Fálkinn


Fálkinn - 20.06.1966, Page 22

Fálkinn - 20.06.1966, Page 22
8. hluti Þetta kvöld var ekkert sím- samtal við Milano. Hún var á fótum til miðnaettis og beið, en síminn þagði. Loks dró hún ábreiðurnar af rúminu og lagði sig. Um stund lá hún og reyndi að ímynda sér Lars í hinu rúminu. Hún reyndi að tala við hann, en ímyndunarafl hennar veitti henni ekkert svar. Herbergið virtist óendanlega stórt og hún var mjög einmana. Að lokum féll hún í eins kon- ar éráðsdvala, fullan af kynja- draumum þar sem Lárs og Proehega voru orðnir að einum og sama manni. Hún hentist í sífellu milli Stokkhólms og snjó- sléttunnar uppi á fjallinu, hún sat í þunnum náttkjól á kletta- syllunni i gljúfrinu, og fyrir framan hana stóð Proehega i svörtum einkennisbúningi með siifraðan og þó lifandi örn á höfðinu og miðaði á hana marg- hleypunni... Um fimmleytið um morguninn vaknaði hún með hræðilegar þrautir í kviðarholinu. Er hún kom niður til morgunverðar var hún föl og magnlaus og kona gestgjafans réðst á hana eins og heilbrigðisfulltrúi: — Ungfrú Rosenberg, þér eruð veik. Hvað hefur komið fyrir? Hún færðist undan að svara eldri konunni en kvartaði óljóst um magaverki. — Þér skuluð tala við hann herra Meyer okkar, sagði konan. Hann getur hjálpað yður. — Er hann læknir? Ég er barnalega hrædd við lækna. Konan hristi höfuðið og hló uppörvandi. — Herra Meyer er enginn læknir, aðeins mjög vitur maður. Það sem læknarnir ráða ekki við, getur herra Meyer læknað með sínum óbrotnu lyfjum. — Ég er líka hrædd við töfra- menn, sagði Grete og færðist enn undan. Það var djúp alvara í augum eldri konunnar, er hún sagði: — Herra Meyer er mjög vitur maður. Þér ættuð að tala við hann. Aldos getur ekið yður þangað upp eftir í snjósleðan- um eftir morgunverðinn. Grete vildi ekki sýna slíkri velvild frekari mótþróa, og eftir morgunverðinn settist hún í snjó- sleðann. Aldos var Itali sem sá um hitapönnuna fór smásendi- ferðir fyrir gestina, en gerði annars flest sem honum datt i hug. Hann var augsýnilega mjög hrifinn af að aka snjósleðanum, og þau þutu af stað niður í dal- inn og upp hlíðina hinum megin. Skröltandi ökutækið sniglaðist upp eftir krókóttum stíg og nam staðar fyrir utan bjálkahús, sem hefði haft stórkostlegt útsýni yfir dalinn ef það hefði ekki ver- ið hálffalið bak við hávaxin grenitré. Herra Meyer kom út I fylgd með úlfhundi, sem gelti hástöf- um, en hundurinn þagnaði strax við stuttorða skipun frá hús- bónda sínum. Grete var boðið inn fyrir. Mót- tökuherbergi herra Meyers var miklu líkara bókastofu en lækn- ingastofu. Erfitt var að geta sér til um aldur hans, en eftir silfr- uðum gagnaugunum að dæma virtist hann vera rúmlega fimm- tugur. — Hvað get ég gert fyrir yður? Hann sýndi aðeins hóflegan áhuga á máiefnum hennar, en það gerði henni auðveldara um vik. Hún kynnti sig og skýrði honum í stuttu máli frá hinum sífelldu verkjaköstum sinum og frá örinu sem hún hafði á mag- anum. Herra Meyer hlustaði þögull og þegar hún hafði lokið máli sínu, sagði hann aðeins: — Ég get ekki orðið yður að liði, ungfrú Rosenberg. Þér þurf- ið að gangast undir allsherjar rannsókn á sjúkrahúsi. Ég legg til að þér farið til Chur. Þar í kantónusjúkrasúsinu er mjög fær kvensjúkdómalæknir. Hún heitir frú Weisenfeld. Hún getur hjálpað yður. Ég get það ekki. Herra Meyer kveikti sér í pípu og leit á hana rannsóknaraug- um. — Ég fer ekki oft niður í bæinn, sagði hann, en af til- viljun var ég þar í gærkvöldi. Þá heyrði ég rætt um slys, sem orðið hafði uppi á hásléttunni hinum megin við dalinn. Þar sem þér sögðuð mér nafn yðar, verð- ur mér á að spyrja: Voruð það þér, sem voruð í lífshættu þarna i gljúfrinu ásamt einhverjum manni, sem ég man ekki nafn- ið á? — Senor Prochega. Já, það var ég. — Proehega, endurtók Meyer með sjálfum sér. Prochega — nei, það nafn kannast ég ekki við. Hann stóð upp. — Leitið til doktor Weisenfeld í Chur, sagði hann og tók í höndina á Grete. Þér fáið ekki betri hjálp! Þegar Aldos stýrði snjósleðan- um niður í dalinn, hafði Grete þegar tekið ákvörðun. Klukkan tólf steig hún upp i áætlunar- bílinn, og klukkan fjögur sat hún í biðstofunni og reyndi að bæla níður óróleika sinn fyrir fundinn við doktor Weisenfeld. En enda þótt læknirinn væri kona, fann hún hinn gamla ótta sinn við hvita læknasloppa eins og kalda greip um kverkarnar. Eða var það ef til vill ekki mað- urinn i hvíta sloppnum, sem hún óttaðist, heldur úrskurðurinn sem hún kveið fyrir en myndi alltaf fá að heyra? 9. KAFLI. Lars Stenfeldt kom með áætl- unarbilnum tveim dögum síðar en áætlað var. Til hins síðasta hafði hann vonað að Grete myndi standa við vegarbrúnina og bíða eftir honum, en hún var þar 1ÍRJ3NNIMERKT 22 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.