Fréttablaðið - 10.10.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 10.10.2009, Blaðsíða 2
2 10. október 2009 LAUGARDAGUR Jón, þyrfti ekki líka að láta þýða alla Eurovision-textana? „Jú, mér líst ágætlega á það. Íslensk- an er okkar þjóðtunga.“ Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra, hefur ákveðið að láta þýða alla texta sem tengjast aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Auður Capital veitir fjárfestingaþjónustu með áherslu á gagnsæi og áhættumeðvitund. Við getum séð um séreignarsparnaðinn þinn Velkomin á opna kynningu til okkar mánudaginn 12. okt. kl. 17:15, Borgartúni 29, 3. hæð. Auður fyrir þig Eignastýring - Fjárfestingar - Fyrirtækjaráðgjöf - Séreignarsparnaður audur.is - 585 6500 BANDARÍKIN, AP Bandarískt geim- far brotlenti á suðurpól tungls- ins í gær. Harkaleg lendingin var vel skipulögð og taldist vel heppn- uð. Um borð í geimfarinu eru mælitæki sem ætlað er að finna ummerki vatns á tunglinu. „Þetta er svo flott,“ sagði Jenni- fer Heldmann hjá bandarísku geimferðastofnuninni NASA, sem sendi tunglfarið í þennan leiðang- ur. „Við erum himinlifandi.“ Nokkur vonbrigði voru þó að fyrstu myndirnar frá tunglfarinu reyndust ekki jafnt áhrifaríkar og vonast hafði verið til. „Við sáum gígmyndun, við sáum ljósblossa, svo eitthvað hlýtur að hafa gerst þarna á milli,“ sagði Anth- ony Coloprete, einn vísindamann- anna sem stóðu að geimskotinu. Vonast var til að myndir næð- ust af rykstrók, sem væntanlega hefur myndast þegar tunglfarið skall á tunglinu. Hugmyndin var sú að vísindamennirnir myndu nota tæki sín til að greina efna- innihald stróksins í von um að sjá þar ummerki vatns. Vísindamennirnir hugguðu sig þó við að allur tækjabúnaðurinn virtist virka eðlilega. Næstu vikur og mánuðir verða svo notaðir til að greina það sem þó sást. „Þetta mun breyta því hvernig við sjáum tunglið,“ sagði Michael Wargo, yfirtunglfræðingur hjá NASA. - gb Geimfari brotlent á tunglinu til að leita þar ummerkja vatns: Fyrstu myndirnar sýndu lítið FYLGST MEÐ BROTLENDINGU Fjölmargir fylgdust spenntir með í höfuðstöðvum NASA. NORDICPHOTOS/AFP VIÐSKIPTI Íslenskt fyrirtæki, Kredia hf., býður nú upp á svokölluð smá- lán, nokkur þúsund króna neyðar- lán til fimmtán daga, sem hægt er að sækja um með SMS-skila- boðum. Á lánið leggst svokallað lántökugjald, sem í raun er ígildi okurvaxta. Lán sem þessi hafa sætt gríðar- mikilli gagnrýni á Norðurlöndunum og víðar síðustu ár. „Þetta eru ekki góðar fréttir og ég hugsa að maður verði að finna einhverjar leið- ir til að sporna við þessu,“ segir Gísli Tryggva- son, talsmaður neytenda. Á vef fyrir- tækisins, kred- ia.is, má sjá skilmálana fyrir lántökunum. Þar segir að lántak- endur verði að vera orðnir átján ára, megi ekki vera á vanskilaskrá og geti aðeins tekið eitt lán í einu. Í fyrstu er mest hægt að taka tíu þúsund króna lán til fimmtán daga, með 2.500 króna lántöku- gjaldi, sem er ígildi ríflega 21.000 prósenta ársvaxta. Standi lántak- andinn í skilum getur hann fengið hærra lán næst, og svo koll af kolli, upp í fjörutíu þúsund krónur. Lán sem þessi hafa skapað mikil vandræði á Norðurlöndum, þar sem þau eru kölluð SMS-lán. Í Finnlandi var til dæmis um fimmt- ungur vandræðaskulda til kominn vegna slíkra lána í fyrra, og til stóð að setja um þau sérstakar reglur. Í Bandaríkjunum eru til áþekk lán sem kölluð eru „payday loans“, með vísan í að þau eigi að