Fréttablaðið - 10.10.2009, Síða 64

Fréttablaðið - 10.10.2009, Síða 64
36 10. október 2009 LAUGARDAGUR fyrr og svuntuþeysatónlist níunda áratugarins er greinilegur áhrifa- valdur. Bandið er á uppleið, þykir mjög hresst á sviði og hefur hitað mikið upp fyrir stærri bönd síð- ustu mánuðina, lið eins og Bloc Party, Kate Nash og Justice. ( Hafnarhúsið, föstudagskvöld kl. 23.50) Choir Of Young Believers Danirnir í þessu bandi fengu nýverið þessa umsögn hjá Íslandsvininum David Fricke í Rolling Stone: „Eins og að heyra Thom Yorke í miðju Roy Orbison- lagi frá sjöunda áratugnum“ – og sú lýsing er ekki fjarri lagi. Við hana má bæta að bandið hljóm- ar oft ansi líkt Beach Boys sirka Smiley Smile með hunangsgljáð- um bakraddakór og óvæntum kaflaskiptingum. Fleet Foxes kemur líka stundum upp í hug- ann. Fyrsta platan heitir This is for the white in your eyes og var kosin besta danska platan í fyrra. Jannis Noya Makrigiannis heit- ir aðalgaurinn og bandið er nú í útrás. Airwaves er skref í þeirri ferð. (Hafnarhúsið, fimmtudag kl. 22.00) Casiokids Þessir eru frá Bergen í Noregi og á samningi hjá ensku Moshi Moshi útgáfunni, sem hefur lengi verið viðloðandi Iceland Airwaves (og ber ábyrgð á sigurgöngu Florence and The Machine, Hot Chip og Lykke Li). Sveitin syngur á norsku og þegar fyrsta smáskífan kom út í fyrra var það fyrsta lagið á norsku sem komið hefur út í Englandi. Casiokids er hressandi hljómsveit sem sækir áhrif víða að, til dæmis frá sænska gæðarokkbandinu Bob Hund, hinum japanska Cornelius og frá Graceland-tímabili Pauls Simon. (Hafnarhúsið, föstudag kl. 21.50) James Yuill Breti með barta og gleraugu sem gæti verið efnafræðikennari frá 1975. Hann blandar saman lagrænum áhrif frá liði eins og Nick Drake, Radiohead og Sufjan Stevens, og taktrænum dýnamískum áhrifum frá liði eins og Justice, Chemical Brothers og Aphex Twin. Fyrsta platan hans heitir Turning down water for air og er nýkomin út. (Batteríið, föstudag kl. 23.20) Darling Don’t Dance Kvennatríó frá Árhúsum í Danmörku sem hefur gefið út eina plötu, Bare frames. Stelpurnar eru djúpt sokknar í sixtís bílskúrsrokk og eru kraftmiklar, skemmtilegar og örugglega skemmtilegar á sviði. (Grand Rokk, föstudag kl. 23.40) The Postelles Band sem hljómar eins og The Strokes ef The Strokes spiluðu sálartónlist og væru gefnir út hjá Motown-útgáfunni. Líkt og Strokes eru The Postelles frá New York-borg og samlíkingin nær lengra því einn Strókurinn, Albert Hammond Jr., hljóðvann nýjustu smáskífu The Postelles, 123 Stop. Bandið hefur gefið út eina fimm laga plötu og hitað upp fyrir stærri bönd eins og The Kills, The Wombats og The Cold War Kids. (Iðnó, aðfaranótt sunnudags kl. 00.40) When Saints Go Machine Fjórir ungir Danir sem byrjuðu með bandið 2007. Fyrsta platan kom út í maí og heitir Ten makes a face. Sem áhrifavalda nefnir bandið til sögunnar listamennina og grúppurnar Matthew Herbert, White Noise, Moloko, Morrissey, Beach Boys, sem og evrópsku teknósenuna. Tónlist bandsins er fjölbreytt og upplífgandi og undir áhrifum frá þessu öllu. (Hafnar- húsið, fimmtudag kl. 23.00) The Drums Bandarískt band sem situr sveitt við að taka upp fyrstu plöt- una sína þessa dagana. Platan er væntanleg frá Moshi Moshi- útgáfunni. Bandið hljómar dálít- ið furðulega, eða svona svipað og Joy Division hefði gert ef Ian Curtis hefði ekki verið þunglynd- ur kreppu-Breti heldur lífsglað- ur brimbrettagaur. Sveitin hefur bæði gert út frá New York, af því að músiksenan er svo góð þar, og Florida, af því brimið er svo gott þar. (Hafnarhúsið, föstudag kl. 20.50) Micachu & The Shapes Satt að segja var þessi enska hljómsveit sú eina sem ég þekkti almennilega þegar dagskrá Airwaves var kynnt. Ég hafði heillast af frábærri plötu henn- ar, Jewellery, sem kom út á árinu. Þetta er fyrsta plata sveitarinn- ar, enda eru þetta ungir krakk- ar. Söngkonan Mica Levi kallar sig Micachu og hún er aðal. Hún semur lög og