Fréttablaðið - 31.10.2009, Side 2

Fréttablaðið - 31.10.2009, Side 2
2 31. október 2009 LAUGARDAGUR STJÓRNSÝSLA Félagsmenn í Lög- reglufélagi Vestfjarða vilja að Ísland hætti þátttöku í Schengen- samstarfinu og taki í staðinn upp vegabréfaeftirlit eins og tíðkaðist áður en til Schengen-aðildar kom 2001. Ályktun þess efnis var sam- þykkt á aðalfundi félagsins á mið- vikudag og skorað á ríkisstjórn og Alþingi að skoða málið. Gylfi Þór Gíslason, lögreglumað- ur á Ísafirði og formaður lögreglu- félagsins, segir að aðild að Scheng- en hafi ekki gefið góða raun. Fólk sem hingað komi í þeim tilgangi að fremja afbrot eigi greiða leið inn í landið. Hann segir að lögreglan hafi ekki mannafla til að stemma stigu við vaxandi glæpastarfsemi í landinu og því verði að bregð- ast við með ein- hverjum hætti. Þó að fjölga þyrfti fólki í landamæraeft- irliti myndi það álag sem fylg- ir löggæslu og öðru umstangi vegna glæpa minnka. Gylfi telur einsýnt að með sjálfstæðu og öflugu landamæra- eftirliti yrði hægt að stöðva tals- vert af því fólki sem kemur til landsins til að fremja glæpi. Sú skipulagða glæpastarfsemi sem talin er hafa skotið hér rótum kunni að hafa gert það í skjóli frjálsu fararinnar. Á aðalfundinum var jafnframt ályktað um rafbyssur og ákvörðun ríkislögreglustjóra um að sérsveit- armenn einir noti slík valdbeiting- artæki hörmuð. „Þetta er spurning um öryggi. Við getum lent í að fást við brjál- aða menn og getum kannski ekki annað en beðið eftir sérsveitar- mönnum,“ segir Gylfi. Óskað er skýringa ríkislögreglustjóra á ákvörðuninni. Aðalfundurinn skor- ar jafnframt á dómsmálaráðherra að hætta við fyrirhugaðan niður- skurð hjá lögreglu enda komi hann niður á öryggi lögreglumanna og þjónustu þeirra við landsmenn. bjorn@frettabladid.is Lögreglumenn vilja Ísland úr Schengen Lögreglufélag Vestfjarða telur að glæpum gæti fækkað með úrsögn Íslands úr Schengen. Skipulögð glæpastarfsemi kunni að hafa skotið rótum og þrifist í skjóli aðildar. Vestfirðingarnir vilja að almennir lögreglumenn beri rafbyssur. GYLFI ÞÓR GÍSLASON Ekki bíða! Eignastýring - Fjárfestingar - Fyrirtækjaráðgjöf - Séreignarsparnaður audur.is Séreignarsparnaði þínum er örugglega vel varið hjá Auði. Hafðu samband í síma 585 6500 og leyfðu okkur að segja þér hvers vegna. Opinn kynningarfundur mánudaginn 2. nóv. kl. 17:15, Borgartúni 29, 3. hæð Í LEIFSSTÖÐ Lögreglumenn á Vestfjörðum telja farsælla að Ísland hætti í Schengen og efli í staðinn eigið landamæraeftirlit. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Kjarni Schengen-samstarfsins er annars vegar að tryggja frjálsa för einstakl- inga um innri landamæri samstarfsríkjanna og hins vegar að styrkja baráttuna gegn alþjóðlegri afbrotastarfsemi. Upphaflega var stofnað til Schengen-samstarfsins árið 1985 með samningi Benelúxlandanna, Frakklands og Þýskalands um að fella niður eftirlit með ferðum manna yfir sameiginleg landamæri og styrkja um leið eftirlit gagnvart öðrum ríkjum. Tíu ríki bættust við í mars 2001: Norðurlöndin, Austurríki, Grikkland, Ítalía, Portúgal og Spánn. Í desember 2007 urðu níu ríki til viðbótar aðilar að sameiginlegu landa- mæraeftirliti Schengen-svæðisins: Eistland, Lettland, Litháen, Malta, Pólland, Slóvakía, Slóvenía, Tékkland og Ungverjaland. Heimild: Utanríkisráðuneytið 24 RÍKI EIGA AÐILD AÐ SCHENGEN Bakþankar á nýjum stað Í dag verða þær breytingar á röð efnis í Fréttablaðinu að Bakþankar færast til og verða hér eftir á sömu síðu og teiknimyndasögur blaðsins. Á bakið koma í staðinn fréttir af fólki í stuttu máli. FRÉTTABLAÐIÐ DÓMSMÁL Nítján