Fréttablaðið - 10.10.2009, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Í dag er laugardagurinn 10.
október 2009, 283. dagur ársins.
8.03 13.15 18.25
7.52 12.59 18.06
Þegar ég var unglingur brast á með pönki. Það var uppreisn
gegn tildri og yfirborðsmennsku
diskósins. Ég var alls ekki eina
íslenska ungmennið frá borgara-
legu millistéttarheimili sem pönkið
heillaði. Við gengum ekki í rifnum
fötum af því að við höfðum ekki
efni á nýjum, eins og upphafsmenn
pönksins í fátækrahverfum Stóra-
Bretlands, heldur af því að í því
fólst, að okkar mati, einhvers konar
yfirlýsing. Leður jakkinn, sígildur
einkennisbúningur uppreisnar-
seggsins, hefði auðvitað þótt fágæt
munaðarvara í því umhverfi sem
pönkið spratt úr. Fyrir rest voru
pönkaragellurnar síst farnar að
verja minni fjármunum í hárvörur
(fyrir hana kambinn) og augnmáln-
ingu (biksvarta) en diskódísirnar.
Byltingin étur börnin sín.
UM þessar mundir tröllríða svo-
kölluð „krútt“ öllu því sem heit-
ast og flottast þykir. Í því felst að
tónlist skal vera gersneydd allri
aggressjón og klæðnaður í senn
hlýlegur og fátæklegur. Prjóna-
húfur, sem helst eiga að líta út
fyrir að hafa verið gerðar í handa-
vinnutíma í tíu ára bekk, eru eitt
helsta einkennið ásamt grófum
ullar kápum og vettlingum. Af
þessum sökum standa margir í
þeirri meiningu að krúttin séu
óháð tískustraumum og stefnum,
þau taki sjálfstæðar ákvarðanir
um klæðaburð sinn í stað þess að
fylgja fyrir mælum.
EF fatnaður krúttanna er skoðað-
ur nánar verður þó auðvitað strax
ljóst að þar gilda mjög strangar
reglur. Það hve staðlaður og sam-
ræmdur klæðaburðurinn er bend-
ir enn fremur til þess að reglum
þessum sé framfylgt af fyllstu
hörku, tískulögreglan sé síst
afslappaðri en áður fyrr, jafnvel
þótt fagurfræðilegar forsendur
útlitseftirlitsins kunni að virðast
nýstárlegar.
VEGNA þess hve bannið við
öllu nýlegu og ríkmannlegu – og
reyndar öllu sem ekki lítur út
fyrir að hafa annaðhvort fengist
hjá Rauða krossinum eða Hjálp-
ræðishernum – er skilyrðislaust,
telja ýmsir enn fremur að krútt-
in séu betur í stakk búin en aðrir
til að takast á við kreppuna. Þetta
er náttúrlega eins og hvert annað
kjaftæði. Það gerir engan hæfari
til að mæta fátækt, sem hefur aðal-
lega hangið á kaffihúsum sötrandi
latte á 450 krónur bollann brimandi
netið á mörghundruð þúsund króna
kjöltutölvu, að finnast ógeðslega
flott að vera eins og niðursetningur
til fara og Sigur Rós skemmtileg.
Kjaftæðið
um krúttin
MARTORP hillueining
B84×D38, H44cm. Svarbrúnt 7.990,-
OKTÓBERTILBOÐ
165,-