Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.10.2009, Qupperneq 43

Fréttablaðið - 10.10.2009, Qupperneq 43
LAUGARDAGUR 10. október 2009 3 Kynningarplakatið fyrir tískusýningu de Castelbajacs lofaði sjóræningjum, páfagaukum og paradís. Tískuhönnuðurinn stóð sannar lega við orð sín og áhorfenda beið heil fjársjóðskista af lit- ríkum fötum, hákarlabúningum og augnleppum sem soðin voru saman með miklum húmor. Sýningin fór fram í Carrousel du Louvre og var búið að koma þar upp leikmynd með pálmatrjám, strákofum og risastórum útskornum guðalíkneskjum. Fötin báru öll keim af þemanu en fylgihlutirnir voru ekki síður hluti af heildarmyndinni. Á skóhælum sáust hákarla tennur og hálsmen voru gerð úr beinum. Sýningin snerist því að stærstum hluta um að vekja athygli og skemmta áhorfendum en ekki er ljóst hversu hentug fötin verði á götum stórborganna. solveig@frettabladid.is Mikilúðlegur páfagaukur prýðir þessa sérstæðu múnderingu. Fylgihlutirnir skiptu miklu máli eins og sést á þessum hákarlaskóm. Hann er ekki frýnilegur að sjá karlinn á kjólnum og myndi vafalaust hafa skotið mörgum sjóræningjanum skelk í bringu. Skrautleg fjársjóðskista Sjóræningjar, páfagaukar og hákarlar komu við sögu á tískusýningu Jean Charles de Castelbajac á tískuvikunni í París nýlega. Húmorinn var í fyrirrúmi á tískusýningu Castelbajacs. Sjóliðar skreyta þessi jakkaföt. Íslandsdeild Amnesty International stendur í dag fyrir táknrænni aðgerð í Smáralind til stuðnings fólki sem sætir þvinguðum brottflutningi víða í Afríku. Ljósmyndir verða til sýnis, aðgerðarkortum dreift, boðið upp á heitt afrískt te og trumbuslátt frá Mið- baugs-Gíneu. Þá verður undirskrift- um safnað á „hús undirskriftanna“ auk þess sem reist verður hreysi sem fólki er boðið inn í. Viðburðurinn er liður í herferð samtakanna, Krefj- umst virðingar: Mannréttindi gegn fátækt. Vakin er athygli á að hundr- uð þúsunda Afríkubúa um alla álfuna missa húsnæði sitt á hverju ári þegar þeir eru þvingaðir úr húsum sínum af yfirvöldum. Oftast fer útburðurinn fram án þess að farið sé að lögum og reglum, án viðvarana, viðræðna og skaðabóta. Í stað þess að bæta hús- næðiskost fólks og lífsskilyrði, sér- staklega þeirra sem búa við sárustu fátæktina, hrekja margar ríkisstjórnir fólk út í enn sárari fátækt. Dagskráin hefst klukkan 13 í Dropan- um á neðri hæð Smáralindar, rétt hjá Hagkaupum. Hreysi reist í Smáralind AMNESTY VEKUR ATHYGLI Á MANN- RÉTTINDABROTUM Hundruð þúsunda Afríkubúa missa húsnæði sitt á hverju ári.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.