Fréttablaðið - 10.10.2009, Page 28

Fréttablaðið - 10.10.2009, Page 28
28 10. október 2009 LAUGARDAGUR Þekktust þið eitthvað áður en þið hittust hér í dag? Eigið þið einhverjar sérstakar minningar hvort um annað? Jóhannes: „Ég veit að þú ert skörungur í háskólanum og ég hef heyrt þig láta til þín taka í málefnum kvenna. Svo hitti ég þig í mýflugumynd á ráðstefnu um styrk smá- ríkja, árið 2007. Þá var allt í gangi. Manstu eftir því?“ Silja Bára: „Já, ég man eftir því. Þetta var ein af þessum uppgangsráðstefnum. Landsbank- inn gaf okkur pening til að halda hana. Ég man aðallega eftir þér úr einu Idol-syrpunni sem ég hef fylgst með, þegar Lísa var að keppa, því hún er frá Ólafsfirði eins og ég. Annars hafði ég alltaf heyrt þetta „Jói og Simmi“ eftir að ég flutti heim frá Bandaríkjunum, án þess að vita hvað var eiginlega á bak við það. Hvað eruð þið búnir að vera lengi saman?“ „Tíu ár. Við erum búnir að gera ýmislegt misgott. Ég er ekki viss um að þér myndi líka það allt. Við skulum segja að við höfum ekki verið mjög pólitískt rétthugsandi í Sjötíu mín- útum á PoppTíví. Ég þori varla að segja frá því en við vorum til dæmis með dagskrárlið sem var með veðurfréttakonu sem fækkaði fötum.“ Sjáið myndirnar! Silja Bára: „Jáááá … hmmm. Æsispennandi! Það hefur fallið vel í kramið hjá táningsstrák- unum sem horfðu á ykkur?“ Jóhannes: „Já … en kannski ekki hjá Femín- istafélaginu!“ Silja Bára: „Nei, varla. En ég skil vel tilhneig- inguna til að ögra og ég held að það sé rosa- lega mikilvægt að ögra viðmiðum og normum í samfélaginu. Það er einmitt það sem femín- isminn gerir. En um leið og einhver er farinn að græða á nekt annarra, er ég farin að setja spurningarmerki við hana. Það er þessi hlut- gerving kvenna sem ég sætti mig ekki við. Ég á til dæmis rosalega erfitt með fréttavefinn Vísi.is.“ Jóhannes: Meinarðu út af „Sjáiði myndirn- ar!“? Silja Bára: „Einmitt það. Bakspik Jessicu Simpson stal senunni – myndir. Æi, þetta er svo þreytandi. Ef konur komast ekki í fjölmiðla án þess að vera leikföng eða „með bakspik“ hvernig á þá konan sem er forsætisráðherra að ná upp trúverðugleika.“ Nú er friðarsúlan hennar Yoko farin að tendra upp himininn yfir Reykjavík. Hvað finnst ykkur um hana og tilurð hennar? Jóhannes: „Mér finnst þetta ömurlegt fram- tak. Ég vil þetta burt! Neiii … Mér finnst þetta voðalega fallegt.“ Silja Bára: „Mér finnst þetta mjög skemmti- legt. Mér finnst gott að leyfa henni að lýsa upp þessa dimma mánuði, svona þegar snjórinn er ekki kominn.” Jóhannes: „Ég fékk samt ekki boðskort þegar hún var vígð. Ég var pínu sár. En ég hefði samt grenjað mig inn ef Paul McCartney hefði komið. Það er bara ekki alveg eins að hitta Ringo. Annars finnst mér Viðey vannýtt nátt- úruauðlind. Það er meira að segja hægt að tína kúmen þarna!“ Silja Bára: „Já, það er hægt að fara í skipu- lagðar kúmengöngur þangað. Hefurðu gert það?“ Jóhannes: „Nei, reyndar ekki. Ég kann ekki að nota kúmen.“ Silja Bára: „Ég nota það bara í laufabrauðið.“ Eldamennska framar þrifum Jóhannes: „Já, bakar þú alltaf laufabrauð? Nú bara verð ég að fara að læra að baka!“ Silja Bára: „Ertu ekki duglegur við það?“ Jóhannes: „Nei, alls ekki. En ég elda reyndar mjög oft. Við erum með mjög fína verkaskipt- ingu á heimilinu. Ég elda og hún þrífur. Ég er ofalinn hvað þrifin varðar.“ Silja Bára: „Þrif eru nú ekki heldur mitt helsta áhugasvið. Það gerði útslagið hjá mér þegar pabbi sagði við mig einn daginn: „Silja mín, þér er svo margt betur til lista lagt en að þrífa.