Fálkinn - 20.06.1966, Qupperneq 35
Vörubiladekkin
endast yfir 100 þús. k m.
BRIDGESTOIME
*
mest seldu dekk á Islandi
Treystið
BRIDGESTONE
HVAÐ GERIST ÞESSA VIKU
Hrúturinn, 21. marz—20. avríl:
Það er á allan hátt heppilegra fyrir big
að dvelja heima fyrir en að vera á ferða-
lagi. Gættu þess að ættingjar þinir og ná-
grannar fái ekki tilefni til að set.ia út á þig
eða reita þig til reiði.
Nautiö, 21. apríl—21. maí:
Ef þú ætlar að ferðast eitthvað í þessari
viku, er mikið heppilegra fyrir þig að fara
eitthvað stutt heldur en iangar leiðir. Þú
ættir einnig að skipulegg.ia sem mest fyrir-
fram, því annars gæti allt lent í óreiðu.
Tvíburarnir. 22. maí—21. júní:
Þú ert í dálitlum vafa um framtiðina bæði
hvað starfi viðkemur og einnig með tilliti
til fiölskyldunnar. Þetta truflar nokkuð
mikið dagleg störf þín. Taktu engar fljót-
færnislegar ákvarðanir í þessu.
Krabbinn, 22. júní—23. júli:
Hugsaðu vandlega um allar hliðar mál-
anna, þegar þú gerir áætlanir fyrir fram-
tíðina. Þó að þú sért ekki fljótfær að eðlis-
fari getur þér sézt yfir mikilvæg atriði.
Vertu ekki mikið á ferðinni.
LjóniÖ, 21/. júli—23. áqúst:
Þú ættir að notfæra þér skipulagshæfi-
leika þinn til að koma reglu á fjármálin og
setja þér visst mark í þessum efnum, ekki
veitir af. Taktu vinsamlegum ráðleggingum
vina þinna og undirskrifaðu enga samninga
án þess að hafa kynnt þér vel innihald
Þeirra.
Meyjan, 21,. áqúst—23. sept.:
Þú hefur löngun til að endurskipuleggja
bæði starf þitt og hjónaband eða samstarf
við aðra yfirleitt. Það getur þú gert en að-
eins að vel athuguðu máli, þannig að ekki
aðeins þú heldur og mótpartar þínir verði
ánægðir, en þá er líka tilgangi náð.
Voain. 21,. sept.—23. okt.:
Fréttir, sem þú færð langt að, koma Þér
á óvart og gætu valdið þér óþægindum. Þú
ættir að bíða með ferðalög um tima eða
bar til bæði atvinna þín og heilsa leyfa.
Taktu þér hvíld um helgina, ef þú getur.
Drekinn, 21,. okt.—22. nóv.:
Vertu ekki svo upptekinn af eigin vanda-
málum að þú takir ekki eftir því sem ger-
ist í kringum þig, sérstaklega meðal vina
og kunningja, og vertu þeim til aðstoðar.
Þú munt fá það launað þótt síðar verði.
Boqmaöurinn, 23. nóv.—21. des.:
Þú skalt vera vel á verði gagnvart þeim
manneskjum, sem gera sér það til dundurs
að eyðileggja mannorð annarra og varaðu
maka þinn eða félaga við að taka mark á
slúðursögum. Þú kannt að koma auga á
n-ýiar leiðir í fjármálum.
Steinqeitin, 22. des.—20. janúar:
Þér er nauðsyn á einhverri tilbreytingu,
en þó er óráðlegt að skipta um starf eða
dvalarstað. nema í nauðsvn. Þú ættir ekki
að búast við miklu af ferðalögum, þau gætu
orðið erfiðari fvrir big en þú heldur.
Vatnsberinn, 21. janúar—19. fébrúar:
Þú verður að vera sérstaklega varkár í
peningamálum núna, Því smámistök gætu
leitt af sér stórt tap fyrir þig. Nokkur
ágreiningur kann að verða um fjármál
milli þin og félaga þíns. Eyddu ekki miklu
í skemmtanir.
Fiskarnir, 20. fébrúar—20. marz:
Ágreiningur, sem kann að risa milli Þin
og maka þíns eða félaga getur orðið upphaf
| alvarlegrar deilu ef ekki er greitt úr vanda-
málunum sem fvrst, og þar verður bú að
hafa frumkvæðið
FALKINN