Fréttablaðið - 31.10.2009, Page 96

Fréttablaðið - 31.10.2009, Page 96
DREIFING: dreifing@posthusid.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja FRÉTTIR AF FÓLKI Langt á milli aðal og vara Athugulir ferðalangar um borð í þotu Icelandair á milli Kaupmanna- hafnar og Keflavíkur á fimmtudags- kvöldið pískruðu sumir hverjir um hve formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins virtust á ólíkum stað í goggunarröðinni. Þorgerður Katrín sat nefnilega nær aftast í vélinni meðan Bjarni Benedikts- son formaður sat í hægindum viðskiptafarrýmisins. Töldu sumir þó um óheppilega tilviljun að ræða því Bjarni var að koma frá þingi Norðurlandaráðs, en Þorgerður frá EFTA-þingi í Þránd heimi. Þor- gerður og fleiri með henni höfðu misst af vél og fóru því heim um Kaup- manna- höfn. Varhugavert fyrirkomulag? Vélin frá Kaupmannahöfn var því óvenju þéttsetin þingmönnum og ráðherrum, en þar mátti auk Þorgerðar og Bjarna meðal annars sjá Sigmund Davíð Gunnlaugsson (á almennu farrými), Árna Þór Sig- urðsson, Árna Pál Árnason félags- málaráðherra, Guðfríði Lilju Grétarsdóttur og Helga Hjörvar. Pískr- uðu menn því líka í hópnum um hvort óhætt væri að hafa slík fyrirmenni öll saman- komin í einni og sömu vélinni. Merki um sparnað Ólíklegt er að samrýmist aðhalds- samari stefnu í útgjöldum að setja reglur um aðskilinn ferða- máta þingmannahópa. Þykir til dæmis merki um nýja tíma að þingmönnum sem sóttu þing Norðurlandaráðs var komið fyrir á þriggja stjörnu hóteli í 20 mínútna fjarlægð frá fundarstað. Betur fór um ýmsa starfsmenn á fundi ráðsins, sem sumir voru á fimm stjörnu hóteli, í um fimm mínútna göngufjarlægð. - óká Mest lesið 1 Hvetur eldri starfsmenn til að minnka við sig vinnu 2 Flest svínaflensutilfelli greinast í ungum börnum 3 Mótorhjólagengi myrti átta félaga 4 Stjórnvöld sögð pissa í skó lántakenda 5 640 milljóna króna launakrafa þingfest

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.