ára gömul stúlka hefur verið dæmd til þriggja mánaða fangelsisvistar, skilorðs- bundinnar til tveggja ára, fyrir manndráp af gáleysi. Stúlkan ók bíl ölvuð, of hratt og með einn farþega umfram hámarksfjölda og missti stjórn á bílnum í beygju á Hafnarfjarð- arvegi þannig að hann valt. Einn farþega hennar lést í slysinu, tveir slösuðust töluvert og tveir til viðbótar minni háttar. Segir í dómnum að stúlkan hafi sýnt af sér stórfellt og vítavert gáleysi, en jafnframt skuli líta til þess að hún var ung að árum og hafði hreint sakavottorð. Stúlkan er svipt öku- réttindum í átján mánuði. - sh Ung stúlka dæmd á skilorð: Sek um mann- dráp af gáleysi VIÐSKIPTI Jón Ásgeir Jóhannesson og fjölskylda þurfa að útvega sjö og hálfan milljarð í nýtt hluta- fé til að halda félaginu 1998 ehf., en það er móðurfélag Haga sem aftur á Bónus. Eigendurnir hafa tæpa fjóra mánuði til verksins, að öðrum kosti tekur Kaupþing félagið yfir. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. Þar sagði einnig að vinnan væri komin af stað; þrír fjárfestar muni hver um sig leggja fram tvo og hálfan millj- arð króna í félagið. Skipt var um stjórn í félaginu nýverið og settust tveir fulltrúar Kaupþings þar inn. Rétt er að taka það fram að hluti þeirra sem eiga 1998 eru eigendur að Fréttablaðinu. - kóp Eigendur móðurfélags Haga: Þurfa að útvega 7,5 milljarða FJÁRMÁL Búist er við að Seðlabank- inn kynni í dag ákvörðun um að stigið verði fyrsta skrefið í áætl- un bankans um afnám gjaldeyris- hafta. Með því yrðu afnumin höft af innstreymi erlends gjaldeyris sem ætlað er í nýjar fjárfestingar. Áætlunin var samþykkt í byrjun ágúst. Þar kom fram að enda þótt gjaldeyrishöftin sem sett voru 28. nóvember í fyrra hafi verið talin nauðsynleg til að koma á stöðug- leika eftir hrun fjármálakerfisins sé mikilvægt að afnema höftin í áföngum til að koma efnahagsað- stæðum í eðlilegt horf. Var þá gert ráð fyrir að fyrsta áfanganum yrði náð „nokkuð fyrir 1. nóvember“ enda yrðu þá ýmis skilyrði að vera orðin uppfyllt. Meðal þeirra er hjöðnun verðbólgu og samstaða um langtímaáætlun í fjármálum ríkis- ins þannig að trú sé á því að ríkið væri fyllilega fært um að standa við skuldbindingar sínar. Ekki fékkst staðfest í Seðlabank- anum í gær að komið sé að því að hrinda fyrsta áfanga áætlunarinn- ar í framkvæmd. Hins vegar segir í tilkynningu frá bankanum að í dag verði kynntar „breytingar á reglum um gjaldeyrismál í sam- ræmi við áður kynnta áætlun um afnám gjaldeyrishafta“. Þann erlenda gjaldeyri sem fluttur verður til landsins sam- kvæmt nýju reglunum má skipta aftur úr krónum og flytja úr landi að nýju. „Innstreymið í byrjun ætti að styrkja krónuna“, segir í fyrr- nefndri áætlun Seðlabankans. - gar Búist við að Seðlabankinn stígi fyrsta skrefið í áætlun um afnám gjaldeyrishafta: Höftum létt af innstreymi gjaldeyris STJÓRNENDUR SEÐLABANKANS Breyt- ingar á reglum um gjaldeyrismál verða kynntar í Seðlabankanum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR DÓMSMÁL Lögmenn Árna M. Mathie- sen og íslenska ríkisins kröfðust þess fyrir dómi í gær að Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari viki úr sæti í skaðabótamáli sem Guð- mundur Kristjánsson hæstarétt- arlögmaður hefur höfðað vegna skipunar Þorsteins Davíðssonar í embætti héraðsdómara. Guðmundur sótti um dómaraemb- ætti við Héraðsdóm Norðurlands eystra árið 2007 og þótti mjög vel hæfur, eins og tveir aðrir umsækj- endur. Árni M. Mathiesen, þá settur dómsmálaráðherra vegna vanhæf- is Björns Bjarnasonar, skipaði hins vegar Þorstein Davíðsson í embætt- ið. Þorsteinn