Fréttablaðið - 10.10.2009, Blaðsíða 21
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
VIÐ STÖNDUM FYRIR RÉTTLÆTI
– EKKERT UM OKKUR ÁN OKKAR!
Ályktun ÖBÍ
Ekki meir, ekki meir!
Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands mótmælir harðlega að ríkisstjórn,
sem kennir sig við félagshyggju og jöfnuð, skuli áforma að halda áfram
að skerða kjör öryrkja umfram aðra þegna landsins.
Álögur á öryrkja jukust í „góðærinu“ vegna heilbrigðismála, t.d. jókst
lyfja- og lækniskostnaður. Auk þess fylgdi lífeyrir ekki verðþróun að fullu.
Um síðustu áramót voru lög frá 1997, sem áttu að tryggja að lífeyrir
hækkaði sem svaraði kjarasamningum eða framfærsluvísitölu, tekin
úr sambandi. Aðeins lítill hluti lífeyrisþega fékk þá hækkun sem
lögin sögðu til um.
Þann 1. júlí sl. voru breytingar gerðar á greiðslum almannatrygginga þegar
lög um ráðstafanir í ríkisfjármálum tóku gildi. Tekjutengingar jukust þannig
að bætur almannatrygginga skertust meira og fyrr en áður. Sú breyting
hafði þau áhrif að margt fólk missti ákveðin réttindi sem fylgdu bótunum,
s.s. niðurgreiðslu á sjúkra-, iðju- og talþjálfun og tannlæknakostnaði.
Auk þess hafa komið fram eða eru í bígerð beinar hækkanir, eða aukin
þátttaka í lyfja-, læknis- og þjálfunarkostnaði.
Til að standa vörð um það sem eftir er af íslensku velferðarkerfi krefst
Öryrkjabandalag Íslands að Alþingi endurskoði fjárlög 2010 með það að
markmiði að verja kjör lífeyrisþega.
Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands, 7. október 2009