Fréttablaðið - 10.10.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 10.10.2009, Blaðsíða 4
4 10. október 2009 LAUGARDAGUR Ef menn ætla virkilega að fara að hlaupa þetta sjálf- ir án aðkomu AGS vegna rifrildis út af einhverjum greiðslum árið 2025, þá held ég að menn hafi misst sjónar á samhenginu. ÞÓRÓLFUR MATTHÍASSON PRÓFESSOR Í HAGFRÆÐI VIÐ HÍ GENGIÐ 09.10.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 237,1425 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,94 125,54 199,6 200,58 184,11 185,15 24,73 24,874 22,123 22,253 17,896 18 1,4058 1,414 198,27 199,45 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR FRAKKLAND, AP Frakkar létu í gær undan kröfum Egypta um að ómetanlegum menningarminj- um á Louvre-safninu í París yrði skilað aftur til Egyptalands. Egyptar, með fornleifa- fræðinginn Zahi Hawas í fararbroddi, hættu í vik- unni samstarfi við Louvre- safnið til þess að þrýsta á kröfu sína. Samstarfsslitin hefðu orðið til þess að fornleifauppgröftur á vegum Louvre í Egyptalandi væri í uppnámi. Frederic Mitterand, menn- ingarmálaráðherra Frakklands, skýrði í gær frá því að egypsku minjarnar yrðu sendar til Egyptalands. Um er að ræða brot úr máluðum veggmyndum úr grafhýsi skammt frá Luxor. - gb Sigur Egypta á Frökkum: Louvre skilar verðmætum MANNRÉTTINDI Í dag ætlar Íslands- deild Amnesty International að reisa svolítið hreysi í verslunar- musterinu Smáralind. Gestum verður boðið upp á afrískt te og trumbuslátt frá Miðbaugs- Gíneu. Þetta er gert til þess að minna á fátæktina í heiminum, einkum þó í Afríku þar sem fjöldi fólks hefur verið hrakinn burt frá heimilum sínum. Ljósmyndir verða til sýnis og fólk er hvatt til að rita nafn sitt á „hús undirskriftanna“. Viðburðurinn hefst klukkan 13 í Dropanum á neðri hæð Smára- lindar, rétt hjá Hagkaupum. - gb Amnesty International: Fátækrahreysi í Smáralind LÖGREGLUMÁL Tveir piltar um tví- tugt voru handteknir í Reykja- vík aðfaranótt fimmtudags eftir að gleðskapur framhaldsskóla- nema fór úr böndunum, að því er kemur fram í frétt frá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu. „Lögreglan var kölluð á stað- inn en hinir handteknu höfðu tekið þátt í slagsmálum og í engu sinnt fyrirmælum lögreglu. Jafn- framt var fólki í gleðskapnum vísað á dyr en umgengni þess var ekki til fyrirmyndar og voru ein- hverjar skemmdir unnar á sam- komustaðnum. Ölvun veislugesta var áberandi,“ segir í lögreglu- fréttinni. - gar Fullir framhaldsskólanemar: Handtóku tvo pilta í gleðskap EFNAHAGSMÁL Töf á endurskoðun efnahagsáætlunar Alþjóðagjald- eyrissjóðsins (AGS) mun draga úr tiltrú á efnahagsstefnu stjórnvalda heima og erlendis, seinka afnámi gjaldeyrishafta, auka líkur á lægra gengi en hærri verðbólgu, draga úr svigrúmi til vaxtalækkunar og auka líkur á vaxtahækkun. Láns- hæfismat ríkissjóðs mun lækka í flokki ótryggra fjárfestinga, sem mun hafa slæm áhrif á endurfjár- mögnun skuld- bindinga inn- lendra aðila. Þessi svarta spá er sett fram í greinargerð efnahags- og viðskiptaráðu- neytisins til for- sætisráðherra, sem birt var í gær. „Ég er þessu mjög sammála,“ segir Þór- ólfur Matthíasson, prófessor í hag- fræði við Háskóla Íslands. „Það er vonum seinna að stjórnvöld reyni aðeins að útskýra samhengið fyrir almenningi. Við megum ekki búa okkur til einhverja draumaveröld og flytja síðan inn í hana.“ Í greinargerð ráðuneytisins segir að frestun á því að ganga frá samn- ingum við Breta og Hollendinga um Icesave eigi stóran þátt í töfum á endurskoðun áætlunar AGS. Hinn 23. október renni út lokafrestur til þess að greiða innistæðueigendum Landsbankans og Glitnis þá fjárhæð sem þeir eigi rétt á. Allar heimildir til að lengja frestinn séu fullnýttar; frekari tafir auki líkur á málshöfðun gegn stjórnvöldum, sem geti valdið því að lánshæfismat ríkissjóðs lækki enn frekar. „Endurreisn atvinnulífs- ins, og þar með aukin atvinnusköp- un, byggir á því að dregið verði úr óvissu og fjármálakerfi landsins endurreist,“ segir í greinargerð- inni. Yfirtaka kröfuhafa og skila- nefndar á Íslandsbanka og Nýja Kaupþingi skipti mjög miklu máli. Um áhrif af frestun endurskoðun- ar efnahagsáætlunar á þá vinnu segir: „Vandséð er að þau geti verið jákvæð. Sama má segja um skulda- stöðu heimilanna.