“ Þá fór ég og réði mér manneskju í það. En ég er mjög góður kokkur.“ Jóhannes: „Er það? Hver er þín sérdeild?“ Silja Bára: „Ég bý til besta lasanja í heimi. Kreppan hefur reyndar haft svolítil áhrif á það því ég nota ricotta-ost í það og hann hefur ekki fengist á landinu lengi.“ Jóhannes: „Það er alveg með kjöti og öllu … þetta er ekkert svona grænmetis?“ Silja Bára: „Nei, nei, nei, maður stendur ekki í svoleiðis veseni. Svo geri ég brjálæðislega góðan amerískan bröns. Pönnukökur, egg, beikon, steiktar kartöflur …“ Jóhannes: „Mmm, hljómar vel. Ég elda hins vegar mikið kjúkling. Og svo þykir mér voða gaman að búa til mínar eigin pitsur. Ég er búinn að mastera þennan botn.“ Nú hafið þið setið hér að spjalli í góðan klukkutíma og ættuð að geta nefnt þrjú atriði hvort um annað sem þið teljið vera sönn. Jóhannes: „Ég held að þú vakir lengi.“ Silja Bára: „Já, góður! Það er alveg rétt hjá þér. Ég er mikill nátthrafn. Er þá komið að mér? Ég ætla að láta mér detta í hug að þú dekrir dóttur þína. Er það ekki?“ Jóhannes: „Já, ég held það sé rétt hjá þér. Ann- ars held ég að pabbar séu yfirhöfuð voðalega veikir fyrir stelpunum sínum. Og ég er allur í stelpunum, það er rétt rúmur mánuður í næstu stelpu hjá mér. Átt þú einhver börn?“ Silja Bára: „Nei, ég er alveg laus við það. En ég á fjögur guðbörn. Mig langar ekki til að verða einstætt foreldri. Og mér hefur aldrei dottið í hug að fara að stofna fjölskyldu með einhverjum.“ Útvarpsræða á táknmáli Jóhannes: „Ég get ímyndað mér að þú hlustir lítið á Bylgjuna.“ Silja Bára: „Já! Það er alveg rétt hjá þér. Ég hlusta lítið á útvarp, eiginlega bara á Rás 1. Stundum gef ég Morgunvaktinni á Rás 2 séns en yfirleitt er þar aðeins of mikill hressleiki fyrir mig á morgnana.“ Jóhannes: „Já, hann getur verið svolítið pirr- andi. Ef hann er ekki ekta.“ Silja Bára: „Ert þú ekki annars með einhvern útvarpsþátt?“ Jóhannes: „Jú, á laugardagsmorgnum klukkan níu.“ Silja Bára: „Á hvaða stöð?“ Jóhannes: „Á Bylgjunni!“ Silja Bára: „Úbs … Heyrðu! Getur verið að þið hafið verið með í fyrsta skipti í útvarpi ræðu á táknmáli? Hennar Svandísar Svavarsdóttur? Jóhannes: „Já! Það vorum við.“ Silja Bára: „Sko, ég heyrði það. Það var ógeðs- lega fyndið.“ Jóhannes: „Þetta var einmitt það þriðja sem ég ætlaði að nefna. Að þú værir með Svandísi í símaskránni.“ Silja Bára: „Já reyndar …“ Jóhannes: „Nei, ég var að djóka!“ Silja Bára: „Ég á tvö eftir. Ég ætla að giska á að þú hafir ekki mætt á marga mótmælafundi síðasta vetur. Jóhannes: „Það er alveg laukrétt! Ég var samt í næsta húsi. Inni í höfuðstöðvum Landsbank- ans. Þorði ekki fyrir mitt litla líf að fara út úr húsi. Fórst þú?” Silja Bára: „Já, ég fór nokkuð oft. Ég var ein- mitt að stytta mér leið yfir Austurvöllinn þegar táragasinu var beitt þarna í janúar. Ég slapp nú samt við að fá táragas í augun en hljóp inn í 10/11 og keypti lauk sem ég tróð upp í fólkið.“ Líkamsárás í Ameríku Jóhannes: „Ég held þú eigir kött.“ Silja Bára: „Já! Meira að segja tvær kisur. „Kitchen og Closet. Þær eru amerískar, ég kom með þær með mér heim frá Ameríku.“ Jóhannes: „Bjóstu lengi þar?“ Silja Bára: Já, í ellefu ár. Fyrst var ég au- pair, svo í grunnámi, mastersnámi og endaði í doktorsnámi. Ég lenti reyndar í líkamsárás þegar ég var nýbyrjuð í doktorsnáminu ’99. Ég var svo bara í skólanum að nafninu til á meðan ég var að jafna mig, svo ég héldi sjúkratrygg- ingunum og sama lækninum.“ Jóhannes: „Hvað ertu að segja?! Hvað kom eiginlega fyrir?