Fréttablaðið - 31.10.2009, Side 26
26 31. október 2009 LAUGARDAGUR
Ísland varð 66. landið til að fá keðjuna
þegar McDonald‘s hóf starfsemi sína hér
í september 1993. Lyst ehf. hefur verið
sérleyfishafi McDonald‘s á Íslandi frá
upphafi. Jón Garðar Ögmundsson keypti
fyrirtækið fyrir sex árum. Á morgun opnar
svo veitingastaðurinn Metro á sömu
kennitölunni á sömu stöðunum þremur, í
Skeifunni, Kringlunni og á Smáratorgi. Jón
sér ekki eftir McDonald‘s og segir þessar
breytingar jákvæðar. „Það eru gríðarleg
tækifæri í því að vinna í nánu samstarfi
með innlendum framleiðendum. Mat-
seðillinn verður stílfærður að íslenskum
bragðlaukum. Stærstu „sellerarnir“ verða á
sínum stað, undir nýju nafni og með öðru
innihaldi, en við höldum í stílinn. Maður
hleypur ekki frá því sem maður hefur verið að selja, þetta eina og
hálfa milljón borgara á ári.“
Í nótt verður öllum ummerkjum um McDonald‘s rutt í burtu. „Mál-
tíðirnar munu lækka í verði hjá Metro og það verður meira lagt upp
úr salötunum en áður. Þetta verða svo girnileg salöt að fólk mun
geta hugsað sér að bjóða fólki þau í mat,“ segir Jón. „Starfsfólk verð-
ur komið í nýja búninga á morgun og við
höldum áfram að bjóða upp á barnabox.
Við kaupum dótið að utan og þetta verður
svipað og áður.“
Í upphafi var íslenskt kjöt í borgurum
McDonald‘s á Íslandi. Jón Garðar segir að
þetta hafi breyst fyrir fimm árum í kjölfar
kjötskorts á Íslandi. Síðustu árin hefur því
kjötið sem og flest annað komið í gámum
frá Þýskalandi – „McDonald‘s hefur ekki
gefið leyfi til að breyta þessu síðan þá,
sama hvað ég hef reynt,“ segir Jón. Tíu til
fimmtán ný störf verða til hjá innlendum
framleiðendum vegna breytinganna og
þær hafa ýmis jákvæð hliðaráhrif eins og
að framvegis verða allar umbúðir prentað-
ar innanlands. „Það er eitthvað sem aðrir
innlendir veitingastaðir njóta góðs af,“ segir Jón Garðar.
Ísland verður eitt af sex löndum Evrópu án McDonald‘s. Hin eru
Albanía, Armenía, Bosnía og Hersegóvína, Grænland og Vatíkanið.
Önnur lönd sem McDonald‘s hefur yfirgefið eru meðal annars Jam-
aíka, sem hefur verið án McDonald‘s síðan 2005 og Bermúda, sem
losnaði við keðjuna 1995.
1940: Fyrsti McDonalds-stað-
urinn opnar.
1954: Ray Kroc kemur inn í líf
McDonald‘s bræðranna.
1959: Hundraðasti McDon-
ald‘s staðurinn opnaður.
1961: McDonald‘s bræður
selja Ray nafnið og
reksturinn. Þeir reka þó
áfram upphaflega stað-
inn undir nýju nafni,
The Big M.
1963: Lukkudýr McDonald‘s,
Ronald McDonald, er
kynntur til sögunnar.
1967: Fyrsti McDonald‘s utan
Bandaríkjanna opnar í
Kanada.
1968: Big Mac-borgarinn
kynntur.
1968: Þúsundasti staðurinn
opnar.
1971: Fyrsti McDonald‘s í Evr-
ópu opnar í Hollandi.
1978: Fimm þúsundasti stað-
urinn opnar í Japan.
1984: McDonald‘s, styrktar-
aðili Ólympíuleikanna,
tapar stórfé á tilboðinu
„When the US wins, you
win,“ eftir að Sovétríkin
ákveða að sniðganga
keppnina.
1990: Stærsti staðurinn til
þessa opnar í Moskvu.
