Fréttablaðið - 10.10.2009, Page 16
16 10. október 2009 LAUGARDAGUR
224 lítrar á ári
fyrir Aukakrónur
Þú getur keyrt bílinn þinn 2240 kílómetra á ári á bensíni frá ÓB fyrir Aukakrónurnar
sem safnast þegar þú notar A-kortið þitt – eða eitthvað annað sem þig langar í hjá
samstarfsaðilum Aukakróna.
*
M
.v
. 1
5
0
þ
ús
un
d
kr
. i
nn
le
nd
a
ve
rs
lu
n
á
m
án
uð
i,
þ.
a.
1
/3
h
já
s
am
st
ar
fs
að
ilu
m
. S
já
n
án
ar
á
w
w
w
.a
uk
ak
ro
nu
r.i
s.
B
en
sí
nv
er
ð
1.
ok
tó
be
r
20
0
9
h
já
Ó
B
G
ra
fa
rh
ol
ti
va
r 1
78
,4
k
r./
l
*
AUKAKRÓNUR | landsbankinn.is | 410 4000
Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is
N
B
I h
f.
(L
an
ds
ba
nk
in
n)
, k
t.
47
10
0
8
-2
0
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
9
3
11
skipta um dekk
Umfelgun og ný dekk á góðu verði
Umfelgun og jafnvægisstilling á 4 fólksbíladekkjum á 12–16 tommu
stálfelgum 6.458 kr. Kauptu vetrardekkin hjá Max1 á góðu verði.
Spyrðu okkur hvað við getum gert meira fyrir þig.
Við erum góðir í að gera hlutina fljótt og vel og ódýrt – skoðaðu: www.max1.is
Reykjavík, sími 515 7190: Bíldshöfða 5a,
Bíldshöfða 8, Jafnaseli 6, Knarrarvogi 2.
Hafnarfjörður: Dalshrauni 5 (opnar á næstunni).
Akureyri, sími 462 2700: Tryggvabraut 5.
Sparaðu, láttu
Ný vetrardekk
Dekkjaskipti
hjá Max1
Opið í dag
frá 9 til 13
á öllum Max
1
stöðvum
Lokað í Knar
rarvogi
KJÖT KOSTAR VATN Þetta par brá sér
í sturtu í París bak við borða sem á
stendur: 1 kg kjöt = 15.500 lítrar af
vatni. Parið vildi vekja athygli á því hve
mikið af vatni þarf til að standa undir
kjötneyslu. NORDICPHOTOS/AFP
SAMFÉLAGSMÁL Álfheiður Ingadóttir heilbrigðis-
ráðherra opnaði á fimmtudag nýja og endurbætta
heimasíðu Krabbameinsfélags Íslands að viðstödd-
um stjórnendum og starfsfólki félagsins. Heimasíð-
an er mikilvægt tæki fyrir þá sem leita upplýsinga
um krabbamein og sem þurfa að nýta sér þjónustu
Krabbameinsfélagsins.
Þegar Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra
opnaði síðuna sagðist hún sjálf hafa komið í leitarstöð
félagsins nokkuð reglulega frá því að hún var tvítug
og þær heimsóknir hefðu skipt sköpum í hennar lífi.
„Ég hvet alla en þó sérstaklega ungar konur til að
vera duglegar að kynna sér vefinn og að mæta reglu-
lega í skoðun hjá Krabbameinsfélaginu. Vefurinn er
miðill unga fólksins, þess vegna vænti ég þess að nýr
og viðmótsþýður vefur Krabbameinsfélagsins gagn-
ist vel til að koma upplýsingum og fræðslu til nýrra
kynslóða,” sagði Álfheiður Ingadóttir.
Heilbrigðisráðherra opnaði nýja heimasíðu Krabbameinsfélags Íslands:
Skoðun getur skipt sköpum
HEIMASÍÐAN OPNUÐ Heilbrigðisráðherra hvatti ungar stúlkur
sérstaklega til þess að mæta reglulega í krabbameinsskoðun.
DÓMSTÓLAR Piltur innan við tví-
tugt hefur verið dæmdur í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur fyrir
innbrot í fimm skóla á höfuð-
borgarsvæðinu, svo og innbrot
á tvö heimili.
Pilturinn var ýmist einn
við innbrotin eða í félagi við
aðra. Samtals hundruðum þús-
unda var stolið úr skólunum og
íbúðarhúsunum, auk fjölda af
dýrum tölvum og tækjum.