“ Silja Bára: „Sennilega var verið að reyna að brjótast inn til mín. Ég kom heim eitt kvöldið og þá var maður í glugganum hjá mér. Hann grýtti í mig kantsteini. Ég hef haft skrautlega sjúkrasögu eftir það.“ Jóhannes: „Þetta er skelfilegt að heyra. En ég er glaður að þú komst vel frá þessu. Annars sæti ég hér einn á rökstólum!“ Silja Bára: „Já, heyrðu þetta er kannski ágæt- ur punktur. Ég ætla að giska á að þú hafir aldrei þurft að leggja fram ofbeldiskæru.“ „Nei, nei. Eða heyrðu, jú! Það var bara í Árbæjarskóla, fyrir langalöngu. Það var út af einhverjum hrekkjusvínum í 10. bekk sem tuskuðu mig til þegar ég var í 8. bekk.“ Á ársafmæli kreppunnar er ekki hægt annað en að spyrja hvaða áhrif hún hefur haft á líf rökstólaparsins. Jóhannes: „Mér finnst margar góðar hliðar á kreppunni, með fullri virðingu fyrir öllu því erfiða sem fylgir henni fyrir marga. Ég hef fundið það á eigin skinni að ég er útsjónar- samari og nýtnari. Og ég held við höfum svona hugarfarslega haft gott af því að springa í loft upp. Við höfum verið dálítið ofalin.” Silja Bára: „Ég er sammála þér í því að maður er orðinn útsjónarsamari. Maður var farinn að taka mörgum hlutum sem sjálfgefnum. Mér fannst hið eðlilegasta mál að geta gert þá kröfu að ég fengi avókadóolíu bara úti í Mela- búð. Og hún var sko til þar!” Jóhannes: „Melabúðin er markaðsundur!“ Silja Bára: „Já! Og félagsmiðstöð líka.“ Silja Bára: „En þótt ég sé sammála því að við höfum haft gott af smá uppstokkun hefði ég ekki viljað hafa þetta svona harkalegt. Það var til dæmis fullt af fólki að vinna í bönkun- um sem trúði á leiðsögn þeirra sem voru í for- ystunni. Upplifun þessa fólks á svikum og því að það geti ekki treyst sinni eigin dómgreind þurftum við ekki á að halda.“ Jóhannes: „Ég starfaði í Landsbankanum í fimm ár og þegar maður horfir til baka er dálítið skrýtið að hafa verið í bankanum í heilt ár eftir hrunið og upplifað þetta allt saman. Það var til dæmis mjög sérstakt að lesa bók- ina Hrunið, svolítið eins og að hafa leikið í kvikmynd og lesið handritið eftir á.“ Útsjónarsamir sælkerar Kvenskörungnum og femínistanum Silju Báru Ómarsdóttur myndi sjálfsagt ekki líka allt það sjónvarpsefni sem grallaraspóinn Jóhannes Ásbjörnsson og vinir hans í Sjötíu mínútum létu frá sér fara í gamla daga. Það fór þó vel á með þeim Silju og Jóa, sem hafa bæði ástríðu á eldamennsku og skiptust á uppskriftum á rökstólunum. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir fylgdist með. Á RÖKSTÓLUM SILJA BÁRA OG JÓHANNES Á meðan ljósmyndari Fréttablaðsins smellti nokkrum myndum af rökstólaparinu gaf Silja Jóhannesi uppskrift að dýrindis lambalæri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Jóhannes … er einbirni. … hefur ekki bein í nefinu og getur því flatt það alveg út með þuml- inum. … ólst upp í Árbænum og heldur með Fylki. … reyndi að komast inn í Leiklist- arskólann eftir Versló en datt út á lokasprettinum. … spilar á gítar og er forfallinn Bítlanörd. Silja Bára … fylgist með bandarískum háskólafótbolta og heldur með USC Trojans. … er svo trygg sínu liði að hún er með baráttusöng skól- ans sem hringitón á gemsanum. … æfði sund með Óðni og skíði með KR. … var í stjórn MORFÍS í menntaskóla en þorði aldrei að halda ræðu sjálf. Það hefur þroskast af henni með árunum. … er stofnfélagi Garðyrkjufélagsins Snotra. Í félaginu eru þrír félagar og þrjár deildir, Vesturbæjar-, Þingholts- og Norðurmýrardeild. ➜ VISSIR ÞÚ AÐ...

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.