“ „Ég held að þeir séu ekkert að mála þetta neitt dökkum litum, frekar hitt,“ segir Þórólfur. „Þetta liggur allt í kortunum,“ segir hann. „Mér líður mjög illa yfir þessu ástandi. Ef menn ætla virki- lega að fara að hlaupa þetta sjálfir án aðkomu AGS vegna rifrildis út af einhverjum greiðslum árið 2025, þá held ég að menn hafi misst sjónar á samhenginu.“ Í gær var einnig birt bréf frá Seðlabankanum til forsætisráðherra þar sem lýst er svipuðum áhyggjum af töfum á endurskoðun efnahags- áætlunar AGS. peturg@frettabladid.is Svört spá um áhrif tafa á áætlun AGS Tefjist endurskoðun á áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins enn frekar mun það seinka afnámi gjaldeyrishafta, veikja gengi krónunnar, auka verðbólguþrýsting og líkur á vaxtahækkun, auk þess að stuðla að verra lánshæfismati ríkissjóðs. ÞÓRÓLFUR MATTHÍASSON UMDEILT Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS/IMF) á sér marga andstæðinga og þessi var mættur á ársfund sjóðsins í Tyrklandi í upphafi vikunnar til að láta andstöðu sína í ljós. NORDICPHOTOS/AFP VÍSINDI Innan fárra ára munu genapróf kosta milli eitt og tíu prósent af því sem þau kosta í dag, enda verða verkfærin sífellt ódýr- ari, sem þarf til að gera þau. Svo segir Kári Stefánsson, stofnandi Íslenskrar erfðagreiningar. „Ég er sannfærður um að nær allir Vesturlandabúar muni fara í slík próf innan nokkurra ára,“ sagði hann í gær á alþjóðlegri líf- tækniráðstefnu IJP-samtakanna í Heidelberg í Þýskalandi. Genapróf, eða arfgerðagrein- ingu, má kaupa á internetinu hjá nokkrum fyrirtækjum og kosta þau á bilinu 399 til þúsund Banda- ríkjadali. Með þeim er svo reiknað út hversu líklegt er að hver og einn fái hina ýmsu sjúkdóma. Spurður hvort þessi próf séu sambærileg, hvort sömu niðurstöð- urnar kæmu út úr prófi til dæmis frá samkeppnisaðilanum Navigen- ics og úr prófi frá Íslenskri erfða- greiningu, segir Kári að arfgerðin sem greind er sé alltaf sú sama. Hins vegar sé ákveðinn munur á aðferðafræði fyrirtækjanna, þegar þær túlki niðurstöðurnar. „Það er því rými fyrir hárfínan mun á þeim,“ segir hann. Sama megi segja um kólesterólpróf milli landa. Niðurstöðurnar yrðu ekki endilega nákvæmlega þær sömu. - kóþ Kári Stefánsson segir að genapróf verði ódýrari innan skamms: Genapróf verði fyrir alla FRÁ RÁÐSTEFNU IJP Fyrirlestri Kára var vel tekið, en margar spurningar úr sal snerust um siðfræði frekar en erfða- fræði. FRÉTTABLAÐIÐ/KLEMENS VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 26° 21° 14° 11° 15° 15° 14° 12° 12° 24° 18° 27° 18° 34° 7° 19° 19° 8° Á MORGUN NA 3-8 m/s hvessir um kvöldið MÁNUDAGUR SA- og A- átt 8-15 m/s. 11 19 18 16 13 15 13 20 9 15 18 8 5 2 3 2 4 4 6 7 9 1 7 2 0 0 6 9 5 4 5 7 ÓVEÐUR Áfram verður hvasst á landinu í dag, einkum NV-til og SA-lands en það lægir heldur í kvöld. Á morgun verður fremur hæg- ur vindur framan af degi en hvessir við suðurströndina annað kvöld. Á mánudaginn verð- ur rok og rigning. Soffía Sveinsdóttir Veður- fréttamaður ZAHI HAWAS EFNAHAGSMÁL „Það er verið að breyta stjórnkerfinu í eina alls- herjar áróðursmaskínu fyrir rík- isstjórnina,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, spurður um mat Seðlabankans og efnahags- og við- skiptaráðuneyt- isins á afleiðing- um frekari tafa á efnahagsáætlun AGS.„Þetta eru vinnubrögð ríkisstjórnar sem er ráðþrota. Í staðinn fyrir að gera okkur grein fyrir því hverjar eru kröfur Breta og Hollendinga, þá velur ríkisstjórnin það að skapa jarðveg fyrir slæmar fréttir. Það er eins og henni séu allar bjargir bannaðar í hagsmunagæslu fyrir Ísland.“ - gb Formaður Sjálfstæðisflokks: Örþrifaráð rík- isstjórnarinnar BJARNI BENEDIKTSSON EFNAHAGSMÁL Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram- sóknarflokksins, segir greinar- gerðina vera hótunarbréf frá ríki- stjórninni. „Þarna er verið að hamra á því að ef menn fari ekki þessa einu leið sem ríkisstjórnin hefur lagt upp með þá fari hér allt í hundana. Aðalatriðið er að það er ekki búið að sýna fram á hvernig þessi AGS-leið á að gagn- ast okkur betur en hún hefur gert í mörgum öðrum löndum. Og nú er að koma á daginn að ríkisstjórnin hefur ekki einu sinni kannað aðra möguleika, og þá er verið að keyra hitt í gegn af offorsi.“ - gb Formaður Framsóknarflokks: Hótunarbréf frá ríkisstjórn SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.