Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Qupperneq 5
FORSÍBA:
Frá setningu afmalishátiðar i tilefni 70
ára afmœlis Sænska iðnsambandsins 21.
seþtember 1975 i rúðhúsi Stokkhólms-
borgar. Við hlið forseta sambandsins sit-
ur Karl Gústaf, konungur Sviþjóðar.
E F N I :
Útgáfumál Landssambandsins ........ 5
Nauðsyn upplýsingasöfnunar 5
Þingsetningarræða Sigurðar Kristinssonar
forseta Landssambands iðnaðarm. 6
Ræða Gunnars Tlioroddsen,
iðnaðarráðherra ................... 12
3fi. Iðnþing íslendinga ............. 16
Úrdráttur úr ályktunum
36. Iðnþings íslendinga 26
Helgi Hermann Eiríksson — kveðja 30
Finnur O. Thorlacius, byggingameistari
— Minning ......................... 31
Hagskýrslur íslensks iðnaðar 32
Kynning á félögum eiginkvenna
meistara .......................... 36
Fjórir iðnaðarmenn heiðraðir 40
Norræn sainvinna .................... 42
Hvað er að gerast
í byggingariðnaðinum? 49
TÍMARIT IBNABARMANNA
Útgefandi:
LANDSSAMBAND
IÐNAÐARMANNA
Ritstjóri:
ÞÓRLEIFUR JÓNSSON
Setning og prentun:
SETBERG
UTGAFUMAL LANDSSAMBANDSINS
Timarit iðnaðarmanna kemur nú út eftir nokkurt hlé. Tvœr
ástceður liggja til pess að tímaritið hefur ekki komið út að undan-
förnu. Ber þá fyrst að nefna fjárhag Landssambands iðnaðarmanna,
sem var mjög bágborinn á sama, tíma og útgáfukostnaður fór mjög
hcekkandi. Nú eftir að úr hefur rcest að verulegu leyti hefur aðal-
áhersla starfseminnar fyrst og fremst beinst að pvi að endurskipu-
leggjct starfsemi Landssambandsins og beina henni að viðfangsefn-
um, sem ekki voru tök á að sinna áður. Nánar er gerð grein fyrir
pessu i skýrslu stjórnarinnar til siðasta Iðnþings.
Með því blaði, sem nú er að sjá dagsins Ijós, hefur verið fyllt i
pað bil sem myndast hafði i blaðaútgáfu Landssambands iðnaðar-
manna. Utgáfumálin voru rcedd á síðasta Iðnpingi, og var lögð
áhersla á, sem fyrr, að bráðnauðsynlegt er að Landssambandið eigi
sér öflugt málgagn. Mun nú stefnt að pvi, að timaritið liomi út
a.m.k. tvisvar sinnum á ári og útgáfa fréttabréfsins verði tekin upp
aftur. Skipuð hefur verið sérstök útgáfunefnd, sem verða mun rit-
stjóra og framkvæmdastjórn til ráðuneytis og aðstoðar við útgáfu-
málin. Er pað ósk aðstandenda blaðsins að félagsmenn aðildarfélaga
Landssambandsins leggi blaðinu til efni og komi með ábendingar
um úgáfu pess. Ennfremur er þess eindregið óskað að aðildarfélög
Landssambandsins sendi pvi timarit eða fréttabréf, sem pau gefa
út, en löngum hefur verið misbrestur á pessu. — Þ. J.
NADOSYN UPPLVSINGASÓFNUNAR
Það liggur i augum uppi að til pess að liœgt sé að taka skynsam-
legar ákvarðanir um ráðstafanir á atvinnu og efnahagsmálum, sem
snerta iðnaðinn, er nauðsynlegt að til séu góðar og áreiðanlegar
upplýsingar um hann.
í pessu blaði er gerð nokkur grein fyrir þeim göllum, sem eru á
upplýsingasöfnuninni hér á landi og hvaða annmarkar eru á peim
hagtölum sem til eru. Einn helsti gallinn er sá, að flestar hagtölur, sem
gagn er að, eru yfirleitt nœrri tveggja ára gamlar, þegar pœr sjá dags-
ins Ijós. Engar athuganir eru gerðar, sem sýna þróun iðnaðarins
á peim tima sem atburðarásin gerist, ncma Hagsveifluvog iðnaðar-
ins, sem Landssamband iðnaðarmanna stendur að í samstarfi við
Félag isl. iðnrekenda. Það hlýtur að vera krafa iðnaðarins, að úr
pessu sé bcett.
Landssamband iðnaðarmanna hefur að undanförnu gert umfangs-
miklar athuganir á pví, með hvaða hcetti best sé að standa að hag-
tölugerð fyrir iðnaðinn. Er nú unnið að tillögum um úrbcctur og
hefur verið tekið upp samstarf við Félag isl. iðnrelienda um þetta
mál.
Hagstofa íslands hefur veitt mikilvœga aðstoð og sýnt samstarfs-
vilja sinn i verki og fleiri opinberar stofnanir virðast hafa skilning
á pessu, en Ijóst er að miklar kröfur verður að gera til margra
stofnana i pessu sambandi. Það hefur hins vegar valdið nokkrum
vonbrigðum að erfiðlega hefur gengið að fá iðnfyrirtceki til að skila
umbeðnum upplýsingum.
Það er stefna Landssambands iðnaðarmanna að gera ekki siður
kröfur til félagsmanna sinna en annrra. Á petta ekki sist við i pessu
mikilvc^ga nipli. . — Þ. J.
13LAND3