Fréttablaðið - 31.10.2009, Page 36
2 fjölskyldan
Fjölskyldan kemur út mánaðarlega með
helgarblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Sigríður Björg
Tómasdóttir Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Anton
Brink Pennar: Karen Kjartansdóttir, Gunnar Hjálmarsson,
Gunnþóra Gunnarsdóttir, Vera Einarsdóttir Ljósmyndir:
Fréttablaðið Auglýsingar: Benedikt Jónsson benediktj@365.is
Sigríður
Tómasdóttir
skrifar
Það skemmtilegasta sem ég veit er að horfa á Star Wars, sagði tæplega fimm ára sonur minn við vinkonu mína á dögunum. Hún var efins,
byrjar Star Wars-áhuginn virkilega svona snemma?
Snemma fannst mér ekki rétta orðið þegar ég hef
haft tilþrif tveggja ára dótturinnar fyrir augunum
um skeið. Sú tekur prik í hönd og segir da va (Star
Wars) og beinir að gestum og gangandi með tilheyr-
andi hljóði – vúvú, sem á að minna á hljóð í geisla-
sverði.
Ég hef ekki haft lúmskt gaman af þessum vopna-
burði smábarnsins, sem gjarnan fær að vera í
hlutverki vélmennisins R2D2 (dídúdídú) í Star
Wars-leikjum heimilisins, eða þá varnarkúlu sem
drengurinn vill meina að leiki hlutverk í heimi
Stjörnustríðs. Rétt er að taka fram að ég er lítið
menntuð í fræðum nýju myndanna þriggja.
Ég hélt sjálf ógurlega upp á „gömlu“ myndirnar.
Þegar ég ákvað að rifja upp kynnin við þá fyrstu
af gömlu myndunum síðastliðið vor fékk strák-
urinn að sjá hluta hennar. Ekki þurfti meira til,
honum fannst þetta brot alveg stórkostlegt og þá
einkum Svarthöfði magnaður. Mér fannst hann nú
í það yngsta fyrir myndina og við tókum ekki upp
kvikmyndaþráðinn fyrr en með haustinu. Þess má
þó geta að í millitíðinni fóru ógurlega margir Star
Wars-leikir fram á heimilinu, prik urðu að geisla-
sverðum og skikkjur að Svarthöfðabúningi. Einnig
var gamalt legódót dregið fram með ýmsum hetj-
um nýrri myndanna sem nágrannadrengur sá um
útskýringar á.
Í haust hófst svo það verkefni vetrarins að horfa
á allar myndirnar sex – drengnum til mikillar
ánægju. Hann situr límdur við sjónvarpið og hefur
mesta ánægju af bardögum. Stúlkuna, sem fékk að
horfa á nokkrar mínútur, þurfti að draga grátandi
í burtu hrópandi „dava“ áður en hún var
svæfð. Ég hef hins vegar ekki haldið
meira út en áhorf með öðru auganu, svo
langdregnar eru þessar myndir. Sögu-
þráðurinn er líka frekar ruglingslegur
og ég hef ekki lagt í miklar útskýring-
ar á honum nema að hann snúist um
baráttu þeirra vondu og góðu.
Á því hafa börnin áhuga – hvort
sem er í bók eða mynd. Sú litla
heldur því reyndar fram stund-
um að hún sé að horfa á Star
Wars þegar barnatíminn er
í sjónvarpinu. Og held-
ur áfram að munda
sverðið af miklum
glæsileik.
Da va dídúdídú
Einn mesti frumkvöðull í tónlistar-kennslu og tónlistarstarfi Íslend-inga, Guðmundur H. Norðdahl, vinnur um þessar mundir hörðum
höndum að því að útbúa nýtt kennsluefni
fyrir börn. Efninu er ekki aðeins ætlað
að opna augu þeirra fyrir heimi tón-
listarinnar heldur stefnir Guðmundur
einnig að því að styrkja hæfileika
þeirra til að skilja stærðfræði
og tungumál.
Guðmundur er 81 árs og á að
baki nærri 70 ára tónlistarferil.
Hann hefur stofnað tónlistarskóla
og starfað víða um land sem
hljómsveitarstjóri, hljóðfæraleik-
ari, kór- og lúðrasveitastjórnandi auk
þess sem hann hefur ávallt verið við
tónlistarkennslu eða í starfi skólastjóra
tónlistarskóla. Mest yndi hefur hann þó
haft af því að kenna ungum börnum töfra
hljómanna. „Börnin er eina óspillta fólk-
ið á Íslandi,“ segir Guðmundur og hlær
góðlátlega þegar hann er spurður hvers
vegna hann hafi helst kosið að starfa
með börnum sem ekki þykir eins fínt
að kenna og fullorðnum.
