Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Síða 11
Hins vegar er Landssambandið þeirrar skoðunar,
að veruleg breyting á núverandi löggjöi um iðju og
iðnað sé engan veginn æskileg og geti beinlínis
reynst neytendum hættuleg. í jiessu sambandi ber
að nefna, að , enda þótt flutningsmaður bendi á,
,,að hin Norðurlöndin liafa öll samræmt sín lög um
iðnað breyttum aðstæðum", eins og það er orðað í
greinargerð, er staðreyndin engu að síður sú, að
þeirra löggjöf er talsvert mismunandi og eru norsku
Jögin líkust okkar lögum. Ennfremur er vert að
benda á, að raddir eru uppi í Svíþjóð, Finnlandi
og Danmörku, sem æskja þess að sett verði löggjöf
um iðnaðarmál í þeim löndum, sem gangi í svipaða
átt og norska og íslenska löggjöfin.
Eg vísa á bug fullyrðingum um að lögin standi í
vegi fyrir iðnþróun hér á landi og vara við öllum
byltingarkenndum hugmyndum í þessu sambandi.
Þá vil ég benda á að aukin menntun og verkkunn-
átta sem þróast hefur í skjóli laganna hefur orðið
sú forsenda, sem iðnþróunin hvílir á.
Góðir áheyrendur. Nú er í fyrsta sinn gengið til
Iðnþings eftir að lögum Landssambands iðnaðar-
manna var breytt. Undirbúningur þingsins er nú
með öðrum hætti en áður. Sérstakar nefndir skulu
vinna að undirbúningi þess og koma með tillögur
um ályktanir. Stefnt er að því að stytta Iðnþing, en
gera það jafnframt áhrifameira með jrví að senda
þingfulltrúum drög að ályktunum fyrirfram. Þetta
þing hefur að rnestu verið undirbúið á þennan hátt
og hefur verið gcngið frá drögum að flestum álykt-
unum þess.
Mun þingið fjalla um nrargvísleg málefni, sem
eru mikilvæg fyrir iðnaðinn. Ég hef þegar minnst á
nokkur atriði, sem munu verða rædd á jringinu, en
auk þeirra má nefna margvísleg aðstöðumál iðnað-
arins, svo sem skattamál, tollamál og verðlagsmál.
Ennfremur verður fjallað um ýmis önnur málefni
og má þar nefna útflutnings- og markaðsmál, inn-
kaup oinberra aðila, tækniþjónustu iðnaðarins, iðn-
minjasafn o. fl.
Að endingu vil ég vona að Iðnþinginu megi tak-
ast að afgreiða þau margvíslegu máf sem fyrir það
eru lögð af víðsýni og marki þannig nokkur spor
fram á við þjóðinni tif hagsældar.
36. Iðnþingið er sett.
11