var metinn tveimur hæfisflokkum neðar en hinir þrír. Umboðsmaður Alþingis hefur gefið það álit sitt á málinu að annmarkar hafi verið á öllum þáttum skipunar- innar og að hæfasti umsækjandinn hafi ekki verið valinn. Guðmundur fór í kjölfarið í skaðabótamál, bæði gegn ríkinu og Árna sjálfum. Hann krefst fimm milljóna króna í bætur. Segir hann í stefnu að Árni hafi með ráðning- unni sýnt honum takmarkalausa lít- ilsvirðingu, niðurlægt hann opin- berlega, vegið að starfsheiðri hans og með valdníðslu vegið að æru hans og persónu. Karl Axelsson og Skarphéð- inn Þórisson, lögmenn ríkisins og Árna, kröfðust þess í gær að Sig- ríður Ingvarsdóttir héraðsdóm- ari viki sæti við meðferð málsins vegna viðtals sem hún veitti Ríkis- útvarpinu þegar málið var í hámæli í janúar 2008. Í viðtalinu ræddi Sigríður á almennum nótum um það að almenningur þyrfti að geta treyst því að staðið væri faglega að dóm- araskipunum. Þótt ráðherra hefði endanlegt skipunarvald þyrfti hann að halda sig innan eðlilegra marka og fara eftir faglegum sjónarmið- um. Lögmenn stefndu telja að and- inn í viðtalinu hafi verið slíkur að hann gefi tilefni til að krefjast þess að hún víki. Lögmaður Guðmundar mótmælti kröfunni. - sh Lögmenn Árna Mathiesen og ríkisins ósáttir við útvarpsviðtal sem dómari veitti: Vilja að dómarinn víki úr sæti ÁRNI M. MATHIESEN Sem settur dómsmálaráðherra skipaði Árni Þorstein Davíðsson í embætti héraðsdómara. DÓMSMÁL Bóndi á Suðurlandi hefur verið dæmdur til þess að greiða 300 þúsund krónur í sekt fyrir að vanrækja fóðrun tveggja hrossa svo og flutning á heyrúll- um yfir smitvarnalínu gegn dýra- sjúkdómum. Bóndinn hafði áður verið dæmdur fyrir illa meðferð á hrossum árið 2006. Maðurinn var ákærður fyrir að vanrækja aðbúnað og umhirðu á fimm hrossum. Fallið var frá ákæru vegna brota á einni hryssu. Hann var sýknaður af illri meðferð á tveimur hestum til viðbótar. Hins vegar þótti sannað að hann hefði vanrækt aðbúnað tveggja hrossa. - jss Bóndi á Suðurlandi: Sekt fyrir illa meðferð hrossa EFNAHAGSMÁL Árni Páll Árna- son félagsmálaráðherra skrifar í dag undir samkomulag við fjár- málafyrirtæki, lífeyrissjóði og Íbúðalána- sjóð um úrræði vegna skulda- vanda heimilis og einstaklinga. Þau taka strax gildi. Samning- arnir taka til greiðslujöfnun- ar fasteignaveðlána, greiðslujöfn- unar bílalána og bílasamninga og samkomulags um sértæka skuldaaðlögun. Með greiðslujöfn- un fasteignaveðlána á greiðslu- byrði reglulegra afborgana að verða færð aftur til þess sem hún var fyrir hrun. Eigi jöfnun- in að taka gildi á gjalddaga láns í desember þarf umsókn að ber- ast viðkomandi fjármálafyrir- tæki eigi síðar en tíu dögum fyrir gjalddaga. - kóp Félagsmálaráðherra: Úrræði vegna skuldavanda ÁRNI PÁLL ÁRNASON Finnbogi, höfðu útgerðarmenn ekki roð við þér? „Nei, og skýringarnar sem ég fékk voru ekki upp á marga fiska.“ Finnboga Vikari Guðmundssyni laganema var vísað af aðalfundi LÍÚ. Hann telur ástæðuna vera skrif hans um sjávarútveg. VIÐSKIPTI Fjármálaráðuneytið og skilanefnd Kaupþings hafa náð samkomulagi um að framlengja frest nefndarinnar til að taka ákvörðun um aðkomu kröfuhafa Kaupþings að Nýja Kaupþingi frá 31. október til 30 nóvember. Þá verður tekin ákvörðun um hvort Kaupþing eignast 87 pró- sent hlut í nýja bankanum, eða hvort hann verður áfram alfarið í eigu ríkisins. Skortur á upplýs- ingum er sögð ástæða frestsins, en þær vantar fyrir fjárhagsárið 2008 og níu fyrstu mánuði ársins 2009. - kóp Ákvörðun um Nýja Kaupþing: Lengja frest um einn mánuð SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.