Fréttablaðið - 31.10.2009, Page 82
54 31. október 2009 LAUGARDAGUR
Gísli Rún
ar og Lad
di árita
DVD diski
nn í ELKO
Lindum
í dag milli 1
4 og 15.
Fyrsta fræðslukvöld Útóns,
Útflutningsskrifstofu íslenskr-
ar tónlistar, verður haldið í Nor-
ræna húsinu á þriðjudaginn. Þar
verður farið yfir gagnsemi sam-
félagssíðna á borð við Facebook,
Myspace, Flickr og Youtube við
kynningu á tónlist og menningar-
verkefnum.
Ariel Hyatt, fjölmiðlaplögg-
ari hjá almannatengslafyrir-
tækinu Cyber PR í New York,
hefur umsjón með fræðslukvöld-
inu. Hún hefur víðtæka reynslu
af markaðssetningu á Netinu
og hefur á síðustu þrettán árum
verið fulltrúi yfir 1.400 tónlistar-
manna. Námskeiðið hefst klukk-
an 19.30 og kostar 4.000 krónur
inn. Skráningar fara fram á
greta@utflutningsrad.is.
Plöggari
á fræðslu-
kvöldi
Ljósmynd af hinni ungu söng-
konu Taylor Swift hefur valdið
miklu fjaðrafoki í Bandaríkjun-
um. Myndin var tekin í afmæl-
isveislu söngkonunnar Kate
Perry og á henni má sjá Swift og
ungan pilt brosa fallega framan
í ljósmyndarann. Það sem vekur
athygli er að pilturinn klæð-
ist skyrtu og er búið að mála
stærðarinnar hakakross á hana
að framanverðu. Hakakross-
inn hefur farið fyrir brjóstið á
mörgum Bandaríkjamönnum af
gyðingaættum. Talsmaður Swift
sagði að söngkonan hefði ekki
haft hugmynd um hakakrossinn á
skyrtunni. „Það voru teknar yfir
hundrað myndir af Taylor þetta
kvöld. Hún þekkir ekki þennan
pilt og áttaði sig ekki á tákninu
sem búið var að mála á skyrtuna
hans,“ sagði talsmaður söngkon-
unnar.
Sá ekki haka -
krossinn
ÓVART Taylor Swift vissi ekki af haka-
krossinum á skyrtu veislugestsins.
Ein af afleiðingum banka-
hrunsins fyrir ári er að Ís-
lendingar eru orðnir miklu
þakklátari fyrir það sem
hér er boðið upp á. Það er
blússandi mæting á tónleika
og listviðburði, enda fáir
svo sem á leiðinni til er-
lendra heimsborga að berja
heimsfræg atriði augum
á meðan gengið er eins og
það er. En eru tónleika- og
listviðburðahaldarar að
standa sig? Hefur miðaverð
hækkað úr hófi? Er íslenskt
verð samkeppnishæft við
erlent?
„Ef eitthvað er hefur verð á minni
tónleika lækkað,“ segir Ólafur
Thorarensen hjá Miði.is. „Þá er
ég að tala um á tónleika fyrir þús-
und manns og minna. Miðaverð
á stærri tónleika hefur svo stað-
ið í stað, til dæmis er sama verð á
Jólatónleika Björgvins og í fyrra.“
Ólafur staðfestir að miðasala á
alla listviðburði hefur aukist. „Við
sjáum aukningu í sölu bíómiða,
leikhúsmiða og á smærri tónleika,
en sala á stærri tónleika hefur
dregist saman, fyrst og fremst
vegna þess að það eru svo fáir
stórir tónleikar í boði!“
„Það sýndi sig bæði á Airwaves
og á Ragga Bjarna-tónleikunum
að landann þyrstir í tónleika,“
segir Ingólfur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri tækjaleigunnar
Exton. Hann segir fyrirtækið ekki
hafa hækkað gjaldskrána eftir
hrun. „Það halda allir að sér hönd-
um, við jafnt sem tónleikahaldar-
ar. Við erum því með sama góð-
gerðadílinn og venjulega.“
Þyrfti að kosta miklu meira
Eyjólfur Kristjánsson heldur
Eagles-heiðurstónleika í Háskóla-
bíói í kvöld. Miðinn kostar 6.900
krónur. „Ég hélt svona tónleika í
Borgarleikhúsinu í mars í fyrra
og þá minnir mig að miðinn hafi
kostað 5.900 kr. Ég sé það að
núna hefði miðinn átt að kosta
miklu meira!“ segir hann og hlær.
Honum finnst miðaverðið alls ekk-
ert of hátt. „Nei, ekki fyrir þriggja
tíma skemmtun með öllu þessu
fólki. Það kostar rúmar sex millj-
ónir að halda þessa tónleika og
Háskólabíó tekur 970 manns. Svo
þarf ég að rífa nokkur sæti í burtu
til að koma fyrir mixer. Fólk sér
því að ég er ekki að labba í burtu
með margar milljónir í vasanum.
Ég held án gríns að ég hafi reikn-
að það út að ef ég sel alla miðana
fái ég 150 þúsund krónur í minn
hlut! En það er gaman að gera eitt-
hvað af hugsjón líka. Fólk þarf á
svona að halda í þessu árferði. Það
er gospelkór, rosalegt band og allir
helstu söngvarar þjóðarinnar. Ég
held að Eagles sjálfir séu ekkert að
koma. Ætli miðinn þyrfti ekki að
kosta hundrað þúsund kall á þá!“
Meiri samkennd
Öll tónlistarsenan nýtur góðs af
breyttu viðhorfi landans til inn-
lendrar skemmtunar, líka rokk-
senan. „Það er frábær mæting
og frábær stemming. Þetta sást
til dæmis vel á Airwaves,“ segir
Kristján Freyr Halldórsson,
trommuleikari rokksveitarinnar
Reykjavík! „Sem tónlistarmað-
ur finn ég fyrir meiri samkennd
í bransanum en áður, menn eru
klappandi hver öðrum á bakið út í
eitt. Svo er eins og gestir séu mun
tilbúnari en áður að borga sig inn.
Í góðærinu þurfti að dekstra fólk
á tónleika með bjór, plötu og sæng-
urverasetti, en samt vældi fólk
yfir því ef það þurfti að borga 500
kall inn. Nú borga gestir þúsund
kall og segja ekki múkk, finnst
það bara sjálfsagt. Það er eins og
fólk sé búið að fá meiri tilfinningu
fyrir peningunum sínum. Það er
eitthvað heilbrigt og fallegt við
stemminguna.“
drgunni@frettabladid.is
Heilbrigð stemning í tónleikahaldi á Íslandi
GERT AF HUGSJÓN Frá Eagles heiðurstónleikum Eyjólfs Kristjánssonar í fyrra. Hann
heldur aðra í kvöld.