Fréttablaðið

Date
  • previous monthOctober 2009next month
    MoTuWeThFrSaSu
    2829301234
    567891011
    12131415161718
    19202122232425
    2627282930311
    2345678

Fréttablaðið - 10.10.2009, Page 41

Fréttablaðið - 10.10.2009, Page 41
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 SUNNUDAGSLEIÐSÖGN verður um Listasafn Íslands á sunnudaginn klukkan 14. Sigríður Melrós Ólafsdóttir sýningarstjóri beinir sjónum að textílverk- um, sérstaklega verkunum Fiskikonur eftir Hildi Hákon- ardóttur og Punt eftir Hildi Bjarnadóttur. Höfundar verkanna taka þátt í leiðsögninni. www.listasafn.is „Fyrri hluta helgarinnar verður mikið til varið niðri í Íslensku óper- unni. Ég er varasöngvari í hlut- verki Góðhjartar í Ástardrykknum eftir Donizetti sem verður frum- sýndur þann 25. þessa mánað- ar. Sem slíkur verð ég að fylgjast með öllum æfingum og vera með allt á hreinu ef eitthvað skyldi fara úrskeiðis,“ segir Jón Svavar Jós- efsson, söngvari, leikskólastarfs- maður og hestajárningamaður. Sökum anna við æfingar hefur Jón Svavar lofað sjálfum sér að gera eitthvað uppbyggilegt fyrir líkama og sál síðari hluta laugardags. „Fjallganga er eitthvað sem ég gæti vel hugsað mér. Ég veit svo sem ekki nákvæmlega hvaða fjalli ég ætti að sigrast á en Öskjuhlíðin kemur sterklega til greina, og þá jafnvel á hjóli,“ segir söngvarinn og glottir. Að útivist lokinni er ekki loku fyrir það skotið að Jón Svavar skelli sér í sund til að hvíla lúin bein. „Þá er manni reyndar ekk- ert að vanbúnaði að skella sér eitt- hvert út að borða, núðlusúpa væri tilvalin. Í beinu framhaldi er svo kjörið að renna á knæpu og kanna orðróm götunnar. Hvernig hljómar eitt blint stefnumót? Ölstofan á mið- nætti?“ býður Jón Svavar. Hlé verður gert á æfingum Ást- ardrykkjarins sunnudag og Jón gælir við að leggja land undir fót. „Ég hygg á heimsókn til úrvals- hjónanna ömmu og afa frá Torfu- felli sem dvelja nú á Heilsuhóteli í Hveragerði. Í leiðinni er aldrei að vita nema ég fjárfesti í hvera- rúgbrauði og kannski sunnlensku grænmeti. Þá er skylda að renna niður einum ís í kaupstað íssins. Svo er bara að njóta landslagsins og hveraskýjanna á heimleiðinni.“ Segir óperusöngvarinn Jón Svavar Jósefsson. kjartan@frettabladid.is Heimsækir afa og ömmu Söngvarinn Jón Svavar Jósefsson verður upptekinn við æfingar fyrri hluta helgarinnar. Hann hefur því lofað sjálfum sér einhverju uppbyggilegu þegar æfingum lýkur, eins og til dæmis fjallgöngu í Öskjuhlíð. Jón Svavar ætlar að njóta alls þess sem Hveragerði býður upp á til hins ýtrasta um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA s g Mjódd UPPLÝSINGAR O Nýtt námskeið hefst 16. október n.k.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue: 240. tölublað (10.10.2009)
https://timarit.is/issue/295964

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

240. tölublað (10.10.2009)

Actions: