Fréttablaðið - 10.10.2009, Blaðsíða 78
50 10. október 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
„Ég fer öðruvísi að þessu. Ég
höfða ekki mál af því að mér
gæti ekki verið meira sama.“
NICOLE KIDMAN
um slúðursögur sem skrifaðar eru um hana
í tímaritum.
„Það að eiga
hræðilegan leik í
stórmynd er verra
fyrir ferilinn en
að eiga stórleik í
hræðilegri mynd
og fá engan
pening fyrir.“
RENÉE ZELLWEGER
um þá áhættu sem fylgir
hlutverkavali.
Hljómsveitin Skítamórall
hélt tvenna tónleika á
skemmtistaðnum Rúbín
í fyrrakvöld í tilefni af
tuttugu ára afmæli sínu.
Tónleikarnir voru teknir upp
og verða gefnir út á geisla-
og mynddiski fyrir jólin.
Á tónleikunum fór hljómsveitin
yfir ferilinn og lék lög af öllum
plötum sínum, flest órafmögn-
uð. Margir góðir gestir lögðu
Skíta móral lið, þar á meðal Helgi
Björnsson, Sammi úr Jagúar og
Roland Hartwell sem stjórnaði
strengjasveit.
Tvítugsafmæli Skítamórals
SPENNTIR GESTIR Kristín María, Örvar Arnarsson, Dagbjört Hlín Sigurðardóttir og
Halldór Þorsteinsson skemmtu sér vel á tónleikunum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GAMAN Á SKÍMÓ Hulda Proppé, Gassi,
Samúel Bjarki og Júlía Rós létu sig ekki
vanta á tónleikana.
Á RÚBÍN Íris Aðalsteinsdóttir og Svava
Kristín Grétarsdóttir voru á meðal gesta
á Rúbín.
ÞRÍR GÓÐIR Halldór Jóhannsson,
athafnamaðurinn Einar Bárðarson
og Guðmundur Gíslason hlustuðu á
Skítamóral.
Styrktarakstur fyrir Daníel Sigurðs-
son rallökumann fer fram við Litlu
Kaffistofuna klukkan 13 í dag. Þar
gefst færi á að skoða rallíbíla og
ræða við þaulreynda ökuþóra og
geta þeir óhræddustu fengið að aka
rallíbíl sjálfir. Daníel hóf að keppa
á Íslandi árið 1998 og varð Íslands-
meistari nýliða árið árið eftir. Árið
2007 hóf hann að keppa í Bretlandi
og hefur gott gengi hans vakið
nokkra athygli fjölmiðla þar í landi.
„Daníel er að fara til Wales
eftir tvær vikur að keppa í
heimsmeistara mótinu í rallakstri
og þessu fylgir kostnaður upp á
margar milljónir. Hugmyndin var
að reyna að styrkja hann í ferðinni
út og kynna um leið íþróttina fyrir
almenningi,“ segir Jón Þór Jóns-
son, einn skipuleggjanda styrktar-
akstursins. Hægt er að skrá sig í
akstur í síma 824 0670.
- sm
Rabbað við rallökumenn
JÓN ÞÓR JÓNSSON Einn aðstandenda
styrktaraksturs sem fram fer við Litlu
Kaffistofuna í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Það að vera
giftur þýðir að
ég get rekið við
og borðað ís í
rúminu.“
BRAD PITT
um hjónaband. Hann
var eitt sinn giftur
leikkonunni Jennifer
Aniston.
MENNINGARSJÓÐUR KVENNA Á ÍSLANDI
auglýsir eftir
UMSÓKNUM