fram- fleyta fólki í vanda fram til næstu útborgunar. Þau hafa sætt mikilli gagnrýni, eru sums staðar bönn- uð með lögum og jafnvel álitin alvarlegur glæpur. „Við höfum verið fegin að vera laus við þetta hingað til,“ segir Gísli, sem hefur boðað fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins og lögfræðing hans til fundar við sig um málið eftir helgi. Starfsem- in sé hæpin af ýmsum ástæðum; greiðslumat lántakenda sé ófull- komið, lánin beri í raun okur- vexti og síðast en ekki síst höfði þau einna helst til illa stæðs fólks eða ungmenna sem ekki kunni fótum sínum forráð í sama mæli og aðrir. Leifur Alexander Haraldsson, framkvæmdastjóri Kredia, segist meðvitaður um að lánastarfsemi sem þessi sé víða umdeild. „En við erum ekki að fara að þeirri fyrir- mynd,“ segir hann. „Þar er lánað út í eitt og menn steypa sér í skuldir sem þeir eru ekki borgunarmenn fyrir.“ Hér sé verkefnið aðeins hugsað sem „neyðarredding“ og að fólk geti aldrei skuldað meira en fjörutíu þúsund krónur í einu. Verkefnið hafi verið í tæknileg- um undirbúningi í ár og lagalegum undirbúningi í hálft ár. Búið sé að fara yfir málið í þaula með lögfræð- ingum til að fá fullvissu um að allt standist lög. „Annars myndum við nú aldrei fara að bjóða svona þjón- ustu,“ segir hann. stigur@frettabladid.is SMS-lánin umdeildu eru komin til Íslands Smálán á ofurvöxtum sem fást með SMS-skilaboðum standa nú Íslendingum til boða. Lánin sæta mikilli gagnrýni erlendis. Talsmaður neytenda telur að sporna þurfi við þeim. Ekki hægt að steypa sér í skuldir, segir framkvæmdastjórinn. LÉTT LÁN Hægt er að nálgast lánin með því að senda skilaboð á eitt símanúmer.GÍSLI TRYGGVASON FÓLK „Vissulega má segja að þessi verslun sé orðin að stofnun, enda hefur hún verið hluti af uppvexti og tilveru flestra Húsvíkinga og Þingeyinga,“ segir Friðrik Sigurðs- son, framkvæmdastjóri Bóka- verslunar Þórarins Stefánssonar á Húsavík, sem fagnar hundrað ára verslunarafmæli í ár. Í tilefni af því verður viðskiptavinum boðið til veislu í dag. Í veislunni verður viðskiptavin- um boðið upp á veitingar, auk þess sem fjöldi tilboða verður í búðinni í tilefni tímamótanna. Að sögn Frið- riks og konu hans Magneu Magnús- dóttur er þetta tækifæri til að gleðj- ast, breyta til og gera eitthvað nýtt. - kdk / sjá Tímamót Ein elsta bókabúð landsins: Haldið upp á aldarafmælið Á TÍMAMÓTUM Hjónin Friðrik Sigurðs- son og Magnea Magnúsdóttir. UTANRÍKISMÁL Aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB) gæti gengið tiltölulega hratt fyrir sig. Þetta kemur fram í árvissri skýrslu ESB um stækk- unarferli sambandsins sem kemur út í næstu viku. Fréttastofa Reuters og írska útvarpsstöðin RTÉ birtu gögn úr drögum að skýrslunni í gær. Bent er á að Ísland sé þegar hluti af innri markaði Evrópu og Schengen-svæðinu. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir drögin ekki hafa borist í ráðuneytið, en afstaðan komi þó ekki á óvart. „Ég hef kynnt málstað Íslands fyrir öllum ráðherrum Evrópusambandsins og átt mörg símtöl og fundi með sumum þeirra,“ segir hann og leggur áherslu á ekki sé farið fram á hraðferð í sam- bandið þótt landið vilji vera metið að verðleikum. „Við höfum verið í fimmtán ára samrunaþróun við Evrópu- sambandið. Frá því við gengum í EES og til Scheng- en-samstarfsins höfum við tekið upp það sem fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins metur sjálf sem sjötíu prósent af því regluverki sem þar er að finna. Af þeim sökum teljum við að þetta formlega ferli eigi að geta tekið skemmri tíma.