Fréttablaðið - 10.10.2009, Blaðsíða 76
48 10. október 2009 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Breski snillingurinn Alexander McQueen fékk áhorfendur til að missa
andann á nýyfirstaðinni tískusýningu í París þar sem hann sýndi föt
fyrir næsta vor og sumar. Fyrirsætur minntu á einhvers konar furðu-
verur frá Atlantis, nú eða hreinlega úr geimmynd James Cameron,
Avatar. Stuttir kjólar voru úr eðlumynstri í skærum litum sem
minntu á hafið. Buxur voru með einhvers konar uggum og minntu á
hákarlaskinn og punkturinn yfir i-ið var svo himinháir hælaskór sem
fyrirsæturnar áttu í töluverðum vandræðum með að ganga á. - amb
SÆSKRÍMSLI OG GEIMVERUR Í PARÍS
Ævintýraveröld
Alexanders McQueen
MARBLÁTT
Stuttur kjóll
með þröngu
mitti með
dularfullu
marglyttu-
mynstri.
Það hlaut að koma að því. Loksins kom haustpestin, hundleiðinlegt
kvef sem er búið að hrjá mig núna í viku. Ekki svona alvöru flensa þar
sem maður liggur kófsveittur í tvo daga og hressist svo heldur svona
viðbjóðslegt klassískt kvef sem gerir mann bæði ljótan og leiðinlegan.
Eina ráðið við slíku útlitslega séð er að ganga með risastór svört sól-
gleraugu allan daginn, hvort sem það er innandyra eða utan, í stormi
eða snjókomu. Ég hef líka verið að
hrjá vinnufélaga mína með einhvers
konar berklahósta sem hlýtur að
vera skelfilegt að þurfa að hlusta á
dag eftir dag. Fegin er ég þó að hafa
einhvern tímann heyrt það í uppeld-
inu að maður ætti ekki að sjúga upp
í nefið, sport sem margir samlandar
mínir stunda grimmt, eins og það sé
ekkert eðlilegra en að ræskja sig á
almannafæri. Kvefið gerir mig senni-
lega önuga líka. Til þess að hressa mig
verulega við í vikunni var mér boðið á
popp og kók og Antichrist-mynd Lars
von Trier. Þar fór kona sem sat fyrir
framan mig í bíósalnum og borðaði
hráar gulrætur úr poka meira í taugarnar á mér en blóðslettur úr kyn-
færum á skjánum. En jú, aftur að Antichrist. Willem Dafoe og Char-
lotte Gainsbourg, aðalleikarar hennar, eru óneitanlega ofsalega töff
fólk. Það er erfitt að greina nákvæmlega hvað það er sem gerir þau
töff en sennilega hefur það eitthvað að gera með þessa skemmtilega
teknu andlitsdrætti yfir „ljótfallegri“ beinabyggingu. Lars von Trier
lætur ekki farða leikarana sína í myndum og það var skemmtilegt að
sjá manneskju eins og hina limafögru Charlotte með hræðilega bauga
og jafnvel hrukkur og misfellur hér og þar sem verkaði aðeins á þann
hátt að gera hana meira töff. Það hlýtur að vera plús í kladdann að geta
ráfað um skóg hálfnakinn og öskrandi með blóðslettur um sig allan og
vera samt smá sexí. Ljótt getur nefnilega líka verið fallegt. Það er þá
kannski bara spurning um að líta á þetta kvef í nýju ljósi.
Að vera ljótur og töff
Fallega haustlega vara-
liti úr nýju Ivy League
línunni frá Bobbi Brown.
Hina fullkomnu svörtu
partítösku frá Birnu
Design sem er þar að auki
vatnsheld.
VÍÐAR BUXUR Mars-
búaleg múndering í
grænum tónum.
Á STULTUM Kjóll með eðlu-
augum og snákaskór.
PRINSESSULEGT Stuttur ljósbrúnn
kjóll með púffermum.
LISTAVERK
Hælaskórnir
frá McQueen
voru með því
ótrúlegasta
sem sást á
tískuvikunni í
París.
EÐLUMYNSTUR Stórfeng-
legur kjóll í grænum og
gulum tónum.
OKKUR
LANGAR Í
…
> STEFNUMÓTAVEFUR CONDÉ NAST
Fæstum finnst stefnumótavefir mjög smart en
það kann að breytast með tilkomu Trulymadly-
dating.com sem er nýr vefur í eigu Condé
Nast-útgáfunnar sem gefur meðal annars út
Vogue. Síðan hefur það markmið að kynna
tískuþenkjandi konur og karlmenn hvert fyrir
öðru. Hvers vegna ekki...
Verð kr. 265.000.-
Hrein fjárfesting ehf
Dalbraut 3 105 reykjavík • rainbow@rainbow.is
Sími verslun 567 7773 . kvöld og helgar 893 6337
www.rainbow.is
Rainbow
Bjóðum nokkrar Rainbow á 186,000
Eða gömul Rainbow upp í nýja tilboð 155,000
Eigum einnig notaðar yfi rfarnar rainbow
með ábyrgð verð 80.000 tilboð 58.000
meðan byrgðir endast.
Æðislegan
köflóttan kjól
frá Marc Jacobs
frá KronKron,
Laugavegi.