texta, er með frekju- skarð og lítur út eins og stráka- stelpa – mjög kúl. Til hliðar er Raisa Khan á hljómborð og Marc Pell á trommum. Mica syngur og á það til að vera með ryksugu á sviðinu sem hún er eitthvað að fíflast með. Nokkuð „bözz“ hefur verið í krignum bandið. Þar spilaði Björk okkar nokk- uð hlutverk því hún sást dansa á tónleikum sveitarinnar þegar bandið var enn samningslaust og gaf sig síðan á tal við band- ið. Síðar birtist myndband með Micachu á heimasíðu Bjarkar og gefið hefur verið í skyn að Björk muni koma fram með bandinu á Airwaves. Bandið leggur upp úr einfaldleika á sviði. Það spilar gríðargóða, frumlega og ferska tónlist og ég held þau verði algjör snilld. (Hafnarhúsið, föstudag kl. 22.50) Kings Of Convenience Ég þekkti líka norska bandið Kings of Convenience. Það er eitt af aðalböndunum frá Bergen og í fararbroddi í svokallaðri Bergen-bylgju. Það er frægasta bandið á hátíðinni í ár, sem hefur satt að segja oft skreytt sig með frægari böndum. Erlend Øye og Eirik Glambek Bøe eru meðlimir Kings of Convenience og bandið sló í gegn árið 2001 með fyrstu plötunni sinni, Quiet Is the New Loud. Eins og nafnið bendir til var um lágstemmt og stílhreint skandinavíupopp að ræða, ekki ósvipað og Cardigans á góðum degi. Bandið hefur starfað með hléum og á milli hefur Erlend gert út The Whitest Boy Alive og gert sólóplötu og Eirik hefur verið í hljómsveitinni Kommode. Þriðja plata bandsins er að koma út þessa dagana og heitir Declaration of dependence. Platan er afslöppuð og róleg. Hljómsveitin verður kvartett þegar hún kemur fram á Airwaves. (Fríkirkjan, föstudag kl. 22.00) Metronomy Þetta enska band spilaði á Lundún- arútgáfunni af Airwaves í fyrra og á Airwaves 2005. Þá var stofnand- inn Joseph Mount, reyndar bara einn á ferð. Sveitin hefur breyst mikið síðan. Platan Night out, sem kom út í fyrra, hefur komið band- inu á kortið með þó nokkru trukki. Þar er allt léttara og poppaðra en Kafað í Airwaves-hauginn Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin verður haldin í ellefta skipti í næstu viku, frá miðvikudeginum 14. til 18. október. Að vanda er boðið upp á haug af tónlist, mestmegnis nýjar og vaxandi hljómsveitir og tónlistarfólk. Þetta er ansi mikill frumskógur svo Dr. Gunni tók sig til og fann út hvaða atriði hann langar mest til að tékka á. MICACHU & THE SHAPES METRONOMY JANNIS NOYA MAKRIGIANNIS (CHOIR OF YOUNG BELIEVERS) JAMES YUILL DARLING DON‘T DANCE WHEN SAINTS GO MACHINE THE DRUMS ➜ TÍU SPENNANDI ÍSLENSK ATRIÐI: ■ Hjaltalín: Mest spennandi bandið í dag og nýju plötunnar er beðið með mikilli eftirvæntingu. (Með kammersveit í Fríkirkjunni, fimmtudag kl. 23.00, og með Páli Óskari í Hafnarhúsinu kl. 00.20 aðfaranótt sunnudags) ■ Bárujárn: Spólgratt brimbrettapönk með þungarokks- gljáa. (Sódóma, föstudag kl. 20.00) ■ Caterpillarmen: Útúrproggaðir og hressir á því í lööööngum en fjölbreyttum lögum. (Grand rokk, laug- ardag kl. 19.30) ■ Morðingjarnir: Þriðja platan á leiðinni og pönkið gerist vígdjarfara með hverju árinu. (Nasa, miðvikudag kl. 21.00) ■ Sykur: Ungt og sællegt danspopp og plata á leiðinni – frábært eða frábært. (Batteríið, fimmtudag kl. 23.20) ■ Dynamo Fog: Hraustlegt og melódískt elektrórokk frá stálslegnu tríói. (Sódóma, miðvikudag kl. 22.30) ■ Fjallabræður: Líklega fyrsti karlakórinn á Airwaves lætur engan ósnortinn með karlmannlegum söng. (Nasa, fimmtudag kl. 19.30) ■ Feldberg: Allir þekkja lagið góða úr Nova-auglýsing- unni en nú hafa Eberg og Rósa gert heila plötu sem á að koma út bráðlega. (Nasa, laugardag kl. 21.40) ■ FM Belfast: Þessa stuðbolta þekkja flestir, og nú er vonandi að við fáum að heyra nýtt og djúsí stöff. (Nasa, aðfaranótt sunnudags kl. 01.10) ■ Útidúr: Fjölmenn sveit með fjölbreytnina í fyrirrúmi. Ilmandi popp og allt getur gerst! (Grand rokk, miðviku- dag kl. 22.00) CASIOKIDS THE POSTELLES KINGS OF CONVENIENCE
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.