“ Össur segist þó vilja leggja á það áherslu að ekk- ert liggi fyrir um hversu hratt aðildarsamningarnir gangi. „Þar eru erfiðir kaflar sem þarf að taka og ég hef sjálfur alltaf gert ráð fyrir að ýmsir þættir þar, svo sem varðandi sjávarútveg og landbúnað, kunni að taka langan tíma og vera erfiðir.“ - óká Utanríkisráðherra segir skilning á stöðu Íslands þótt ekki sé beðið um hraðferð: Aðild að ESB gæti orðið hröð SÓTT UM AÐILD Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra á fundi með Carl Bildt utanríkisráðherra Svía eftir að hafa afhent formlega umsókn um aðild að ESB. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Kona laug til nafns Lögreglan stöðvaði í fyrradag konu sem notaði vegöxl á Breiðholtsbraut til að taka fram úr annarri umferð. Að sögn lögreglu gaf konan fyrst upp rangt nafn en lögreglan vissi betur og afhjúpaði að hér á ferð var réttindalaus ökufantur. LÖGREGLAN BRETLAND Gerry McCann, pabbi hinnar horfnu Madeleine McCann, hefur nú greint frá því að hann muni snúa til Praia da Luz ásamt Kate eiginkonu sinni á þessu ári. McCann-hjónin dvelja nú á Spáni en Kate hefur ekki komið til stað- arins þar sem dóttir þeirra hvarf á í meira en tvö ár. Það hefur Gerry hins vegar gert. „Þetta er staðurinn þar sem hún sá Madeleine síðast, það rifjar upp margar tilfinningar,“ segir Gerry. Gerry útskýrði einnig fyrir fjöl- miðlum að fjölskyldan hefði öðlast nýja von um að finna dóttur sína á lífi, eftir að Jaycee Lee Duggard fannst á lífi í Bandaríkjunum en hún hafði verið týnd í átján ár. Leita enn að Maddy: Snúa aftur til Portúgals ÞÝSKALAND, AP Fertug kona í Þýskalandi hefur fætt heilbrigt barn þrátt fyrir að hafa verið í dásvefni síðustu 22 vikur með- göngunnar. Starfsfólk á háskóla- sjúkrahúsinu í Erlangen sagði aðstandendur konunnar hafa óskað eftir því að barnið yrði látið fæðast þrátt fyrir erfitt ástand móðurinnar, sem fékk hjartaáfall og hefur verið í dái síðan. Sjúkrahúsið vildi ekki gefa upp frekari upplýsingar um móðurina eða barnsfæðinguna, þar á meðal ekki hvort vonir stæðu til að móð- irin vaknaði úr dáinu eða hvort faðir barnsins hefði átt hlut að ákvörðun aðstandendanna. - gb Óvenjuleg fæðing: Kona í dásvefni eignast barn VIÐSKIPTI Lyfjafyrirtækið Acta- vis skuldar tæpa þúsund millj- arða króna, billjón, samkvæmt því sem fram kom í frétt- um Stöðvar 2 í gærkvöldi. Vaxtakostnað- ur fyrirtækis- ins í fyrra nam 55 milljörðum. Tap fyrir- tækisins árið 2008 var 34 milljarðar og samkvæmt ársreikningi skuld- aði það 720 milljarða um ára- mótin. Inn í þá tölu vantar hins vegar ýmsar skuldir innan sam- stæðunnar. Björgólfur Thor Björgólfsson keypti aðra hlut- hafa úr fyrirtækinu árið 2007 og nam kaupverðið um billjón krónum. Gjalddagi á fjögurra milljarða evra láni Deutsche Bank vegna yfirtökunnar rennur upp á næsta ári. - kóp Actavis tapaði miklu í fyrra: Skuldaði tæpa billjón króna BJÖRGÓLFS THORS BJÖRGÓLFSSONAR Aurskriða í Eyrarhlíð Tólf metra breið aurskriða féll niður Eyrarhlíð á Hnífsdalsvegi á Vestfjörðum um klukkan 20 í gærkvöldi. Skriðan, sem var um tveggja metra djúp, olli ekki tjóni. Skriðan stöðvaði alla umferð og unnið var að hreinsun vegarins þegar blaðið fór í prentun í gærkvöldi. VEÐUR SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.