða séu að minnsta
kosti tuttugu árum á undan
okkur hvað snertir þægindi,
spítala, gatnagerð o. s. frv.
Valið er örðugt: annað hvort
þurfum við að taka upp siði
og lífsviðhorf sem örva
efnahagslega uppbyggingu
en eru gagnstæð kenning-
um trúar okkar, eða við
verðum að halda fast við
okkar gömlu hefð sem seink-
ar öllum efnahagslegum
framförum.
Hafið þér aldrei haft nein-
ar efasemdir um gildi trúar
yðar?
Nei, aldrei eitt augnablik.
Hvað eru margir Ismailít-
ar í Afríku?
Ég veit það ekki nákvæm-
lega. Það eru talsverðir
flutningar til og frá, og við
gerum engar manntals-
skýrslur. Ég geri ráð fyrir,
að Ismailítar í Afríku séu
eitthvað milli sjö hundruð
og fimmtíu þúsunda og einn-
ar milljónar. En kannski
eru þeir fleiri en það.
Ef Ismailítar hugsuðu sér
að setjast að í t. d. Bretlandi
eða Bandaríkjunum myndu
þeir lenda í harðri sam-
kcppni efnahagslega, en í
Afríku standa þeir sennilega
betur að vígi en innfæddir
bæði hvað viðvíkur . tækni-
menntun og fjármálaviti.
Þar hafa þeir því betri tæki-
færi til að auðgast. Hafið
þér athugað þetta sjónar-
mið? Eða er spurningin of
nærgöngul?
Alls ekki. Já, við gerum
okkur þetta mætavel ljóst.
Á hinn bóginn hafa margir
Ismailítar setzt að á Vestur-
löndum og gengið ágætlega
að koma sér áfram.
Pólitískt séð eruð þið Ism-
ailítar í einkennilegri að-
stöðu í Afríku. Þið eruð
dreifðir um mörg ríki sem
hafa sitt hvert stjórnskipu-
lagið.
Það er satt. Sjálfur blanda
ég mér aldrei í staðbundnar
pólitískar deilur, en Ismai-
lítum er að sjálfsögðu frjálst
að hafa sínar stjórnmála-
skoðanir. En þeir ráða engu
um stjórnmálastefnu hvers
ríkis og reyna aldrei að
steypa neinni stjórn og koma
annarri að. Meðan þeir
hafa fullt trúfrelsi og venju-
leg mannréttindi eru þeir
ánægðir; annars flytja þeir
úr landinu með allt sitt fjár-
magn og setjast að í öðru
ríki þar sem engar hömlur
eru lagðar á trúfrelsi þeirra.
Og flytja þeir úr landi ef
þér ráðleggið þeim það?
'Já.
Getið þér nefnt dæmi?
Fyrir nokkrum árum var
Ismailítum ráðlagt að flytj-
ast á brott frá Suður-Afríku.
Var það af siðferðislegum
eða efnahagslegum ástæð-
um?
Siðferðislegum. Við erum
algerlega á móti kynþátta-
legu misrétti í hvaða mynd
sem er. Ef ég hefði verið
viss um, að allir þegnar
Suður-Afríku fengju að
njóta sömu réttinda, myndi
ég hiklaust hafa ráðlagt
Ismailitum að dveljast þar
um kyrrt í lengstu lög. Efna-
hagur ríkisins er traustur.
En fyrir hverja? Ekki fyrir
austræna kaupsýslumenn.
Þeir fá ekki sömu tækifærin
og hvítir menn, og það er
aðeins vegna þess að hör-
und þeirra er öðruvísi á lit-
inn. Þess vegna tók ég
ákvörðun , mína fyrst og
fremst af siðferðislegum
ástæðum, en með hliðsjón
af efnahagslegri fr.amtíð Is-
mailíta í landinu.
Fyrst við erum farnir að
tala um kynþáttalega for-
dóma — hvert er álit yðar
á Black Muslim stefnunni
meðal bandarískra blökku-
manna? Er það ekki kyn-
þáttaleg hreyfing?
Þeirri spurningu er vandi
að svara. Við Ismailítar höf-
um ekki tekið neina afstöðu
til trúar þeirra. Kóraninn
segir, að enginn Múhameðs-
trúarmaður megi leggja dóm
á trú annars Múhameðstrú-
armanns. Bláck Muslim
stefnan var ekki til sem
pólitísk hreyfing þegar ég
fór frá Bandaríkjunum. En
ég gæti trúað, að útbreiðsla
hennar hafi v'axið svona ört
vegna þess að Islam er trú
sem byggist á jafnrétti allra
manna og er því huggun og
hughreysting kúguðum þjóð-
um og kynþáttum.
Farið þér oft til Afríku?
Já, mjög oft.
Hvað viljið þér segja um
Indland og Pakistan?
Meðan styrjöldin milli
landanna stóð yfir var
ástandið mjög alvarlegt, og
það er það enn. Meira vil
ég ekki segja.
Getið þér sem leiðtogi
Múhameðstrúarmanna í báð-
um löndunum haft nókkra
milligöngu um sættir?
Möguleikarnir eru því
miður ákaflega litlir. , Ég
held satt að segja, að. deil-
urnar milli þessara tveggja
landa séu orðnar illleysan-
legur hnútur. Það er lítill
sem enginn samkomulags-
vilji lengur.
Hafa Ismailítarnir lént í
þessari styrrjöld?
Já.
Eru þeir herskáir í eðli
sínu?
Nei, þvert á móti. Þeir
eru sérstaklega friðsamir.
Þér eruð lánsamur þjóð-
Iiöfðingi að þurfa scnnilega
aldrei að leiða þegna yðar
út í styrjöld.
Já, það er ég.
Eruð þér ánægður með
lífið þrátt fyrir þá miklu
ábyrgð sem á yður hvílir?
Já. Ég er mjög ánægður.
Starf mitt er mér mikils
virði. Það var erfitt í fyrstu,
en ég er farinn að venjast
því að leggja hart að mér.
Og það hefur fært mér innri
hamingju — lífsfyllingu. ★
Sjúklingurinn: — Hve
mikið skulda ég yður fyrir
lækninguna á heyrnárleys-
inu?
Læknir: — Það verða 50
krónur.
Sjúkl.: — Ha, 70 krónur.
Læknir: — Nei — 100
krópur.
Ríki maðurinn segir við
tilvonandi tengdason sinn:
— Ég vona að þú metir það
mikils, að hún Ingibjörg er
viðmótsþýð og hjartagóð
stúlka.
— Það geri ég, svaraði
tengdasonurinn. — Og ég
vona að hún hafi það frá
honum föður sinum.
FÁUKINN 17