Ljósberinn - 01.12.1957, Page 35
& J<* & JC« Hí« J>í« *•
GURMR HENNAR MÖMM
Stefndu ó stjörnuna.
Sjómaður nokkur sagði eftir-
farandi sögu:
Fyrir mörgum árum var ég
á stóru seglskipi. Þetta gerðist
á dimmri stormnóttu. öldurnar
risu hátt, og við reyndum að
sigla skipinu frá ströndinni. En
okkur bar nær og nær brim-
garðinum með hverri mínútu,
sem leið. Skipstjórinn okkar var
reyndur sjómaður. Hann var
veikur, en tók sjálfur við stýr-
inu, þegar útlitið var sem
svartast. Hann tók á öllu, sem
hann átti til og gaf stuttorðar,
en ákveðnar fyrirskipanir.
— Karl, kallaði hann til min,
stattu hérna hjá mér, ef kraft-
ar mínir skyldu bresta. •—
Sérðu stjörnuna þarna uppi?
— Já, herra skipstjóri, svar-
aði ég.
— Ef ég ékyldi gefast upp,
skaltu stýra beint á stjörnuna,
og þá er ykkur óhætt. En ef
þið missið sjónar á stjörnunni,
þá er voðinn vís. —Og gleymdu
því ekki heldur, Karl, að það
er til ein stjarna, sem þú verð-
ur að stefna á, ef þú vilt kom-
ast í örugga höfn.
Ég skildi vel, hvað hann átti
við. Hann notaði þetta tæki-
færi til að benda mér á Jesúm
Krist. Það var ekki heldur í
fyrsta skipti, sem hann gerði
það.
Brátt voru kraftar hans á
þrotum, og hann gat ekki staðið
lengur við stýrið. Hann var
borinn niður í klefa sinn. En
um leið og hann var borinn
niður, kallaði hann til okkar:
— Missið ekki sjónar af
stjörnunni piltar!
Ég lét binda mig fastan við
stýrið, svo að mér skolaði ekki
fyrir borð. Ég stýrði beint eftir
stjörnunni, eins og skipstjór-
inn hafði sagt mér, og stjarnan
vísaði okkur á rétta leið. Við
komumst brátt úr allri hættu.
Þegar hættan var liðin hjá,
fór ég niður í klefa skipstjór-
ans. Þá var hann dáinn, og fáni
haíði verið breiddur yfir hann.
Ég kraup á kné við beð hans
með tárvot augu og bað Drott-
inn heitt og innilega um að
leiða mig eins farsællega í
gegnum storma lifsins eins og
hann hafði leitt okkur með
stjörnunni þessa nótt.
Bæn mín var heyrð. Upp frá
þeirri stundu hef ég ávallt átt
Jesúm Krist, sem leiðarljós lífs
míns.
HjarSpípan.
Það er til gömul helgisaga
um fjárhirðana í Betlehem:
Er þeir höfðu heyrt boðskap
eriglanna, fóru þeir til Betlehem
• til að sjá barnið. Þegar þeir
komu inn í fjárhúsið ætluðu
þeir að ganga að jötunni hver
á eftir öðrum og gefa barninu
ofurlitla gjöf hver.
Sá yngsti í hópnum var 13
ára gamall. Þegar hann kom að
jötunni, horfði hann frá sér
numinn á barnið, sem englarnir
höfðu sagt honum frá, og ætl-
aði ekki að geta slitið sig frá
því.
Á meðan hann stóð og horfði
á barnið, spurði hann sjálfan
sig:
Hvað á ég að gefa?
Hann hugsaði sem svo:
— Hér er næðingssamt og
barnið er illa klætt. Ég ætti að
fara úr skykkjunni minni og
breiða hana yfir jötuna, þá
verður barninu ekki kalt.
Drengurinn leit á skykkjuna
sína. Hún var bæði gömul og
slitin. Nei, hann varð að gefa
Jesúbarninu eitthvað betra.
Það varð að fá það bezta. Átti
hann nokkuð betra en smala-
skykkjuna? Jú, í vasanum
geymdi hann hjarðpípuna.
Þetta var bezta hjarðpípan,
sem til vat' á Betlehemsvöllun-
um. Þegar hann blés í hana,
þögnuðu allar aðrar hjarðpip-
ur, því að allir vildu heyra tón-
ana, sem hann náði úr hjarð-
pípunni sinni. Margir fjárhirð-
ar höfðu viljað kaupa hana af
honum og boðið mikið fé fyrir
hana. En drengurinn hafði
aldrei viljað selja hana, þótt
hann væri fátækur. Hjarðpíp-
an var dýrmætasti fjársjóður
hans.
Þá datt honum í hug: — Á ég
að gefa Jesúbarninu hjarðpíp-
una mína? Nei það er of mikið!
Honum varð aftur litið á
barnið, og þá sagði hann við
sjálfan sig:
— Jú, Jesúbarnið á að fá
hana, það á að fá það bezta,
sem ég á. En áður en ég gef
hana, ætla ég enn einu sinni að
leika á hana fallegustu tónana,
sem ég get.
Því næst fór hjarðsveinninn
út i horn í fjárhúsinu og tók að
leika á hjarðpípuna sína. Hann
lagði alla sína ungu sál inn í
tónana. Hinir yndislegustu tón-
ar fylltu fjárhúsið.
Hinir hirðarnir og Jósef
hlustuðu i mikilli hrifningu.
María spennti greipar og horfði
til himins. Henni fannst engla-
söngur fylla fjárhúsið.
Þegar síðustu tónarnir dóu
út, gekk drengurinn að jötunni
og lagði hjarðpipuna sína við
hliðina á Jesúbarninu.
Þá rétti Jesúbarnið, fram
litlu hendurnar sinartildrengs-
ins og brosti sínu fyrsta brosi.
Góð stúlka.
1 kirkjugarði nokkrum var
legsteinn á leiði lítillar telpu.
Á steininum stóðu þessi orð:
— Það var auðveldara að
vera góður, þegar hún var hjá
manni.
Þetta var sannarlega góður
vitnisburður!
LJOSBERINN
171