Sama ár opnar McDon-
ald‘s-staður í Kína.
1992: Fyrsti staðurinn í Afríku
opnar í Marakkó. Þar
með er McDonald‘s í
öllum heimsálfum.
1996: Staðurinn kemur til
hundraðasta landsins
þegar Hvítarússland fær
sinn McDonalds-stað.
2003: Auglýsingaherferðin
„I‘m lovin‘ it“ kynnt til
sögunnar.
2004: Kvikmyndin Super size
me vekur mikla athygli.
McDonald‘s bregðast
við og gefur hollustunni
meira gaum, hættir
meðal annars að ota
möguleikanum á að
„stækka máltíðina“ að
fólki.
V
eitingahús koma og fara,
erlendar keðjur jafnt sem
innlend veitingahús. McDon-
ald‘s er ekki fyrsta erlenda
skyndibitakeðjan sem yfirgef-
ur skerið. Hér fengust á tíma-
bili Burger King hamborgarar, kjúklingabit-
ar frá Popeyes, ís frá Dairy Queen og Ben
og Jerrys og pítsur frá Little Caesars. Þótt
McDonald‘s hverfi á braut geta aðdáendur
amerískra skyndibita eftir sem áður fengið
sér Taco Bell, KFC, Subways, Quiznos, Pizza
Hut og Dominos. Þetta er gott úrval miðað
við norræna borg, enda hefur löngum verið
talað um að Ísland sé ameríkaniserað land.
Þessu til viðbótar eru hér Ruby Tuesdays og
TGI Fridays, staðir sem eru hluti af amer-
ískum veitingahúsakeðjum, en teljast ekki
til skyndibita.
Borgarabræður opna búllu
Brotthvarf McDonald‘s er engu að síður
stórtíðindi, enda er engin önnur keðja jafn
þekkt. McDonald‘s er fyrirmynd annarra
keðja og er á næsta bæ við Kók og Disney
sem tákngervingur bandarískrar menning-
ar og bandaríska heimsveldisins. Aðdáunar-
vert og spennandi fyrirbæri að sumra mati,
en táknmynd hins illa að mati annarra. Tákn
um yfirgang auðhyggjunnar, ofurfram-
leiðslunnar sem lítilsvirðir hið smáa fyrir
hámarksgróða. Viðbrögðin við fréttinni um
McDonald‘s sé að hverfa frá Íslandi segir
sitt um vægi keðjunnar. Fáir létu það á sig fá
þegar Burger King hætti hér í fyrra.
Margar útgáfur af sögunni um uppfinn-
ingu hamborgarans eru til og allar ger-
ast þær í Bandaríkjunum í upphafi síð-
ustu aldar. Nafnið er annaðhvort komið frá
Hamborg í Þýskalandi eða bænum Hamb-
urg í New York ríki þaðan sem greiðasölu-
mennirnir Frank og Charles Menches komu.
Þeir fóru að selja steikt hakkað nautakjöt
í platta á milli brauðsneiða þegar skortur
var á pulsum. McDonald‘s-hamborgarinn
dregur nafn sitt af bræðrunum Richard og
Maurice McDonald. Þeir byrjuðu með pylsu-
vagn sem þeir kölluðu Airdrome í Arcadia í
Kaliforníu 1937. Þremur árum síðar stækk-
uðu þeir við sig, færðu greiðasöluna til San
Bernardino og breyttu nafninu í McDon-
ald’s Barbeque. Bræðurnir gerbreyttu búll-
unni 1948 og kynntu til sögunnar einfald-
ari matseðil og nýja framleiðsluaðferð. Nú
var eldað á einskonar færibandi, sem bræð-
urnir kölluðu „SpeeDee system“. Með kerf-
inu gátu þeir annað sívaxandi eftirspurn. Á
næstu sex árum voru opnaðir níu nýir stað-
ir í Kaliforníu.