Um þessar mundir endursýnir
Ríkissjónvarpið barnaefnið Flaut-
an og litirnir sem fyrst var sýnt
um miðjan níunda áratug síðustu
aldar. Efnið útbjó Guðmundur
með hliðsjón af samnefndum
kennslubókum sínum en fyrsta
hefti þess hefur selst í þúsund-
um eintaka og telst með sölu-
hæstu bókum hér á landi. Guð-
mundur segir efnið þó barn síns
tíma. Það sem hann sé nú að útbúa
ásamt fleiri fagmönnum sé ný tækni og
nýjar aðferðir.
„Með því vil ég kenna fimm til sex
ára krökkum lestur og reikning með
tónlist,“ segir hann og bendir á að
sama grunn þurfi til að ná tökum
á þessu námsefni. Teikni-
myndafígúrur muni leið-
beina barninu og metnaður
lagður í að leiða barnið áreynslulaust á
brautir áhuga og þekkingar.
Í tónlistarskóla Hafralækjarskóla í
Þingeyjarsýslu var hafið samstarf við
grunnskóla og lögð áhersla á faglega
samræmingu tónlistar við almennt
skólastarf. Guðmundur kom að
stofnun skólans, eins og svo
margra annarra, og segir hann
starf skólans ávallt hafa verið til
fyrirmyndar í þessum efnum.
„Krakkar eru svo móttækilegir
og gleypa í sig allt,“ segir hann.
Því sé mikilvægt að vanda til verka
við fræðslu þeirra.
Guðmundur sinnir nú tónlistarkennslu
í Fossvogsskóla auk þess sem hann vinn-
ur að því að útbúa tæki og kennsluefni
til að auðvelda börnum námið. Spurður
hvort hann hafi ekki áhuga á að fara að
setjast í helgan stein skellir hann upp
úr og svarar: „Ég vil kenna á meðan ég
hef heilsu til. Annars myndi mér bara
leiðast.“ kdk
Miðlar stærðfræði og
TUNGUMÁLI Í TÓNUM
Guðmundur H. Norðdahl hefur á nærri sjötíu ára löngum tónlistarferli starfað víða um land og ávallt þótt
hvalreki í menningarlífinu. Hvar sem hann kemur vaknar áhugi á hljómum meðal fólks, ekki síst ungra
barna. Von er á nýju kennsluefni fyrir börn frá honum þar sem teiknimyndafígúrur sjá um kennsluna.
BARNVÆNT
Nýtur þess að miðla þekkingu til barna Þótt
liðin séu um 20 ár frá því að Guðmundur
lét útbúa barnaefnið Flautan og litirnir eru
þættirnir enn á dagskrá RÚV. Von er á nýju
efni frá Guðmundi í takt við breytta tíma.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Draugagangur í Salnum
Tíbri heitir draugur sem birtist alltaf í
Salnum í Kópavogi 1. nóvember til að
segja sögur af vinum sínum sem eru
tónlistarmenn. Í ár ætlar Tíbri að segja
sögur af Poulenc og Beethoven og
hann verður ekki einn, því nornin
Kírikí, sem er alltaf að hrekkja, kemur
að hitta hann. Frá klukkan 12.30 verða
fjöllistamenn frá Götuleikhúsinu og
einnig tveir andlitsmálarar sem bjóða
upp á ókeypis andlitsmálun. Börn eru
beðin um að koma klædd í grímubún-
inga á tónleikana ef þau geta.
Tónleikarnir, sem hefjast klukkan eitt,
eru hluti af tónleikaröð fyrir börn sem
boðið er upp á í Salnum í vetur fyrstu
helgina í mánuðinum. Í desember
verða það spaugararnir í Ljótu
hálfvitunum sem ætla að skemmta
börnunum þannig að segja má að
tónleikarnir séu af fjölbreyttum toga.
Miðaverð eru þúsund krónur.
og enn betri fréttir
Frábærar
Til þeirra þúsunda Íslendinga sem nota
Pro-Gastro8 við meltingarörðuleikum.
50% meira er af góðgerlum í hverju hylki sem þýðir
að sumir þurfa bara að taka inn 1 hylki á dag.
Pro-Gastro8 góðgerlanir vinna gegn erfiðri meltingu.
Pro-gastro8 fæst í APÓTEKUM, HEILSUBÚÐUM
OG HEILSUHILLUM STÓRMARKAÐANNA!