Pilturinn var dæmdur í sex
mánaða skilorðsbundið fang-
elsi. Að auki var honum gert
að greiða ríflega hálfa milljón
króna í skaðabætur.
- jss
Innbrotsþjófur dæmdur:
Braust inn í
fimm skóla
NOREGUR, AP Ákvörðun norsku Nób-
elsverðlaunanefndarinnar um að
veita Barack Obama Bandaríkja-
forseta friðarverðlaunin í ár vakti
furðu víðs vegar um heim. Sjálfur
sagðist Obama undrandi og finna
til auðmýktar, en hann myndi líta
á verðlaunin sem hvatningu til
dáða.
Í tilkynningu frá nefndinni seg-
ist hún veita Obama verðlaunin
„fyrir einstaka viðleitni sína til
að styrkja alþjóðasamskipti og
samvinnu milli þjóða“. Nefndin
segir að þar sé sérstaklega horft á
framlag Obama við að losa heim-
inn við kjarnorkuvopn.
Aðeins tíu mánuðir eru liðnir
frá því að Obama tók við embætti.
Þótt hann hafi lofað marghátt-
uðum breytingum, sem margar
hverjar eiga að vera í friðarátt, þá
hefur honum enn varla tekist að
hrinda neinum þeirra veigamestu
í framkvæmd.
„Svona fljótt?“ spurði pólski
friðarverðlaunahafinn Lec Wal-
esa, fyrrverandi baráttumað-
ur gegn oki kommúnismans og
síðar forseti landsins, og trúði
varla fréttunum frekar en marg-
ir aðrir. „Þetta er of fljótt. Hann
hefur ekki raunverulega lagt neitt
fram enn. Hann hefur komið með
tillögur og er að hefja starf sitt,
en hann á enn eftir að afreka það
allt.“
Thorbjörn Jagland, formað-
ur norsku Nóbelsnefndarinn-
ar, segist skilja þau viðbrögð, að
fólki finnist Obama fá verðlaun-
in of fljótt: „En þá vil ég segja að
eftir þrjú ár geti orðið of seint að
bregðast við. Tækifæri okkar til
að bregðast við er núna.“
Obama er fjórði Bandaríkja-
forsetinn sem fær friðarverðlaun
meðan hann er í embætti. Hinir
voru Theodore Roosevelt, Woo-
drow Wilson og Jimmy Carter.
Aðrir forsetar hafa einnig hlot-
ið þessi verðlaun í embætti, svo
sem Mikhaíl Gorbatsjov, leiðtogi
Sovétríkjanna og Kim Dae-Jung,
forseti Suður-Kóreu. Forsætisráð-
herrar hafa einnig fengið friðar-
verðlaunin á embættistíð sinni,
svo sem Jitsak Rabin frá Ísrael og
Willy Brandt Þýskalandskanslari.
Aldrei áður hefur þó neinn þjóð-
arleiðtogi fengið verðlaunin eftir
jafn skamma setu í embætti.
gudsteinn@frettabladid.is
Úthlutun friðarverð-
launa vekur furðu
Barack Obama Bandaríkjaforseti segist ekki eiga skilið að fá friðarverðlaun
Nóbels. Formaður Nóbelsnefndarinnar segir að hugsanlega verði of seint að
bregðast við eftir þrjú ár. „Þetta er alltof fljótt,“ segir Lech Walesa.
OBAMA Á SKRIFSTOFU SINNI Bandaríkjaforseti á mikið verk fyrir höndum að standa
undir kröfum Nóbelsnefndarinnar. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐBRÖGÐ VERÐLAUNAHAFANS
Barack Obama sagðist vera bæði
undrandi og finna til auðmýktar
gagnvart ákvörðun Nóbelsnefndar-
innar: „Ég lít ekki á hana sem
viðurkenningu fyrir mín eigin afrek,
heldur frekar sem staðfestingu á
forystuhlutverki Bandaríkjanna í
þágu þeirra vona sem búa í brjóst-
um fólks af öllu þjóðerni. Satt að
segja finnst mér ég ekki eiga skilið
að vera í hópi þeirra fjölmörgu
umbótamanna sem hafa verið
heiðraðir með þessum verðlaun-
um,“ segir forsetinn. Hann segist
þó átta sig á því að verðlaunin hafi
ekki alltaf verið veitt fyrir áunninn
árangur heldur verið notuð til þess
að hraða þróun ákveðinna atburða:
„Og þess vegna mun ég veita þeim
viðtöku sem hvatningu til verka.“