47 milljón viðskiptavinir
Líklega hefði McDonald‘s-veldið aldrei
náð þessum svimandi hæðum hefði Ray
Kroc ekki komið inn í líf bræðranna. Hann
seldi hrærivélar, meðal annars multimix-
er-vél sem gat hrært marga mjólkurhrist-
inga í einu. Bræðurnir í Kaliforníu
pöntuðu svo margar slíkar
vélar að Chicago-búinn Kroc
gerði sér ferð til þeirra til að
athuga hvað væri eigin-
lega í gangi. Hann heill-
aðist af fyrirbærinu og
þá sérstaklega „SpeeDee
systeminu“. Hann fékk þá
hugmynd að framselja öðrum
leyfi til að reka McDon-
ald‘s-staði og sá um þessa
„franchise“ þjónustu. Svona
byrjuðu McDonald‘s-staðirn-
ir að breiðast út um Bandarík-
in og urðu smám saman að því
veldi sem þeir eru í dag.
Í dag eru meira en 31.000
McDonald‘s-staðir í
heiminum í 122 lönd-
um. Staðirnir þjónusta
47 milljónir kúnna á
dag og starfsmenn
eru um 400.000.
Reyndar hefur keðjan
munað fífil sinn fegri.
Hún hefur tapað niður
forystunni sem stærsta
skyndibitakeðja heims.
Sú stærsta í dag er
Yum! Brands-keðjan, en
þar innanborðs eru Taco
Bell, KFC, Pizza Hut,
Wingstreet, Long John
Silver’s og A&W veit-
ingahús. Subway-keðjan
er næst-stærst en McDon-
ald‘s er í þriðja sæti.
Bæ bæ McDonald‘s!
SÍÐASTA STJÖRNUMÁLTÍÐIN (Í BILI) Það á eftir að koma í ljós hvort McDonald‘s eigi afturkvæmt á skerið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SÖGUFRÆGUR STAÐUR Fyrsti
McDonald‘s-staðurinn, í San
Bernardino.
EKKI ÁRENNILEGUR Svona leit
fyrsti Ronaldinn út.
MCDONALDS DÓT Í HRÖNN-
UM Margir safna McDonald‘s
varningi.
METRO FRANSKAR Það sem koma
skal: Íslenskar franskar í íslenskum
umbúðum.
MCDONALD‘S Þessi heimsfræga hamborgarakeðja kom til
Íslands í september 1993.
McDonald‘s hefur lengi notað börnin til að draga
foreldrana að stöðunum. Lukkudýrið Ronald kom
til sögunnar 1963 en sérstök barnabox – Happy
meals – byrjuðu að fást árið 1979. Í framhaldinu
var lögð áhersla á að auglýsa staðinn upp sem
veitingastað fyrir alla fjölskylduna. Leiksvæðum var
komið fyrir og rúsínan í hamborgaraendanum var
dótið sem fór að fylgja með barnaboxunum. Fljót-
lega var byrjað að tengja dótið nýjum bíómyndum.
Fyrsta myndin til að tengjast McDonald‘s var Star
Trek: The Motion Picture árið 1979. Disney var
löngum öflugur samstarfsaðili McDonald‘s en hætti
samstarfinu árið 2006 því fyrirtækið vildi tengjast
hollari fæði.
McDonald‘s dót úr boxum og aðrir munir tengdir
fyrirtækinu eru vinsælir hjá söfnurum. Í mars seldi
ellefu ára strákur, Luke Underwood, safn með
meira en fimm þúsund McDonald‘s leikföngum á
11.500 dollara (1,5 milljónir kr.). Ef einhver hefði
verið svo fyrirhyggjusamur að geyma allt dótið sem
hefur fylgt með McDonalds‘s barnaboxum á Íslandi
frá byrjun – í óopnuðum umbúðum náttúrlega
– væri hann væntanlega í góðum málum í dag.
➜ TÍMALÍNA MCDONALD‘S
Í dag er síðasta tækifærið
til að snæða McDonald‘s
á Íslandi. Á morgun tekur
alíslenska hamborgarakeðjan
Metro. Engin frétt vikunnar
hefur vakið eins mikla athygli
og brotthvarf keðjunnar.
Sumir fagna endalokunum á
meðan aðrir gráta. Dr. Gunni
kveður menningarfyrirbærið.
McDonald‘s á Íslandi McDonald‘s, börnin og dótið