Fréttablaðið - 10.10.2009, Blaðsíða 40
6 FERÐALÖG
Í
myndaðu þér að vakna í dásam-
lega fagurri hótelsvítu þegar
þjónn ber á dyrnar með dýrind-
is morgunverð á bakka. Hann
töfrar fram ilmandi heitt kaffi,
hrærð egg og beikon, pönnukökur
og suðræna ávexti á dúkuðu borði.
Á meðan þú gæðir þér á kræsing-
unum horfir þú út um svalahurðina
en í stað þess að sjá stórborg eða
sveitalandslag þá blasir ekkert við
nema himinblátt haf svo langt sem
augað eygir. Það gæti verið árið
2009 eða árið 1909, því þér líður
eins og þú sért í kvikmynd. Svona
hefjast dagarnir á skemmtiferða-
skipunum í Silver Sea-flotanum.
Fljótandi lúxushótel
Það er óneitanlega skrýtið að stíga
um borð í Silver Sea-skipin því að
varla er unnt að greina að maður
sé ekki á þurru landi. Í raun er
skipið eins og stórt og glæsilegt
fljótandi hótel. Þar er að finna
glæsilega hótelmóttöku, bari,
setustofur, líkamsræktarstöð og
heilsulind, sundlaug og sólbaðsað-
stöðu, leiksvið og kvikmyndasal
og úrval fínustu veitingahúsa.
Silver Sea er ítalskt fyrir-
tæki og má segja að öll sú feg-
urð og klassi sem tengd er við
Ítalíu sé endurspegluð í skipa-
flotanum. Innréttingarnar eru
klassískar og fágaðar og hugað
er að minnstu smáatriðum, allt
frá mjúkum sloppum í baðher-
berginu og kampavíni í kælin-
um til stílhreinnar orkídeu á
stofuborðinu á káetunum. Í raun
er ekki hægt að tala um káet-
ur því þær eru innréttaðar eins
og lúxusherbergi á hóteli með
sjónvarpi, DVD-spilara, ísskáp,
Silver Cloud Glæsi-
legt skemmtiferða-
skip sem rúmar um
250 gesti.
Svíta á skipinu Öll sömu þægindi og á lúxushóteli. Skipstjórinn Silver Seas leggja upp úr persónulegum samskiptum við gesti.
FERÐASKRIFSTOFA ÍSLANDS býður upp á
spennandi siglingu með Silver Sea 28. mars
til 8. apríl til borgarinnar Dubai í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum.
GLER OG STÁL , heillandi menning, sandur og
sól eru einkennandi fyrir borgina sem er ein af
þeim sem mynda Sameinuðu arabísku fursta-
dæmin. Þú getur spænt upp eyðimörk á kraft-
miklum jeppa, farið á unaðslegar baðstrendur,
baðað þig í heitum hreinum sjó, spilað golf
og verslað frá þér vitið. Í Dubai eru heimsins
bestu fríverslanir og spennandi gullmarkaðir
sem lítið hafa breyst í aldanna rás. Eitt af því
sem er svo heillandi við Dubai eru andstæður
staðarins, hin skörpu skil á milli austurs og
vestur, nýtískulegur byggingastíll, tímalaus
eyðimörkin, gamalt og nýtt.
Í Dubai sameinast þægindi og lúxus Vestur-
landa við dulmagnað andrúmsloft Arabíuskag-
ans.Í verslunarmiðstöðvum og mörkuðum má
gera betri kaup en víðast hvar annars staðar í
heiminum.
FERÐAÁÆTLUNIN: SUNNUDAGINN 28. MARS
er flogið frá Keflavík til London og þaðan
til Dubai. Við komu til Dubai er ekið beint
á hótelið, þar sem gist verður í tvær nætur.
Gestum gefst tækifæri til að eyða mánudeg-
inum í Dubai en borgina er upplagt að skoða
fótgangandi. Tignarlegur arkitektúr moskanna
stendur fyllilega til jafns við framúrstefnulega
hönnun nútíma bygginganna. Í Dubai-safninu
er að finna mikið safn gripa frá fyrri tímum,
þegar borgin var miðstöð perlukafara og
kaupmannalesta. Þröngir stígar kryddmarkað-
arins ilma af kardemommu og kanil og meðal
vefnaðarvara eru silki, bómull og ullarvörur í
öllum heimsins litum og á hvaða verði sem er.
Þið getið jafnvel brugðið ykkur á skíði í 22.500
fermetra yfirbyggðri skíðahöll – meðal þeirra
stærstu í heiminum, sem tekur a.m.k. 1.500
manns í brekkurnar í einu – sú lengsta er um
400 metrar. Hitastiginu er haldið í einni gráðu
undir frostmarki á daginn, en á nóttunni er
framleiddur nýr snjór í sex stiga frosti.
ÞRIÐJUDAGINN 30.MARS er siglt frá Dubai.
Skipið Silver Whisper er tilbúið að taka á móti
gestum kl. 15.00 um daginn og öll þjónusta
í mat og drykk strax til reiðu. Siglingin tekur
sjö daga og skipið stoppar í borgunum Abu
Dhabi, Fujairah, Múskat, Bander Abbas í Íran,
Kashab í Óman og svo aftur til Dubai 6. apríl.
TÖFRAR MIÐAUSTURLANDA
SIGLT UM
HEIMSINS HÖF
Sigling á háklassa skemmtiferðaskipi vekur upp andrúms-
loft liðinna alda. Í vor býðst Íslendingum frábært tækifæri
til þess að njóta þeirrar einstöku reynslu að ferðast
með sannkallaða fágun að leiðarljósi.
Seiðmagnað andrúmsloft Ein af mörgum moskum sem